Vísir - 10.12.1975, Page 4

Vísir - 10.12.1975, Page 4
Miövikudagur 10. desember 1975. VISIR íiii irnmi íini XWM MjMg ItíUl iMMk AÉiík *Utila AMltii M Míf nfnli fflfflp mMn fmSW Wm mmn fflro fflww fflnw ffll Eru Neytenda- samtökin eitt- hvað fyrir þig? Hvaö gera Neytendasamtökin? Hverjir vinna þar? Getur hver sem er leitað til samtakanna, eða eru þau einungis fyrir félagsmenn? Með hvaða mál er hægt að snúa sér þangað og hvernig er á þeim tekið? Við heimsóttum skrif- stofuna og forvitnuðumst um starfsemina Skrífstofan or opm 10*13 oo Sigriöur hefur nóg aö gera i kvörtunarmálunum. Visir heimsótti skrifstofu Neytendasamtakanna aö Bald- ursgötu 12 hér i borg til að kynn- ast einni hliö af fjölþættu starfi samtakanna, þ.e. þeirri hliö sem kannski einna mest snýr aö almenningi. Sigriöur Björnsdóttir, önnur af tveimur starfsstúlkum sam- takanna fræddi okkur um starf- ið á skrifstofunni: „Hjá Neytendasamtökunum eru aöeins tveir launaöir starfs- kraftar. Ég vinn hér siðari hluta dagsins en fyrri partinn vinnur hér Guörún Magnúsdóttir. Flest önnur störf i þágu sam- takanna svo sem stjórnar- og nefndarstörf eru unnin i sjálf- boöaliösvinnu. Okííar starf hér auk venju- legra skrifstofustarfa, er aö taka á móti kvörtunum fólks, bæöi simleiöis og einnig hjá þvi fólki sem hingaö kemur beint. Einnig vélritum viö bréf bæöi innlend og erlend, sjáum um innheimtu og félagaskráningu. Fjöldi kvartana er misjafn, én mér finnst hann hafa aukist bara frá þvi i haust og að meðal- tali koma svona þrjú til sex mál á dag, en fer allt upp i þrettán. Neytendur verða að athuga málið fyrst sjálfir. „Þaö er best aö taka það skýrt fram að við hér á skrifstofunni höfum ekkert úrskurðarvald i málum, sem til okkar berast. Ef neytandi kemur hér með kvörtun yfir gallaðri vöru sem hann hefur keypt, eða kvörtun yfir þjónustu er frumskilyrði aö hann hafi sjálfur reynt aö leita réttar sins hjá viðkomandi selj- anda, fyrr er málið ekki til um- ræðu af okkar hálfu. Hafi neytandi þegar gert það fyllir hann út þar til gert um- kvörtunareyðublað i tviriti, þar sem fram koma allar upplýs- ingar um viðkomandi mál. Annað blaðið sendum við sið- an til þess stjórnarmanns sem hefur með málið að gera eftir þvi um hvað þaö fjallar, hús- gögn, teppi fatnað o.s.frv. Afritið setjum við númerað i möppu yfir mál sem eru i gangi og eftir það vinnum við eftir fyrirmælum viökomandi stjórn- armanns og við förum alltaf yfir möppuna og fylgjumst með hvað hverju máli liður og reynum að flýta fyrir afgreiðslu þess.” Stundum nægir eitt símtal. „Úrlausn mála getur tekið mjög mislangan tima, eftir þvi hve umfangsmikil þau eru. Stundum nægir eitt simtal til að komast að samkomulagi, en i öðrum tilfellum eru málin flóknari. Samtökin hafa aðgang að lög- fræðilegri aðstoð þar sem þau geta fengið leiðbeiningar og svör við vafaatriðum sem upp kunna að koma. Stundum næst ekki samkomu- lag og stundum hefur neytand- inn ekki réttinn sin megin, en segja má að u.