Vísir - 02.12.1975, Síða 12
Franz Klammer hamast við aö
kaupa vinstofur og hótel fyrir
„skiöapeningana” sina.
Klammer á
nóg af
peningum
Þaö fer ekki á milli mála að
„stóru nöfnin” i skiöaiþróttinni úti i
heimi hagnast vei á iþrótt sinni,
þótt þeir eigi aö heita áhugamenn.
Gott dæmi um það er hinn frægi
austurriski skiðakappi Franz
Klammer. Hann hefur nýlega
keypt glæsilegt skiðahótel I ölpun-
um og þar fyrir utan á hann tvær
vínstofur I Austurrlki, sem hann
hcfur einnig keypt á þessu ári.
Austurrikismenn hafa engar
áhyggjur af þvi hvar hann hefur
fengiö peningana fyrir þessu — vita
það sjáifsagt manna best — og þeir
hafa heldur engar áhyggjur af þvi
hvort Klammer hafi fyrirgert
áhugamannaréttindunum meö
þessum kaupum, enda er taliö aö
erfitt yröi fyrir hann að útskýra
þennan óvænta auð. Þaö eina sem
þeir óttast er að hann veröi svo
upptekinn viö að „scrvera” gesti
sina á vini og bjór, aö hann megi
ekki vera aö þvi að renna sér á
skiðum nema þá I mesta iagi i vet-
ur. —kip—
Sovétmenn
spörkuðu
þjálfaronum
Nú sjö mánuðum fyrir Óiympiu-
leikana i Montreal i Kanada var
alit upp í loft í frjálsiþróttamálun-
um í Sovétrikjunum. Aöalþjálfari .
liðsins, Ivan Stepantsjenok, hefur
| verið rekinn frá störfum — var of
lélegur aö sagt var.
Aðstoðarmaður hans, hinn frægi ;
Igor Ter-Ovanesian, hefur sagt upp
stööu sinni og hefur tekið við :
kennslu við iþróttaskólann i :
Moskvu, þar sem hann mun þjálfa |
og kenna stórum hópi efnilegra
höfuðborgarbúa frjálsar iþróttir. j
Við stööu Stepantsjenok hefur x
tekið Anatoli Komarov, sem er jj
frægur frjálsiþróttaþjálfari — en er s
þó ekki i efsta sæti á vinsældalist- :
anum hjá iþróttafólkinu sjálfu — og
hefur honum gengiö hálf-erfiölega
að fá aðstoðarfólk enn sem komið j
er.
Sovétmenn hafa ekki miklar á- -!
hyggjur af þessum sviptingum og
telja að þeir geri það gott á leikjun- j
um I Montreal eins og á öllum
Ólympiuleikum nú siðari ár_klp—
Þriöjudagur 2. desember 1975. vism
„Danirnlr voru eins og
börn í höndunum á þeim"
— sagði Ólafur Einarsson sem sá norðmenn „flengja" dani í landsleik fyrr í haust
Óvœnt tap
hjá Levski
'Spartak Pleven, sem hefur dval-
ið á botninum i 1. deildinni i
knattspyrnu í Búlgariu i iangan
tima, vann óvæntan sigur yfir
einu af efstu iiðunum — Levski
Spartak, sem hér lék gegn ÍBV
fyrir nokkrum árum — er liöin
mættust I deildarkeppninni um
helgina.
Ekki breytti þetta röðinni hjá
Spartak Pleven, en aftur á móti
missti Levski af efsta sætinu. Þar
er Akademik, sem er með 17 stig
— en næst koma Levski og CSKA
með 16 stig.
Flokkaglíma
Reykjavíkur
Flokkaglima Heykjavikur fer
fram fimmtudaginn 11. desember
i Iþróttahúsi Jóns Þorsteinsson-
ar.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast til Sigtryggs Sigurðssonar,
Melhaga 9, fyrir 5. desember n.k.
Norðmenn
„Norömenn eru örugglega
með langbesta handknattleiks-
landsliðið á Norðurlöndum um
þessar mundir,” sagöi Óiafur
Einarsson i viðtali við Visi i
morgun. Ólafur leikur eins og
kunnugt er með vestur-þýska
handknattleiksiiðinu Oonzdorf
við góðan orðstir og hann sá
norðmenn leika landsleik við
dani fyrr i haust og veit þvi
ýmislegt um lið þeirra.
„Leiknum lauk með öruggum
sigri norömanna 21:16 og voru
danirnir eins og börn i höndun-
um á þeim. Þeir leika mjög ör-
uggt og yfirvegað — leika uppá
að skora mark og gera fáar vill-
ur. Harald Tyrdal var þeirra
besti sóknarmaður, en auk þess
átti Pal Bye stórleik i markinu.
