Vísir - 28.11.1975, Page 13
Föstudaefur 28. nóvemher 197í5
visrn
VISIR Föstudagur
28. nóvember 1975.
Umsjón: Kjartan L. Pálsson og Björn Blöndal
Júgóslavar unnu
með 40 marka mun
— þegar þeir léku við Luxemborg í undankeppni
Olympíuleikanna. Hvað gerir íslenska
liðið ó sunnudaginn?
islenska landsliöiö i handknattleik
leikur sinn fyrsta leik i undankeppni
Ólympiuleikanna n.k. sunnudags-
kvöld, gegn Luxemborg. Fer leikurinn
l'ram i La ugardalshöllinni og hefst kl.
20:30. Alls eru riðlarnir sjö i undan-
keppninni.þrjú liö i hverjum og komast
aöeins efstu liðin áfram. Þriðja liðið i
riðlinum eru júgöslavar og leika þeir
hcr eins og kunnugt er i desember og
sker sá leikur væntanlega úr um
áframhald istenska landsliðsins i
keppninni.
Við höfum tvivegis áður keppt við
Luxemborg og unnið stórt i bæði skipt-
in. Fyrst var leikið i Reykjavik 1970 og
lauk leiknum með islenskum sigri
35:12og i fyrra var leikið i Luxemborg
þá fóru leikar 29:14 fyrir tslandi.
Islenska landsliðið ætti að vinna
nokkuð auðveldlega á sunnudaginn,
enda luxemborgarar ekki hátt skrifað-
ir sem handknattleiksmenn. Það sést
best á úrslitunum i leik þeirra gegn
júgóslövum sem þeir töpuðu stórt fyrir
54:13 —og að sögn fróðra manna mun
láta nærri að júgóslavarnir hafi sett
heimsmet i markaskorun i þessum
landsleik. Það væri kannski til of mik-
ils mælst af islenska liðinu að sigra i
leiknum á sunnudaginn með 40 marka
mun, en 25 til 30 marka munur virðist
ekki fjarstæðukenndur.
Ekki verður mikil hvild hjá landsliðs
mönnum okkar, þvi að á þriðjudag og
miðvikudag leika þeir tvo landsleiki
við norðmenn sem eiga nú sterku liði á
að skipa og ætti þarna að fást nokkur
visbending um styrkleika islenska
liðsins. Að visu munu þeir Axel Axels-
son og Ólafur H. Jónsson ekki leika
með, en það ætti að verða mikill styrk-
ur að fá Ólaf Einarsson.
Mikið hefur verið deilt á stjórn HSl
vegna undirbúnings isienska lands-
liðsins og hvernig hefur verið staðið að
vali liðsins, en hvort undirbúningurinn
verður nægur mun væntanlega koma i
ljós i leiknum gegn júgóslövum sem
allt snýst um. Við höfum leikið sex
leiki við júgóslava, tapað fimm — og
gert eitt jafntefli.
Leikinn á sunnudaginn dæma dóm-
arar frá Vestur-Þýskalandi, Gies og
Kupferschmidt, leikina við norðmenn
dæma sænskir dómarar, Per Dahlöf og
Lars — Eric Jersmyr og júgóslava-
leikinn dæma norskir dómarar, Hugo
Larsen og ölvin Bolstad.
Miðnœturskemmtun í
Reykjavíkurmótinu!
Leikmenn Víkings og Þróttar voru farnir að biðja óhorfendur um mat þegar leikurinn
stóð sem hœst en þó var klukkan að verða hólf tvö um nóttina
„Þetta er í fyrsta sinn i öll þau
ár, sem ég hef fylgst með iþrótt-
um, að ég hef horft á meistara-
flokksleik i opinberu móti klukk-
an langt gengin i tvö um nótt”
sagði einn áhugasamur iþrótta-
unnandi, um leið og hann yfirgaf
iþróttahús Kcnnaraháskólans i
nótt — að loknum leik Vikings og
Þróttar i Reykjavikurmótinu i
blaki.
