Vísir - 10.12.1975, Page 14
14
Miðvikudagur 10. desember 1975. VISIR
Fullkomin þjón-
usta - í bílum
/
Japanskt fyrirtæki hefur framleitt fullkomnasta sigarettu-
kveikjara i bil, sem hingað til hefur veriö gerður. Ýtt er á hnapp,
og út kemur sigarettan — logandi.
„Sjálfkveikjari” þessi hefur einnig að geyma sigarettuöskju,
þar sem allt að þvi 30 sigarettur geta rúmast. Askjan er tengd við
kveikjarann i mælaborðinu, og logandi sigaretta birtist, þegar ýtt
er á hnapp.
Framleiðandinn selur þessa nýju uppfinningu á 12,000 yen (tæp-
ar 10,000 kr.)
Prófessor rekinn
úr embœtti vegna
siðlauss lífernis!
Stúdentar og kennarar við
iæknaháskólann i Róm fóru i
setuverkfaii til stuðnings við
prófessor, sem var rekinn úr
embætti, vegna þess að hann bjó
með konu, sem hann var ekki
giftur.
Giovanni Gandiglio, sem er 42
ára að aldri, var visað úr emb-
ætti af stjórn skólans, sem cr
kaþólskur, vegna þess hve
hneykslanlegt einkalif hans
væri.
Gandiglio prófessor sagði
blaðamönnum, að hann hefði
húið i fjögur ár með þritugum
mannfræðingi, sem biði eftír
skilnað frá manni sinum. A
italiu verða hjón að hafa verið
skilin að borði og sæng i fimm
ár, áður en þau geta öðlast lög-
skilnað.
Prófessorinn kvaðst vera
vinstrisinnaður, og hefði það
ráðið mestu um gerðir hans.
Petta mái varpar ljósi á hina
slæmu sambúð rikis og kirkju á
ttaliu. Samkvæmt samkomu-
lagi sem gert var við Vatikanið,
hefur kirkjan rétt til að ráða og
reka starfsiið við kaþólska há-
skóla af siðgæðilegum eða trú-
arlegum ástæðum.
SKIÐAFATNAÐUR
Finnski
skíðafotnað-
urinn er
kominn
nú sem fyrr er hann á
mjög góðu verði, lita-
úrvalið er mikið og
fallegt, og allar stærðir
eru til.
Einnig mikið
úrval af:
skíðum,
skíðahönskum,
skíðahjúlmum,
skíðagleraugum,
skíðahúfum og
CABER
skíðaskóm
POSTSENDUM
yzmmm
míSEMMTOm
Það er orðið langt síðan
við hér á íslandi sáum
eða heyrðum í Pat Boone,
sem eitt sinn var stór-
stjarna. En þessi trúaði,
hreinlífi heiðursmaður er
við bestu heilsu og ham-
Pat Boone
ánœgður
með lífið
ingjusamur ásamt konu
sinni og fjórum dætrum.
Nýlega eignaðist hann
fyrsta soninn. Það var
reyndar tengdasonur.
Dan O'Neill gekk að eiga
Cherry Boone.
Columbo var áður
skattasérfrœðingur
Peter Falk, sem við þekkjum
sem sjónvarpslögguna Columbo
fær góð laun fyrir hlutverk sitt
eins og lög Hollywood gera ráð
fyrir. En hann hafði töluvert
með miklar fjárupphæðir að
gera áður en hann varð vinsæil
leikari. Þá voru það milijónir
dollara sem hann hugsaði i og
græddi.
Hann græddi þær þó ekki fyrir
sjálfan sig heldur fyrir fylkið
Connecticut i Bandarikjunum.
Falk var rekstrarráðgjafi hjá
fjármáladeild fylkisins frá 1953
tii 1955.
Það yrði þó ekki til að auka
vinsældir Columbos i Connecti-
cutef það spyrðist hvernig hann
hefði aflað fylkinu þessara
tekna. Hann var nefnilega sér-
fræðingur i skattamálum og það
tókst að skrapa saman aðskilj-
anlegar milljónir með þvi að
fara að ráðum hans um ýmsar
endurbætur á reglum um inn-
heimtu skatta.
Einn skattur sem lagður er á
menn i Connecticut er svonefnd-
ur notkunarskattúr. Það er
gjald sem menn skulu greiða
fyrir lúxusvöru sem þeir kaupa
utan fylkisins en nota samt þar.
Þetta gekk ákaflega illa að inn-
heimta, þar til Peter Falk datt I
hug að innheimta skattinn úm
leið og menn skráðu ýmsar lúx-
usvörur, svo sem hráðbáta og
einkaflugvélar.
John Nachly, var með Peter
Falk á þessum árum og það fór
ágætlega á með þeim. — Pete
virtist oft vera annarshugar, en
hann var mjög fljótur að ná tök-
um á torskildum og flójtnum
lagaflækjum. Hann hafði samt
alltaf meiriáhuga á leiklistinni.
Hann var bráðfyndinn og hnytt-
inn i tilsvörum.
— Stundum urðum við þó
dálitið vandræðalegir yfir út-
ganginum á honum þegar hann
kom i vinnuna. Fötin voru oft
ópressuð og skyrtan kryppluð.
Jafnvel þá var hann eins klædd-
ur og Columbo.
John Wayne
sleginn niður
Kúrekahetjan John Wayne var
keyrður i ofboði á sjúkrahús fyrir
skömmu. Hann var með höfuðmeiðsl
effir að hafa verið laminn niður og
þurfti læknirinn að sauma saman Ijótt
sár yfir vinstra auga.
Það var níu ára dótfir kappans,
Marisa sem lagði hann af velli með
golfkylfu. Það var óvart.
Svefnherberg-
ið eins og
í hóruhúsi....
Elvis Presley seldi nýlega stórhýsi
‘sitt i Holmby hæðum, en það gekk ekki
alltof vel. — Hann hafði nær eyðilagt
húsið, segir fasteignasalinn. Hann
hafði látið mála allt, loft, veggi og gólf
i hræðilegum grænum lit. Og svefn-
herbergið var eins og í hóruhúsi:
Hrikalegt pall-rúm, umkringt mar-
mara og speglum.
Ósköp er hann
valtur á fótun-
um, þessi litli
giraffi, eins og
von er, þar eð
hann leit fyrst
dagsins ljós
þrem mlnút-
um áður en
myndin var
tekin. Móöir
hans styður
hann á fætur,
en nýfæddur
giraffi verður
að fá fyrstu
móðurm jólk-
ina i siðasta
lagi 90 minút-
um cftir fæð-
i n g u , e 11 a
sveltur hann i
hel. Mæðginin
eiga heima i
dýragarðin-
um I Basel i
Sviss.