Vísir - 27.11.1975, Blaðsíða 10

Vísir - 27.11.1975, Blaðsíða 10
10 Hvað gerirðu ef þú kemst að því að maki þinn hefur haldið fram- hjó 7 • — og hvað er það að vera ótrúr? Fimmtudagur 27. nóvember 1975. VISIR l>á nótt liggur hún andvaka. Eiginmaðurinn setur i öðru herbcrgi. Það siðasta sem hún kallaði til hans var: „Farðu til andskotans — ég vil ekki sjá þig framar.” t marga tima hcfur hún legið og hugsað og hatað. Um kvöldið höfðu þau haft það svo ágætt. Eftir 8 ára hjóna- band höfðu þau verið eins og ný- gift. Þá kom áfallið. „Ég hef verið þér ótrúr. Ég vil segja þér frá þvi. Það var stúlka á skrifstofunni..... Ég hafði drukkið mikið þetta kvöld. Ég veit ekki hvernig þetta atvikað- ist, en við vorunt allt i einu i rúminu hennar. Þú getur ekki imyndað þér hvernig mér hefur liðið.... —en þetta kemur aldrei fyrir aftur." NÚ ER LÍFIÐ ÞÝÐINGARLAUST Hann talar og talar, en hún heyrir varla hvað hann segir. Það er eins og ókunn rödd tali til hennar, um eitthvað sem kemur henni ekki við. Það er ómögulegt, það er ómögulegt. Annað kemst ekki að. Siðan kemur reiðin, og þeg- ar hann ætlar að reyna að setj- ast hjá henni, æpir hún: „Snertu mig ekki.” Siðan tekur við hræðilegt rifrildi. Það er eins og tilveran hafi hrunið. Hún hafði treyst honum, og nú er lifið þýðingar- laust. Um leiö man hún eftir þvi, að hún hefur hugsað um það áður, hvernig hún brygðist við ef eitthvað slikt henti. f hverju hjónabandi má alltaf eiga von á sliku hjá báðum, en hún var viss um að hún tæki sliku með ró. Samband þeirra var of náið, til þess að slikt vixl- spor mætti hafa slæm áhrif. HVERNIG MYNDIR ÞÚ BREGÐAST VIÐ? Það getur tekið langan tima aö jafna sig á sliku. I sumum til- fellum biöur makinn þess aldrei bætur. Hvernig myndir þú bregðast við? Kannski heldurðu að þú sért róleg og skynsöm persóna, sem tilheyrir nýjum breyttum tima og getir tekiö framhjáhaldi maka þins meö mestu ró. En þannig er það sjaldnast. Þann dag sem þú kemst að þvi aö maki þinn hefur veriö þér ótrúr, mun tilfinningalif þitt bregðast harkalega við. Þú verður bitur yfir þvi að hann eða hún hefur svikið þig. Þú munt jafnvel hata maka þinn og þessi reynsla skilur eftir sig djúp spor. Skynsemi og tilfinn-_ ingar starfa ekki saman undir þessum kringumstæðum. Það eru tilfinningarnar sem hafa yfirhöndina. Sumir reyna kannski að dylja þær, en það er rangt. BITURLEIKINN, HATRIÐ OG VONBRIGÐIN... Það er rétt og nauðsynlegt að leyfa tilfinningum að koma i ljós. Biturleikinn, hatrið og von- brigðin verða að fá að koma fram. Ef ekki, losnarðu ekki við þær tilfinningar, og aðstaðan verður enn erfiðari en hún þeg- ar er. Ef þú sýnir maka þinum ekki tilfinningar þinar, mætti kannski segja að þú værir að koma honum i skilning um að þér sé sama um hann. Og hverju hefur hann þá verið ótrúr? Það er ekki fyrr en tilfinning- arnar hafa fengið útrás, sem skynsemin tekur við. Stundum hendir það þó að viðkomandi verður að fá utanaðkomandi hjálp. HVERSVEGNA AÐ VIÐURKENNA FRAMHJÁHALD? Daglega dylja hjón hvort ann- að einhverju, að minnsta kosti i mörgum tilfellum. „Þetta segi ég honum ekki — hann yrði vit- laus.” Eitthvað þessu likt kannski. Stundum vita hjón meira að segja litið um hvort annað, þó þau telji sig þekkja hvort annað vel. En hversvegna þá að viður- kenna framhjáhald? Það er fyrst þá sem þú setur hjóna- bandið i hættu. Konan þin viður- kennir ekki fyrir þér að hún hafi verið þér trú, þó tilefni hafi verið til annars. Að minnsta kosti ekki alltaf. Þvi skyldi hún þá viðurkenna að hún var ótrú? Kannski heldur sá aðilinn sem hélt framhjá ekki út með sam- viskubit sitt, og ef til vill hefur hann, án þess að vita það, löngun til þess að særa maka sinn. AÐ VERA SJÁLFUM SÉR ÓTRÚR viðurkenna fyrir sjálfúm sér, að maður getur haft tilfinningar gagnvart öðrum en þeim sem maður er giftur. Hugsanir og verknaður er tvennt ólikt. EKKERT TIL AÐ SKAMMAST SÍN FYRIR.. Það er eðlilegt að finna hjá sér löngun til þess að vera með öðrum eða annarri og að hugsa um það. Það er ekkert til þess aö skammast sin fyrir. Með þvi að leyfa tilfinningum að brjótast fram, lærir maður einmitt