Vísir - 10.12.1975, Blaðsíða 6
6
Miðvikudagur 10. desember 1975.
vísm
Klippingar - Klippingar
Ilárgreiðslustofan
VALHOLL
Laugavegi 25. Simi 22138
^fréttnnar vism
PASSAMYIVDIR
feknar í lifturtt
tilbúnar sftraxl
barna & f íölskylcflu
ALA
OSMYNDIR
TURSTRÆTI 6 S.12644
MYNT
já|lS|N Myntalbúm
Allt fyrir
myntsafnara
FRÍMERKJAMIÐSTÖÐIN
Skólavöröustíg 21 A-Simi 21170
REUTER í MORGUN ÚTLÖND É MORGUN ÚTLÖND
Nóbelsathöfninni lýkur
með blysför og kröfum
um aukin mannréttindi
Eiginkona Andrei
Sakharovs/ fyrsta rúss-
ans sem hlýtur friðar-
verðlaun Nóbels, mun i
dag veita viðurkenning-
unni viðtöku. Sovésk yfir-
völd hafa meinað bónda
hennar að taka við verð-
laununum í eigin
persónu.
Meðal háttsettra gesta sem
viðstaddir verða setningu hi nn-
ar hefðbundnu verðlaunaat-
hafnár i marmarasalnum i
Oslóarháskóla verða Ólafur
Noregskonungur og Trygve
Bratteli forsætisráðherra.
Eftir athöfnina er ráðgerð
kröfuganga baráttumanna fyrir
auknum mannréttindum, og er
blysför þeirra heitið til Grand
hótels þar semYelena Sakharov
mælir til þeirra nokkrum oröum
ofan af svölum hótelsins.
Maður hennar sem hlaut
verðlaun fyrir mannréttinda-
baráttu sina i Sovétrikjunum,
lét þau orð falla á sinum tima
þegar hann frétti af verðlauna-
veitingunni að hann vonaðist til
þess að hún mundi koma póli-
tiskum föngum i heimalandi
hans til góða.
Hann reyndi að fá inngöngu i
réttarsal, þar sem fjallað var
um mál vinar hans, Sergei
Kovalevs, en var meinaður að-
gangur. — Sakharov og 58
andófsmenn aðrir i Sovétrikjun-
um létu frá sér fara i gær
áskorunarskjal undirritað af
þeim öllum þar sem áréttuð var
krafan um að pólitiskir fangar
hvar i landi sem þeir væru yrðu
látnir lausir.
Möguleikar Coneorde-
þotunnar til þess að komast i
áætlunarflugið á Atlantshafs-
leiöinni þykja i dag minni en
nokkru sinni. Slikt er þó forsenda
þess að þessi dýra tilraunasmið
Breta og Frakka geti nokkru sinni
borgaö sig.
Þessi umdeilda flugvél sem
kostað hefur stjórnir Bretlands og
Frakklands rúmlega 2,000 milljón
dollara er nú skotspónn um-
hverfisvarnarráðs Banda -
rikjanna, eða alla vega fram-
kvæmdastjóra þess Russell
Train.
Train skyrði þingnefnd svo frá i
gær, að concordeþotan væri
tæknilega úrelt orðin, og að
mælingar stofnunar hans sýndu
að hávaði frá henni væri svo
mikill að flugferðir hennar til
JFK-flugvallar og Dulles-flug-
vallar (annar við New York og
hinn við Washington) eins og lagt
hafi verið til, væru óæskilegar.
Þessar upplýsingar Trains færa
þeim umhverfisverndarmönnum
og þingliðum sem verið hafa and-
snúnir flugi Concorde i Banda-
rikjunum ný vopn i hendurnar.
Stuðningsmenn Concorde efndu
strax i gær til blaðamannafundar
til að svara fullyrðingum Trains.
Nú dregur óðum að þvi að sam-
göngumálaráðuneyti Banda-
rikjanna taki af ..skarið um það
hvort leyfa eigi flug Concorde I
Bandarikjunum. Upp úr 5. janúar
næstkomandi má vænta
ákvórðunar r-áðuneytisins, og
örugglega fyrir 4. febrúar.
Þreytast ó
ríkisrekstri
Hið opinbera hefur nú varað
stjórn og starfslið bresku
Leyland-verksmiðjanna,
stærsta bilaframleiðanda
Bretlands, við þvi að þeir
verði að leggja harðar að sér,
ella verði rikisaðstoð hætt við
fyrirtækið.
Vinnudeilur og vinnu-
stöðvanir hafa dregið veru-
lega úr framleiðslu British
Leylands sem voru teknar i
rikiseigu og þjóðnýttar i ágúst
i sumar.
Ryder lávarður, formaður
þeirrar nefndar þess opinbera
sem umsjón hefur með rikis-
rekstri, sagði á fundi með 650
starfsmönnum Leylands að
aukin framleiðni væri for-
senda fyrir þvi að fyrirtækið
ætti einhverja framtið fyrir
sér. Sagði hann að rikissjóður
mundi hætta að veita fé i verk-
smiðjurnar ef framleiðnin
ykist ekki.
„Víkja hægri! Vikja til hægri!”
í M