Vísir - 02.12.1975, Side 3
VISIR Þriðjudagur 2. desember 1975.
3
Nefndarálitið umdeilda
Eins og sagt hefur verið frá i
fréttum Visis hafa orðið tals-
verð átök i bæjarstjórn Vest-
mannaeyja .vegna athugunar,
er gerð var vegna fullyrðinga
bæjarstjórnar-minnihlutans um
fjármálaóreiðu bæjarstjóra.
í nefndaráliti rannsóknar-
nefndar, sem tilnefnd var til að
kanna málið, voru niðurstöður
með þeim hætti, að bæjarstjórn
sá ástæðu til að harma mistök
og láta málið niður falla.
Nú hefur það hins vegar gerst,
að meirihluti bæjarstjórnar er
klofinn i áfstöðu sinni til máls-
ins. Á laugardag var haldinn
Iokaður bæjarstjórnarfundur,
þar sem málið var rætt, en ekk-
ert hefur verið sagt um niður-
stöður fundarins.
Upphaflega fengu Reykja-
vikurblöðin aðeins fyrrihluta
álits rannsóknarnefndarinnar.
Nú hafa heimablöö i Eyjum birt
álitið i heiid, og hefur Visir
fengið það til birtingar. — Alitið
fer hér á eftir:
,,A fundi i bæjarstjórn Vest-
mannaeyja 19. nóvember 1975
vorum við undirritaðir tilnefnd-
ir i nefnd, tilgangur nefndarinn-
ar var að kanna framkomna
gagnrýni á störf og gerðir
bæjarstjóra. Nefndin hefur nú
lokið störfum og komist að sam-
eiginlegri niðurstöðu. Eftirtald-
ir menn komu fyrir nefndina:
Sigfinnur Sigurðsson bæjar-
stjóri, Gunnar Jónsson bæjar-
gjaldkeri, Ingi T. Björnsson
aöalbókari, Einar H. Eiriksson
bæjarráðsmaður, Magnús H.
Magnússon bæjarráðsmaður,
Þórarinn Magnússon bæjarfull-
trúi, Sigurgeir Kristjánsson
bæjarráðsmaður, Reynir Guð-
steinsson bæjarfulltrúi, Georg
H. Tryggvason bæjarlögfræð-
ingur.
Alit' nefndarinnar fer hér á
eftir:
I. Nefndin telur eðlilegt að
bæjarstjóri fengi greitt upp i
væntanlegt kaup, meðan
ósamið var um launakjör
hans. Þann 4. nóvember sl.
þegar gerð voru upp laun
bæjarstjóra fyrir timabilið 1.
ágúst-31. október, urðu þau
mistök á milli launadeildar
og fjármáladeildar að fyrir-
Álit rannsóknar-
nefndar vegna
bœjarstjóra-
móísins í Vesf-
mannaeyjum
framgreiðsla upp i laun var
ekki dregin af launum
bæjarstjóra fyrir timabilið.
Þessi mistök urðu þess
valdandi að viðskipta-
mannaskuld bæjarstjóra
kr. 900.000.00 stóð óbreytt og
gaf það tilefni til getsaka um
misnotkun á fjármunum
bæjarsjóðs.Þann 18. nóvem-
ber sl. greiddi bæjarstjóri
kr. 600.000.00 inn á viðskipta-
skuld og álitur nefndin að
bæjarstjóri hafi þar með
gert full skil á viðskipta-
skuld sinni, þar sem fyrir
liggur loforð meirihluta
bæjarráðs (óbókað) að
bæjarstjóri skyldi fá greidd
sem svarar 1 mánaðar laun
fyrirfram, auk þess á bæjar-
stjóri eftir að fá greitt fyrir
nefndarstörf frá 1. ágúst s.l.
