Vísir - 10.12.1975, Qupperneq 24
VÍSIR
Seðlabanka-
Miðvikudagur 10. desember 1975.
Óku utan í
4 bíla við
sömu götu
Að aka utan i fjóra bila á
einum bil sama kvöldið er
fullmikið af þvi góða. Ekki
sist' þcgar bilarnir standa
allir við sömu götuna.
Þetta átti sér stað i nótt. A
Bugðulæk var ckið utan i
hvorki meira né minna en
fjóra bila á sama tima.
Klukkan rúmlega hálf tvö
var atvikið tilkynnt til lög-
reglunnar. Lögreglan hand-
tók siðar pilt sem viður-
kenndi að hafa ekið bil sem
um var að ræða um kvöldið.
En annar piltur var með
honum, og sá komst undan.
Var talið að hann hefði ekið
bilnum þegarhann fór utan i
hina fjóra.
Bflinn fengu þeir ekki einu
sinni á löglegan hátt, heldur
brugðu þeir sér inn á bila-.
sölu, og fengu sér einn. Að
sjálfsögðu var ölvun i spil-
inu,en pilturinn fékk að gista
hjá lögreglunni. — EA.
Heita vatnið
streymir upp
í Eyjafirði
,,l>að renna um tuttugu og þrir
sekúndulitrar af 86 gráða heitu
vatni úr holunni núna, en hún er
orðin um 619 metra djúp, sam-
kvæmt upplýsingum frá verk-
stjóranum i morgun,” sagði
Rögnvaldur Finnbogason hjá
Orkustofnun i viðtali við Visi i
gær.
Stutt er siðan hafin var borun
með Jötni að Laugalandi i Eyja-
firði fyrir Akureyrarbæ og höfðu
menn ekki gert sér vonir um,
verulegan árangur svona ofar-
lega, en það var aðfaranótt
þriðjudags sem rennslið byrjaði.
,,Þetta er mjög góður hiti og
miklu betri árangur en hefur
náðst i Eyjafirði fram til þessa,”
sagöi Rögnvaldur. „Að magni til
gæti ég trúað að þetta væri um
fimmti eða sjötti partur af þvi
sem þarf.
Hins vegar er viðbúið að auka
mætti magnið kannski allt að
helmingi með dælum. Þetta gefur
mjög góðar vonir, og ástæðu til að
vera bjartsýnn um árangur.
Það verður haldið áfram að
bora fram i miðjan desember, en
siðan verður gert hlé framyfir
áramót,” sagði Rögnvaldur Finn-
bogason. — ÉB
Götur grófust
í vatnsveðri í
Eyjum í nótt
„Ég man ekki eftir öðru
eins vatnsveðri og þennan
klukkutima I nótt. Það var
ekki hægt að segja að það
væri eins og hellt væri úr
fötu, öllu hcldur sprautað úr
slöngu,” varð lögreglu-
manni i Eyjum að orði,
þegar við höfðum samband
þangað I morgun.
Mikið vatnsveður var þar i
nótt og sérstaklega eina
klukkusund. Götur sem
lagðar eru vikri grófust
margar illa . Ekki voru þær
þó ófærar bilum en illfærar
sums staðar,sérstaklega svo
kallaður Dalvegur.
Viðgerðir voru hafnar i
morgun, en ekki var vitað til
að flætt hefði i kjallara eða
önnur óhöpp hlotist af.
-EA.
stióri vísar
ummœlum
Guðna ó bug
Visir reyndi i morgun
að fá umsögn ráða-
manna i Seðlabankan-
um um fullyrðingar þær,
sem fram komu á blaða-
mannafundi með Guðna
Þórðarsyni, forstjóra
Air Viking, i gær um
Seðlabankann.
Ekki náðist i forráðamenn
bankans, en Jóhannes Nordal,
seðlabankastjóri, hefur algjör-
lega visað á bug ummælum
Guðna um ofsóknir. Bankastjór-
inn hefur sagt, að þáttur Seðla;
bankans i málinu sé aðeins eðli-
legur liður i eftirliti bankans með
peningastofnunum.
Fyrirgefðu góði — ég
œtlaði ekki að gera þetta
Þessari bifreið Pósts og sima var óiöglega lagt þarna fyrir utan
simstöðvarbygginguna við Kirkjustræti. Það afsakar þó ekki að á
hana var ekið, en býður fremur þeirri hættu heim.