þ.b. helmingur þeirra mála sem hingað berast leysist neytandanum i hag. Þegar niðurstaða fæst i viðkom- andi máli er númeraða afritið fært inn i möppu yfir afgreidd mál og þar getum við alltaf leit- að samanburðar ef hliðstæð mál koma upp aftur. Neytandi getur alltaf leitað hingað „Það er ekki búið að taka saman fyrir yfirstandandi ár þær kvartanir sem borist hafa en þær eru margvislegar. Þaö er mikið leitað hingað vegna heimilistækja og þá kannski sérstaklega vegna við- gerðarþjónustu, einnig út af teppum, fatnaði og skóm og vegna hreinsunarmála. Neytandi getur i öllum tilvik- um sem honum finnst á rétt sinn gengið leitað hingað, þó með þvi skilyrði sem fyrr er getið, að hann hafi fyrst reynt að fá leið- réttingu sjálfur. Ef um er að ræða mál sem ekki heyrir undir okkur gefum við neytandanum upplýsingar um hvert hann skuli snúa sér. Það ber nokkuð á þvi að fólk misskilji starfsvið samtakanna, það hringir e.t.v. hingað og biður okkur að mæla með ein- hverju ákveðnu merki af tiltek- inni vörutegund. Slikt getum við auðvitað ekki gert. En það eru ekki alltaf neytendur sem til okkar leita, það ber við að seljendur snúa sér til okkar til þess að fá upp- lýsingar um rétt viðskiptavina sinna. 1 sumum kvörtunartilfellum út af einstökum vörum verðum við að sjá vöruna, ef ekki er hægtað koma með hana hingað, t.d. gólfteppi sendum við ein- hvern á staðinn til að athuga vöruna.” Líka fyrir landsbyggðina „1 Neytendasamtökunum eru nú liklega um 3.000 manns viðs- vegar um landið. Félagsmenn ganga fyrir i þjónustunni en það getur hver sem er leitað til okk- ar hvort sem hann er i samtök- unum eða ekki, en þeir sem standa utan þeirra, verða aö greiöa ákveðiö gjald fyrir þjón- ustuna, nema um sé að ræöa kvartanir vegna matvæla, drykkjar, lyfja, hættulegra efna og opinberrar þjónustu. Neytendasamtökin starfa aðallega hér i Reykjavik, en neytendur hvar sem er á land- inu geta leitað til okkar og gera þaö lika. Ég held það fari sifellt i vöxt að fólk leiti til samtakanna, og það er yfrið nóg að gera hér bara við að sinna kvörtunum, þótt ekki væri annað,” sagði Sigriður Björnsdóttir. —EB UíUx iiiió. tttiit íiiu uu mm iim utm frS™ Sraivfifllm IumiA míI ™lni "nM mlfi LÓÐAÚTHLUTUN - REYKJAVÍKUR 1. Reykjavikurborg mun á næsta ári, 1976, úthluta lóðum fyrir iðnaðogþjónustustarfsemi við Vesturlandsveg (Borgarmýri), Súðavog, milli Kleppsmýrarvegar og Holtavegar og Vatna- garða. Áætlað er, að hluti lóðanna við Vesturlandsveg verði byggingar- hæfur á hausti komanda, en lóðir við Súðavog á árinu 1977/1978. Greiða skal 1/3 hluta áætlaðs gatnagerðargjalds við úthlutun, en eftirstöðvar á 2 árum. Gatnagerðargjald miðast við 650-750 kr/rúmmetri. 2. Reykjavikurborg mun ennfremur úthluta lóðum til ibúðabygg- inga aðallega á eftirgreindum stöðum: a. Fjölbýlishús i 1. áfanga Eiðsgrandahverfis. b. Fjölbýlishús i Breiðholti III, Hólahverfi 3. áfangi. c. Fjölbýlishús við Hólmgarð. d. Einbýlishús i Breiðholti II, Stokkaselshverfi. e. Einbýlishús i Breiðholti III, Hólahverfi 2. áfangi. Helming áætlaðs gatnagerðargjalds skal greiða innan mánaðar frá úthlutun, en eftirstöðvar áður en byggingarleyfi er gefið út. Gatnagerðargjald er sem hér segir: Einbýlishús fyrir fyrstu 550 rúmm. kr. 1.434/rúmm. Einbýlishús rými umfram 550 rúmm. kr. 1.972/rúmm. Rað- og tvibýlishús kr. 717/rúmm. Fjölbýlishús 4 hæðir og minna kr. 358/rúmm. Fjölbýlishús yfir 4 hæðir kr. 268/rúmm. Umsóknir og allar nánari upplýsingar um lóðir til ráðstöfunar svo og skipulags- og úthlutunarskilmála verða veittar á skrifstofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð. Umsóknarfrestur er til og með þriðjudeginum 30. desember n.k. Eldri umsóknir þarf að endurnýja. Lesstofan á Baldursgötunni er opin tvo tima á dag og þangaö geta neytendur sótt sér fræöslu. Myndir Jim kkiii ikiiik ik BSM nra iA rafflra IBI

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.