Undir þessi orð getum við tekið
— a.m.k. man undirritaður
aldrei eftir þvi að hann hafi setið
og krotað hjá sér ýmsar
upplýsingar um „svona leik” á
þessum tima sólarhrings fyrr en
þarna. Leikurinn hófst á fimmtu-
dagskvöldið — nokkuð seint að
visu — og lauk ekki fyrr en kom-
inn var nýr dagur.
Þarna átti sér stað hörku viður-
eign, sem náði hámarki sinu um
miðnætti!! — en þá stóð yfir önn-
ur hrinan af fimm, sem leiknar
voru. Þessum fimm hrinum lauk
þannig, að Vikingur hafði sigur i
þrem en Þróttur i tveim, og varð
þvi Vikingur sigurvegari i leikn-
um 3:2.
AHt besta sund-
fólc Njarðvíkur
skiptir um félag
Stærsti hlutinn af hinum efni-
lega sundflokki Njarðvikinga,
sem hefur vakið mikla athygli á
sundmótum á undanförnum
mánuðum —aðallega unglinga-
mótunum —hefur nú ákveðið að
ganga úr félaginu og keppa fy rir
íþróttabandalag Keflavikur frá
og með næstu áramótum.
Astæðan fyrir þessu mun vera
sú, að þjálfari hópsins, Friðrik
ólafsson, sem verið hefur þjálf-
ari njarðvlkinga i sundi undan-
farin ár og manna mest unnið
að uppbyggingu liðsins, hefur
gerst þjálfari keflvikinga, og
fylgir meirihluti hópsins honum
þangað.
Þegar hafa einir tiu unglingar
tilkynnt félagaskipti, og eru i
þeim hópi flestir af þeim, sem
mesta athygli hafa vakið á
undanförnum mótum.
Hafsteinn Guðmundsson, for-
maður Iþróttabandalags Kefla-
vikur, staðfesti þessa frétt er
við höfðum tal af honum i gær.
Hann sagði að Friðrik hefði ver-
ið ráðinn þjálfari ÍBK i haust, og
krakkarnir hefðu ákveðið að
fylgja honum. Hafsteinn sagði
að þarna væri um að ræða
njarðvikinga og einnig keflvik-
inga, sem hefðu æft hjá Friðrik
eftirað nýja sundlaugin i Njarð-
vikum hefði verið tekið i notkun.
— klp —
Þróttur, sem kvöldið áður hafði
leikið við 1S, og tapað 3:1, sigraði
i fyrstu hrinunni 15:11 eftir að
Vikingur hafði komist i 6:1 i byrj-
un. Var sú hrina geysilega jöfn og
spennandi, en þó sló önnur hrinan
henni alveg við — þar urðu loka-
tölurnar 17:15 fyrir Viking, en um
tima var jafnt 15:15.
Þriðja hrinan gaf hinum tveim
ekkert eftir hvað spennu snertir
— henni lauk með sigri Vikings
15:13 — og var staðan þá 2:1 fyrir
Viking. Nægði þvi Vikingi að
sigra i næstu hrinu til að sigra i
leiknum — en þá náðu Þróttar-
arnir sér mjög vel á strik og sigr-
uðu 15:2, þannig að staðan var
2:2.
Siðasta hrinan, sem hófst rétt
fyrir klukkan eitt, var þvi úrslita-
orusta leiksins. Vikingarnir náðu
þar strax forustu og héldu henni
út, og urðu lokatölurnar 15:7 fyrir
þá. Munaði mest um i þessari
hrinu, eins og flestum hinna,
góðan leik Páls ólafssonar, en
annars áttu leikmenn beggja liða
marga skemmtilega spretti.
Menn voru orðnir bæði svangir
og þreyttir þegar á leikinn leið —
sumir svo svangir, að þeir voru
farnir að biðja áhorfendur um að
gefa sér eitthvað að borða. En
Þrjú lönd vilja
sjú um mótið
Þrjár þjóðir hafa þegar sótt um
að fá að halda 4ra liða úrslita-
keppnina i Evrópukeppni lands-
liða i knattspyrnu, sem á að fara
fram i júni á næsta ári.
