Vísir - 27.11.1975, Page 7
vtsœ
Fimmtudagur 27. nóvember 1975.
LÖND | IVIORGUN UTLÖNDÉ MORGUN UTLÖND I MORGUN
Umsjón: Guðmundur Pétursson
Ford Bandaríkjaforseti
skýrði frá því í gær að
hann hefði bannað leyni-
þjónustunni áætlanagerð
um ad taka erlenda leið-
toga af lifi.
Þetta kom fram hjá Ford á
Blaðamannafundi sem sjónvarp-
að var eftir.að rannsóknarnefnd
þingsins hafði látið frá sér fara
ýtarlega skýrslu um ráðabrugg
CIA til höfuðs fimm erlendum
þjóöarleiötogum —■ þar á meðal
Fidel Castro.
,,Ég hef gefið öllum deildum
leyniþjónustunnar sérstök fyrir-
mæli um að meöan ég er forseti
megi ekki undir neinum kringum-
stæöum gera áætlanir um að
drepa erlenda leiötoga," svaraði
Ford spurningu sem fyrir hann
var lögð á fundinum,
Hann sagði aö jafnfraint heföu
veriðgefin fyrirmæli um að leyni-
lögreglan mætti ekki brjótá á
þegnum Bandarikj^anna mann-
réttindaiákvæði stjórnarskrár-
innar.
Ford lofar New
York efnahags-
aðstoð ríkissjóðs
New York hélt upp á
,, Þ akkarg jör ðarda g ’ ’
Bandarikjamanna með
þvi að herða sultar-
ólina enn eitt tak
meðan fagnað var
rikisaðstoðinni sem
Ford forseti hefur lofað
borginni á elleftu
stundu.
Forsetinn sem statt og stööugt
hefur spomaö gegn því að rikis-
sjóöur hlypi undir skulda-
baggann meö New York, gladdi
átta milljónir Nýju-Jórvfkinga i
gærkvöldi meö þvl að tilkynna
þeim að hann ætlaöi að leggja
fyrir þingiö tillögu um rikisá-
byrgö á lánum þeirra — allt aö
2,300 milljón dollara á ári
fram til 1978.
En Ford geröi borgar-
stjórninni það ljóst um leið, að
hún gæti ekki slakað á
sparnaðarviðleitninni. Sagði
hann henni óspart til syndanna
og kvað hana veröa að bæta ráö
sitt.
Forsetinn sagði lánin ákveðn-
um skilyrðum bundin, og hefur
borgarstjórnin fallist á þau.
Ford þykir þarna hafa nánast
hnuplað björgunarheiðrinum
frá þinginu sem hefur haft til
umræöu að undanförnu lánsað-
stoð við New York.
Hann útskýröi, hve honum
hefði snúist hugur varðandi
rikisaöstoö til handa N.Y. með
þvi að borgin hefði mjög bætt
ráð sitt og tekistaö skera niður
eyðsluna. Hann vildi þó þakka
þann árangur borgaryfirvalda
þvi hve fast hann sjálfur hefði
lagt að þeim að draga Ur
kostnaðinum.
,,í hreinskilni sagt undrar þaö
mig hvað þeim hefur áunnist I
þessu efni,” sagði Ford. —
„Fyrir nokkrum mánuðum var
okkur sagt að ekkert af þessu
værilnögulegtogNew York gæti
ekki á eigin spýtur glimt viö
vandann. Núer þetta hins vegar
gert.”
New York sem þykir skatt-
þyngsta borg USA hefur
samþykkt auknar skattaálögur
til að afla 205 milljóna dollara
til viðbótar. — Að undanförnu
hefur starfsfólki borgarinnar
verið fækkað um 40.000 meö þvi
að loka nokkrum skólum,
slökkviliðsstöðvum, lögreglu-
stöðvum og stöðva byggingar-
framkvæmdir.
Hugh Carey fylkisstjóri New
York lét eftir sér hafa i gær-
kvöldi þegar Ford hafði
kunngert rikisaðstoðina að
þessi ákvöröun mundi bjarga
New York frá gjaldþroti. Hann
varaði þó New York-búa við þvi
að erfiðir timar væru fram-
undan.
Nýju Jórvikingar hafa fylkt liöi
til aö berjast fyrir borginni
sinni. Göngur hafa veriö farnar
til áréttingar kröfum um að
borginni verði bjargaö úr
skuldafeninu. ótal útifundir og
samþykktir hafa fylgt á eftir.
Slökkviiiösmenn sendu þennan
loftbelg upp með áletruninni:
„Við elskum New York”.
Eftir tilkynningu Fords forseta
vlrðist nú rofa til á fjármóla-
himni stórborgarinnar.
f undin sek um
morðtilraun
Kviödómurinn i máii ákæru-
valdsins gegn Lynette Fromme
fann hana seka um tilraun til þess
aö ráöa Gerald Ford forseta af
dögum.
Fromme, fyrsta konan sem
ákærð hefur verið fyrir
morðtilraun á Bandarikjaforsta,
getur hugsanlega átt yfir höföi
sér ævilangt fangelsi, samkvæmt
lögum sem sett voru 1965 eftir
morðiö á Kennedy forseta.
Dómurinn kveður upp refsi-
dóminn yfir henni þann 17.
desember.
Þegar niöurstaða kviödómsins
var birt i réttinum i morgun var
hin rauðhærða hippastúlka ekki
viöstödd. — Hún hefur neitaö að
koma fyrir réttinn siðan dóm-
arinn neitaði henni um aö leiða
moröingjann Charles Manson til
vitnis i vörn hennar.
Niðurstaðan kom nokkuð á
óvart þvi kvisast hafði út úr
fundarherbergi kviðdómenda aö
þeir væru þess sinnis að'sakfella
hana um árás en ekki
morðtilraun. Viðurlög við árásar-
sökeru hámark 10 ár i fangelsi. —
Kviðdómurinn var 19 klukku-
stundir aö komast aö niöurstöðu.
FORD FORSETI BANNAR CIA
ALLAR MORÐÁÆTLANIR...
Lurie hendir
gaman að
biðlun Fords
til kjósenda
Reagans sem
notið hefur
meiri vin-
sælda meðal
ihaldssamari
afla repú-
b I i k a n a -
flokksins.