hvernig maður bregst við, og hefur um leið möguleika til þess að fást við og ráða tilfinningun- um. En hvers vegna er fólk hrætt við að tala við hvort annað um þessa hluti? Liklega eru báðir aðilar hræddir við viðbrögð hins. Við höfum lika aldrei lært að tala um tilfinningar. Við reynum að komast hjá þvi. Og samt er það eina leiðin til þess að ná virkilega til einnar mann- veru. ÞEIR SEM BÚA „FRJÁLST” SAMAN Við lesum og heyrum um fólk, sem býr saman ógift. Báðir aðilar hafa fullt leyfi til þess að vera með hverjum sem þeim sýnist. Þú reynir að setja þig i þeirra spor og imyndar þér hvernig það væri i þinu hjóna- bandi. En það eru fáar manneskjur sem geta búið þannig saman. 1 mörgum tilfellum er slikt sam- band dæmt til þess að slitna fyrr eða siðar. Það sýnir reynslan. Svona samband gengur kannski stuttan tima hjá ungu fólki, en oft sýnir það, að ástin er ekki svo sterk, og jafnvel alls ekki fyrir hendi. Finnst þér að maki þinn megi gera hvað sem hann vill, nema það að sofa hjá öðrum? HVAÐ ER AÐ VERA ÓTRÚR? Ef til vill hefur þig einhvern tima langað til þess að halda framhjá með einhverjim sér- stökum, En þú gerðir það ekki þó þig langaði ákaflega mikið til þess. En þá varstu einmitt ótrú eða ótrúr! Þú varst það gagn- vart þinum eigin tilfinnginum. Og það var ekki skynsemi sem kom i veg fyrir framhjáhaldiö heldur hræðslan við það sem þú hélst að það kynni að leiða af sér. Að vera eigin tilfinningum ótrúr er kannski nauðsynlegt til þess að setja gott hjónaband ekki i hættu. Það er ekki hægt að fá allt. En það er nauðsynlegt að , Þú færð að vita að konan þin hefur um langan tima hitt vinnufélaga sinn sem er karl- maður. Þau hafa ekki eingöngu boröað saman i hádeginu, heldur hafa þau verið saman á kvöldin, þegar hún hefur sagst vera að gera eitthvað annað. Þau hafa farið i bió, á veit- ingastaöi, eða setið heima hjá honum og talað saman. Þau hafa sést saman og virst ást- fangin. Konan þin viðurkennir þetta, þegar þú spyrð hana. En hún sver að hún hafi aldrei sængað með manninum eða að sér hafi nokkurn tima flogið þaö i hug. Hún vill aðeins tala við ein- hvern, sem er eitthvað sem þið gerið orðið mjög litið af. Mundir þú anda léttar, vegna þess að hún fór ekki i rúmið með honum, eða verðurðu sár og finnst þér þetta enn verra heldur en að vera ótrúr likam- lega? LANGVARANDI SAM- BAND ER ÞAÐ ERFIÐASTA „Andlegt framhjáhald” er oftast miklu verra en það likamlega. En makinn verður að hafa visst frelsi. Sá sem maður elskar, fullnægir ekki alltaf öllum manns þörfum. Ef eiginmaðurinn hefur t.d. áhuga fyrir tónlist, sem þú hefur alls ekki og reynir ekki einu sinni að hafa áhuga fyrir þessu áhugamáli háns. þá er það ekki að vera ótrúr, þó hann fari endrum og eins með konu á tónleika. Hún hefur sama áhugamálið, og þau hafa gaman af að ræða það. Það er hins vegar að vera ótrúr, þegar hann fer með ann- arri konu, þó svo þú viljir fara og sýnir áhuga fyrir tónlistinni. En það versta sem fyrir kem- ur, er langvarandi samband manns eða konu við hitt kynið, þegar hjónabandið er þegar fyrir hendi. AÐ LIFA MEÐ FRAM- HJÁHALD SEM STÖÐUGAN MÖGU- LEIKA GETUM VIÐ EKKI Ef þú kemst að langvarandi sambandi maka þins og annarr- ar konu eða karlmanns, og maki þinn segir þér að- hann elski þennan aðila jafnt og þig, og að hann geti ekki valið, er það eina rétta, að slita sambúðinni. Sumir kysu kannski frekar að biða og lifa i voninni um að makinn yröi þreyttur á hinum eða hinni, og það er kannski eðlilegt, en leysir engin vanda- mál. Það er betra að flytja i burtu. Það er þá hægt að segja maka sinum að ef hann verður þreyttur á hinum aðilanum, þá megi hann athuga hvort sam- band ykkar geti gengið áfram. Þaö er ekki fyrr en þið hafiö slitið samvistum, sem hann eða hún getur tekið ákvörðun. En framhjáhald, sem kemur fyrir einu sinni, er hægt að kom- ast yfir og gleyma að mestu, en að lifa með framhjáhald sem stöðugan möguleika, — það getur enginn i dag. Við erum ekki nógu sterk til þess að við getum til lengdar unnt hinum aðilanum að lenda i „ævintýri” endrum og eins. — EA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.