Þessar þjóðir eru Belgia. Vest-
ur-Þýskaland og Júgóslavia, sem
sótti um i gær. Þær slá þó allar
þann varnagla við, að þær treysti
sér aðeins til þess, ef þeirra
landslið verði i 4ra liða úrslitun-
um. —klp —
leikgleðina vantaði ekki hjá hvor-
ugu liðinu, og var hrópaðfaðmast
og kysst allan timann.
í gærkvöldi léku einnig kvenna-
lið sömu félaga i Reykjavikur-
mótinu, og má segja að það hafi
verið úrslitaleikurinn i kvenna-
flokki. Lauk honum með sigri
Þróttar — 3:0 — (15:11, 15:10 og
15:12) Er þetta i fypsta fyrsta sinn
i langan tima sem kvennalið Vik-
ings tapar leik —-og móti — en lið-
ið hefur tekið flesta titla, sem um
hefur verið keppt nú siðari ár.
Einn leikur er eftir i karla-
flokki, 1S—Vikingur, og verður
það úrslitaleikur mótsins, en ekki
er enn búið að finna stað né stund
fyrir hann. — klp —
Það hafa margar góðar fimleikasýningar verið haldnar undanfarin ár i Laugardalshöllinni. Ein slik verður á dagskrá á sunnudaginn
kemur kl. 15.00. Er sú sýning á vegum Fimleikasambands tslands og tþróttakennarafélags tslands og taka þátt I henni um 300 manns viðs-
vcgar að af iandinu. Sýningaratriði verða sautján og sýna flokkar frá skólum og félögum. Stærsti sýningarhópurinn er frá Reykjaskóla i
Hrútafirði, en i honum eru á milli 40 og 50 piltar og stúlkur. Mjög mikil aðsókn hefur ætiö verið að þessum sýningum, og er ekki að efa að
svo verður einnig á sunnudaginn, en að þessu sinni verður aðeins ein sýning.
BECKENBAUER VILL
FARA FRÁ BAYERN!
Franz „keisari” Beckenbauer
skýrði frá þvi i sjónvarpsviðtali i
Vestur-Þýskalandi i gær, að hann
hefði ekki lengur áhuga á að leika
með liði sínú Bayern Munchen og
sagði að hann hefði mestan áhuga
á að leika með erlendu liði.
„Ef ég fengi gott tilboö, myndi
ég hugsa mig vandlega um áður
en ég hafnaði þvi”, sagði Becken-
bauer sem nú er 30 ára og hefur
leikið með Bayern i 17 ár. Þá var
hann spurður að þvi hvort þessi
Þœr norsku
góðarí
fimleikum
Noregur var alveg i sérflokki á
Norðurlandamótinu í fimlcikum
kvenna, sem háð var i Rönneby i
Sviþjóð fyrir nokkru. Fengu
norsku stúlkurnar þrenn af fyrstu
fjórum verðlaununum, og höfðu
mikla yfirburði i kcppni milla
landanna, þar sem sex stúlkur frá
hverju landi kepptu.
Það var Unni Holmen Berg,
sem bar af öllum öðrum i keppn-
inni — tók fimm af sex gullverð-
launum i einstaklingsgreinunum
og svo guliið og Norðurlanda-
meistaratitilinn i samanlögðu.
Hún var nálægt þvi að taka öll
gullverðlaunin — en féll af slánni,
og það nægði til þess að Susanne
Lundvall frá Sviþjóð náði gullinu
þar — þó að hún h afi einnig dottið
I gólfið.
Keppendur á mótinu voru mjög
ungir, flestur á aldrinum 12 til 15
ára, og sáust þarna mörg efni frá
ölium Norðurlöndunum nema
tslandi — sem ekki sendi neinn
keppanda I mótið. — klp —
yfirlýsing væri sögð í reiði eftir
stórtap Bayern um siðustu helgi
fyrir bikarmeisturunum Ein-
tracht Frankfurt 6:0, þvi að eftir
þann leik hefði hann lýst þvi yfir
að hann myndi ekki leika með
Bayern til ársins 1979 eins og
samningur hans segði til um.
Franz Beckenbauer — reiðubúinn
að fara frá Bayern Munchen, ef
hann fær gott tilboð.