II. Nefndin yfirfór reikninga
sem borist hafa bæjarsjóði
og snerta gestamóttöku,
ferðakostnað, og dvalar-
kostnað ýmissa aðila sem
vinna fyrir bæjarsjóð þ.m.t.
bæjarstjóra. Þær upplýsing-
ar um upphæðir einstakra
reikninga og upplýst var um
á bæjarstjórnarfundi 19.
nóvember sl. reyndust veru-
lega of háar. Nefndin treyst-
ir sér ekki til þess að sundur-
liða þennan kostnað, þar
sem ekki liggur fyrir hvort
eða að hve miklu leyti
bæjarsjóður greiði uppi-
haldskostnað bæjarstjóra.
Nefndin gagnrýnir bæjar-
stjóra og sérstaklega bæjar-
ráð fyrir að gangast fyrir
ýmisskonar gestamóttöku,
án bókaðrar samþykktar i
bæjarráði, einnig úttekt á
vinföngum i blóra við fyrri
samþykktir bæjarstjórnar.
Nefndin gagnrýnir þann
seinagang sem orðið hefur á
þvi að semja endanlega um
kaup og kjör bæjarstjóra og
hefur þessi dráttur hugsan-
lega haft aukaútgjöld i för
með sér fyrir bæjarsjóð.
Jafnframt bendir nefndin á
að samningur sá um kaup og
kjör bæjarstjóra sem nú
liggur fyrir er stórgallaðui
og ekki er nægilegt að semja
eingöngu um bein laun, held
ur einnig að semja um allar
kostnað sem leiðir af ráðn
ingu bæjarstjóra.
III. Afstaða nefndarinnar til
eftirtalinna orðsendinga
bæjarstjóra til gjaldkera og
aðalbókara er þessi:
a) Ráðning kennara i auka-
• vinnu á vegum bæjarsjóðs i
sambandi við skóla sjávar-
útvegsins i Vestmannaeyj-
um var ekki formlega sam-
þykkt i bæjarráði, né verk-
svið hans ákveðið. Fram
kom að bæjarráðsmönnum
var öllum kunnugt um ráðn-
inguna en málið aldrei bókað
i bæjarráði.
b) Ráðning á verkstjóra við
væntanlega hraunhitaveitu
var ekki borin undir sam-
þykki bæjarráðs og verður
það að teljast óeðlileg
vinnubrögð af hálfu bæjar-
stjóra.
c) Erindi vegna kostnaöar við
utanlandsferðir vegna
Herjólfs h.f., tekur nefndin
fram að visa hefði átt
reikningnum til umsagnar
stjórnar Herjólfs h.f..
Ennfremur telur nefndin að
visa beri öllum reikningum
sem bæjarsjóður hefur greitt
vegna Herjólfs h.f. til
umsagnar og samþykktar
stjórnar Herjólfs h.f, en
bæjarsjóður hefur annast
slikar greiðslur frá stofnum
Herjólfs h.f.
Starf nefndarinnar hefur
leitt i ljós að ýmsar
ákvarðanir um framkvæmd-
ir og fjárútlát bæði fyrr og
nú, hafa ekki hlotið löglega
afgreiðslu i bæjarráði.
Nefndin varar eindregið
við slikum vinnubrögðum i
framtiðinni.
Vestmannaeyjum 23. nóv. 1975.
Arnar Sigurmundsson,
Jóhann P. Andersen,
Jóhannes Kristinsson,
Sigurður Jónsson.”
Nefnd othugar útreikningsreglur
vísHölubóta ó skyiduspomaði
„Nú er veriö aö kanna
máliö og væntum viö
niðurstöðu fljótlega."
Þannig svaraöi Hall-
grimur Dalberg, ráðu-
neytisstjóri, er viö spurð-
um hann hvaö liði fram-
kvæmd þeirrar yfir-
lýsingar Gunnars Thor-
oddsen að bætt skyldi úr
misrétti gagnvart eigend-
um skyldusparnaðar.
Hallgrimur sagði að nú starf-
aði nefnd á vegum félagsmála-
VERÐUR NÝJUM
AÐFERÐUM BEITT
TIL VARNAR
LANDHELGINNI?