Mér fannst lið þeirra litið gefa
bestu austantjaldsþjóðunum
eftir —við verðum að eiga stór-
leik i kvöld ef ekki á illa aö
fara.”
Það er greinilegt að norð-
menn eru með mjög sterkt
landslið um þessar mundir og
ætti islenska liðið að fá verðuga
mótherja þar sem þeir eru.
Fram til þessa höfum við leikið
13landsleiki við norðmenn, unn-
ið tvo, gert fimm jafntefli, tapað
sex sinnum — og markatalan er
205:218 okkur i óhag.
Tvær breytingar verða á lið-
inu sem lék við Luxemborg; þeir
Ólafur H. Jónsson og Axel
Axelsson leika ekki með, en i
þeirra stað koma Sigurbergur
Sigsteinsson og Ólafur Einars-
son. En landsliðið verður þannig
skipað: Guðjón Erlendsson,
Fram, Ólafur Benediktsson Val,
Páll Björgvinsson Vikingi, Frið-
rik Friðriksson- Þrótti, Jón
Karlsson, Val, Árni Indriðason
Gróttu, Ingimar Haraldsson.
Haukum, Stefán Gunnarsson,
Val, Sigurbergur Sigsteinsson
Fram og Ólafur Einarsson
Danzdorf.
Leikurinn i kvöld hefst kl.
20.30 i Laugardalshöllinni og
verður hann dæmdur af sænsk-
um dómurum. —BB
Páll Björgvinsson, fyrirliði islenska landsliðsins i handknattleik, var i sviðsijósinu á sunnudagskvöldiö i
leiknum gegn Luxemborg og skoraði þá 9 mörk. Páll veröur aftur i eidlinunni Ikvöid þegar island leikur
sinn 14. landsleik viö Noreg, og vonandi tekst honum jafnvel upp i kvöld og i Ieiknum gegn luxemborgur-
um.
að sœkja sig
í borðtennis!
ÁGÚST TIL SVÍÞJÓÐAR?
Allar likur eru á að enn einn is-
lendingurinn haldi utan og leiki
handknattleik með eriendu iiði.
Nú hefur Agústi Svavarssyni sem
leikur með 2. deildarliði 1H verið
boðið að leika með sænska 1.
deildarliðinu Malmberget, en það
er sama liðið og Ingólfur óskars-
son sem nú þjálfar Fram lék með
i tvö ár.
„Ég tel miklarlikurá að ég fari
þviþeir hafa boðið mér húsnæði
og atvinnu,” sagði Ágúst, „enda
ekki á hverjum degi sem maður
fær svona tilboð. Ég á nú samt
eftir að gera þetta fullkomlega
upp við mig, en mun væntanlega
gera það á næstunni.
Ef Ágúst þiggur boð svianna,
þá verðurhann sjöundi islending-
urinn sem leikur með erlendu liði
i vetur, hinir eru: Ólafur H.
Jónsson og Axel Axelsson hjá
Dankersen, Einar Magnússon
Hamburger SV, Ólafur Einarsson
Donzdorf og Gunnar Einarsson
Göppingen sem leika i Þýska-
landi og Jón Hjaltalin Magnús-
son sem leikur með 1. deildarlið-
inu Lugi i Sviþjóð.
Dómaraskamká?
Mikil átök urðu á þingi Knatt-
spyrnudómarasambandsins
sem haldið var um helgina. Var
nýr formaður, Hóbert Jónsson,
kosinn I stað Ragnars Magnús-
sonar sem var felldur.
Töluverður hiti var I mönnum
eftir þingið og eftir því sem við
höfum komist næst er lögfræð-
ingur kominn i málið, þvi að
þeir sem urðu undir teija aö
ólöglega hafi veriö aö máium
staðið.
Þá hefur framkvæmd þings-
ins verið kærð til KSl sem vænt-
anlega mun þinga um það fijót-
lega. Það voru fuiltrúar
Reykjavikur sem fclldu Ragn-
ar. Iliaut hann 10 atkvæði en
Róbert 12.
Útnefndir voru 12 landsdóm-
arar sein dæma eiga i 1. deild á
næsta ári — urðu deilur um það
mál lika —og vildi minnihlutinn
að þessi hópur yrði stærri.
—BB
Norðmenn hafa sótt sig mjög I
borðtennis að undanförnu og eru
að koma upp með harðsnúiö iið
borðtennisieikara, sem þeir
byggja mikiar vonir við á kom-
andi árum.
Þeir háðu landskeppni við finna
um siðustu hclgi og sigruðu þá 5:2
og töidu finnar sig hafa sioppið
vel með að liafa náð þessum
tveim stigum i viðureigninni við
þá. —klp —