„Nei, þetta er ekki sagt i neinni
reiði, það hlýtur að liggja i augum
uppi að Bayern getur ekki reikn-
að með mér um alla eilifð”.
Reiknað er meðað seldi Bayern
Beckenbauer, myndi hann kosta
ekki minna en Johan Cruyff sem
seldur var frá hollenska félaginu
Ajax til Barcelona á Spáni fyrir
eitt þúsund sterlingspund.
Þjálfari Barcelona er
vestur-þjóðverjinn Hannes Weis-
weiler, sem áður þjálfaði Bo-
russia Munchengladbach og sagði
Weisweiler þegar hann frétti af
yfirlýsingu Beckenbauer að hann
tæki honum opnum örmum ef
hann yrði til sölu.
— BB
OPPSAL
TAPAÐI
STIGI!
Norska handknattleiksliðið
Oppsal, sem FII tapaði fyrir i
fyrri leik liðanna i Evrópukeppni
bikarliafa i handknattleik á
dögunum, tapaði sinu fyrsta stigi
i 1. deildinni i Noregi um helgina.
Þá lék liðiö viö Elverum og
endaði leiurinn með tafntefli:
17:17. Þetta var 11. leikur Oppsal
i deildinni, en liöið hafði sigrað i
10 leikjum i riið. Það er nú i öðru
sæti með 21 stig, en hefur leikið
cinum leik minna en Refstad,
sem er með 22 stig.
tr þessum tveim liðum er
kjarni landsliðs Noregs — sem
hér leikur á þriðjudag og mið-
vikudag — myndaður, og Oppsal
fáunt við svo aö sjá i siðari leikn-
um við FH um aðra helgi.
— klp —
LESIÐ UM ÍSLENSKU
ATVINNUMENNINA
i nýútkomnu iþróttablaði er fjallað um islensku atvinnumenn-
ina i knattspyrnu og rætt er við Asgeir Sigurvinsson, Jóhannes
Eðvaldsson og Guðgeir Leifsson.
Viðtal er við Helga Danielsson, formann mótanefndar KSt,
Spjallað við Steinar J. Lúðviksson i þættinum um íþróttafrétta-
menn.
Olympiuleikarnir i Montreal eru á dagskrá. Torfi Tómasson
scgir frá starfsemi Sundsambands tslands.
t þættinum Af úrslitatöflunni er sagt frá heistu úrslitum
sumarsins i öllum iþróttagreinum.
iþróttablaðið er málgagn ÍSt og vettvangur 50 þús. meðlima
iþrótta- og ungmennafélaga viðsvegar um landið.
Skotið í mark!
Skotfélag Reykjavikur gekkst
fyrir hinni árlegu blaðamanna-
keppni i skotfimi i gær. Keppt var
i Baldurshaga og skaut hver
keppandi 20 skotum úr liggjandi
stöðu á mark I 50 metra fjarlægð.
Arangur var mjög misjafn, en
besta útkomuna fékk Björn
Birgisson (Alþýðublaðinu) sem
var nærri 60 stigum á undan
næsta manni. Annar varð Sigur-
ddr Sigurdórsson (Þjóðviljanum)
og þriðji Sveinn Þormóðsson
(Morgunblaðinu). Ekki gekk öll-
um jafnvel að hitta skifuna og
fékk t.d. einn keppandinn eitt stig
af 200 mögulegum. Vel af sér vik-
ið!
Þeir hjá skotfélaginu æfa tvis-
var i viku, á mánudögum og
fimmtudagskvöldum og sögðu
þeir að alltaf væri hægt að bæta
við nýjum félögum.
( Hvorátti Balmer kallaBi mig '\
'■ upptökin? skoska geit — og ég kall-
Til Iþróttablaðsins. pósthóif 1193, Rvik.
Óska eftir áskrift.
Nafn
Heimilisfang
Simi
Striöinu í
nglands og Skotlands er 1
löngu lokift strákar!
.Afram meöæfinguna!
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
íþróttir og útilíf
Laugavegi 178 — Símar 82-300 og 82-302