Einn skipherra landliclgis-
gæslunnar lýsti þeirri skoðun
sinni i viðtali, sem birt var i
laugardagsblaði Visis, að land-
helgisgæslan hefði ekki sýnt
raunverulega hvers hún væri
megnug. Kasta mætti t.d. blá-
steini eða einhverju litarefni
yfir þilför togaranna og eyði-
leggja þannig allan fisk, sem
um borð kæmi.
Pétur Sigurðsson, forstjóri
landhelgisgæslunnar kvað
þessa aðferð ekki hafa verið
rædda þeirra á meðal. Ýmsum
aðferðum mætti þó hugsa sér að
beita, eins og t.d. að nota
sprengiefni og fleiri aðferðir
auk þessarar. Á þessu mætti svo
hver og einn hafa sina skoðun.
—VS
Pétur Sigurðsson.
ráðuneytisins og Seðlabankans
er ynni að endurskoðun þessara
reglna. Höfuðviðfangsefni
nefndarinnar er aö athuga hvort
það eigi rétt á sér að „reikna
visitölubætur tiðar, t.d. allt að
fjórum sinnum á ári i stað einu
sinni á ári eins og nú er gert.
Hvort visitölubætur skuli
reiknaðar af vöxtum og vextir
af visitölubótum.
Sagði Hallgrimur að könnun
þessi hefði hafist i mai og væri
hún afar-vandasamt og mikið
verk.
— EKG
Myndin af Ásgrími Jóns-
syni ó nýtt frímmerki
Póst- og simamálastjórnin
hcfur ákveðið fimm fri-
merkjaútgáfur á næsta ári.
Gefið verður út frimerki
með mynd af Asgrimi Jóns-
syni listmálara, en 4. mars á
næsta ári verður liðin öld frá
fæðingu hans.
Gefið verður út Evrópufri-
merki og verður myndaefnið
þjóðlegir munir. Þá kemur út
frimerki i tilefni af 200 ára af-
mæli póstþjónustunnar á Is-
landi, en 13. mai verða tvær
aldir liðnar frá þvi að gefin
var út konungleg tilskipun um
að komið skyldi á póstferðum
hér á landi.
Gefið verður út frimerki
með mynd af fyrstu islensku
aurafrimerkjunum, en þau
komu út 1. júli 1876 og voru
sex. Þá verður gefið út
olympiufrimerki i tilefni
Olympiuleikanna i Montreal.
Vetrarskókmót Mjölnis hafið
Vetrarskákmót skákfélagsins
Mjölnis er nú hafið. Mótið er
skipulagt samkvæmt danskri
fyrirmynd. Sá háttur. er hafður á
að aðeins er teflt einu sinni i viku
og auðvelt er að fá skákum frest-
að. Þetta.er gert til þess að menn
sem ekki sjá sér færi á að taka
þátt i mótum, þar sem stutt er
milli umferða, geti nú verið með.
Alls keppa 12 keppendur i A
riðli og hafa sjö þeirra teflt i
landsliðsflokki. Mót þetta mun
fara fram að Frikirkjuvegi 11 á
þriðjudögum kl. 19,30 til 23,30.
— EKG
Velta SIS jókst um
60% fyrstu 9 mánuðina
Fyrstu niu mánuði þessa ás
jókst rekstrarkostnaður Sam-
bands islenskra samvinnufélaga
um 41%. Á sama tima jókst velta
sex deild Sambandsins um 60%.
Velta innflutningsdeildar, véla-
deildar, sjávarafurðadeildar, bú-
vörudeildar, skipadeildar og iðn-
aðardeildar nam 15,6 milljörðum
króna fyrstu niu mánuði ársins.
Mest varð aukningin hjá sjávar-
afurðadeild, 113%.
Jóhann G. fram-
lengir sýninguna
sína fram yfir
nœstu helgi
Jóhann G. Jóhannsson opn-
aði málverkasýningu að
Skógarlundi 3 i Garðahreppi
22. nóv. s.l. Mikil aðsókn hefur
verið að sýningunni og hefur
Jóhann þvi framlengt hana
fram til 7. desember.