ökumaður jeppabifreiðar, sem var að bakka út úr stæöi við
Austurvöll, sá ekki bifreiðina með þeim afleiðingum, sem við sjá-
um á myndinni hér að ofan.
Atburðurinn átti sér stað kl. 16.30 i gærdag.
TIL FÆREYJA
MEÐ SJÚKAN
SKIPVERJA
Reykjafoss var í morgun
á leiðtil Færeyja meðskip-
verja sem hafði fengið
hjartaáfall. Danskt eftir-
Ilitsskip með lækni og þyrlu
um borð# fylgdist með
Reykjafossi en vegna
óveðurs var ekki hægt að
oma lækninum um borð.
Enn verður
borað í Mos-
fellssveit
Nú er verið að flytja einn af
borum Orkustofnunar, sem
verið hefur norður i Mývatns-
sveit i sumar, til Mosfclls-
sveitar þar scm haldið verður
áfram borunum fyrir Hitaveitu
Reykjavikur.
Að sögn Jóhannesar Zoega,
hitaveitustjóra, er þó ekki
skortur á heitu vatni til Hita-
Jón H. Magnússon hjá
Eimskipafélagi Islands sagði Visi
i morgun að Reykjafoss yrði
kominn til Færeyja um hálf ellefu
leytið, og yrði þá maðurinn flutt-
ur i sjúkrahús þar.
Reykjaíoss var á leið til Islands
frá Antwerpen þegar skipverjinn
veiktist.
— ÓT.
veitunnar eins og er, heldur er
hér um að ræða áframhald á
fyrirligjandi verkaskrá og
standa vonir til að unnt verði
að ljúka þessari áætlun um
boranir i Mosfellssveit á næsta
ári.
Að sögn hitaveitustjóra liggja
einnig fyrir áætlanir um
stækkun varastöðva og geyma
Hitaveitunnar.
Aðalframtiðarsvæði Hita-
veitunnar verður á Nesjavöll-
um i Grafningi og af tilrauna-
borunum þar má ráða að þar
muni nægilegt heitt vatn um
ófyrirsjáanlega framtið. -EB
Selir og sœljón
fró Hafnarfirði
til Vínarborgar
1 morgun flutti Iscargo-flugvél sjö seli og sæljón úr Sædýrasafn-
inu i Hafnarfirði til Rotterdam. Þaðan verða fimm dýranna flutt
til Amsterdam, en tvö með flugvél frá KLM til Vlnarborgar I nótt.
Þessi dýr hefur Sædýrasafnið selt til dýragarða i þessum borg-
um. Flutningarnir i morgun hófust heldur brösulega. Iscargovélin
átti að taka dýrin á Reykjavlkurflugvelli, en vegna misskilnings
var byrjað að aka þeim til Keflavikurflugvallar. Iscargo-vélin
beið á meðan málið var að skýrast, og selirnir og sæljónin voru
flutt til Reykjavikur. — Iscargo-vélin var komin i timaþröng þar
eð hún þurfti að vera komin til Bretlands fyrir ákveðinn tima til að
taka kálfa til flutnings til ítaliu. Kálfarnir verða fluttir i sex ferð-
um.
Selirnir og sæljónin voru i sérstökum búrum og virtist fara vel
um þau. Eitt dýr var i hverju búri og búrin rúmgóð. — Bragi tók
þessa mynd i morgun, þegar verið var að flytja selina og sæljónin
um borð i flugvélina á Reykjavikurflugvolli.
Tvö vinnuslys í gœr
Tvö vinnuslys urðu á
svipuðum tima í gær, og
var í báðum tilvikum um
meiðsli á fæti að ræða.
1 Stálvikvarð vinnuslys. Ungur
starfsmaður þar fótbrotnaði, en
ekki var fyllilega vitað hvernig
slysið bar að. Komið var að hon-
um liggjandi á gólfinu um það
leyti, sem hann var að leggja af
stað heim úr vinnunni.
I hinu tilvikinu varð slys i
Brekkugötu i Hafnarfirði. Þar
vann maður við hitaveitulagn-
ingu og var að grafa skurð. Mun
hann hafa fallið i skurðinn og
slasast á fæti. Var jafnvel talið
að hann hefði fótbrotnað.
— EA.