Vísir - 11.12.1975, Blaðsíða 13
13
VTSIB Fimmtudagur 11. desember 1H75.
nattspyrnu I Belgiu og Skotlandi. Þeir
danförnu. Hér sjáum viö einn þeirra,
en Celtic er nú I efsta sæti i deildinni.
nirnir
ið gott
Að loknum 15 umferðum i „Efstu
deildinni” i Skotlandi, er Celtic i
efsta sæti með 21 stig. Siðan kemur
Motherwell með 20 stig, þá Hibs með
19 og siðan Rangers 4 stigum á eftir
Celtic með 17 stig. — klp —
Asgeir Sigurvinsson er eitt stærsta
nafniö i knattspyrnunni i Belgiu —
og þó eru þar margar stjörnurnar.
Lítið orðið eftir af
Ajax nema nafnið eitt
Félagið sem sigraði í Evrópukeppninni þrjú ár í röð var slegið út úr
UEFA-keppninni í gœrkvöldi — Jimmy Case og Johan Cruyff hetjur
Liverpool og Barcelona, sem bœði flugu í 8-liða úrslitin_
Hollenska liöiöAjax frá Amster-
dam sem fyrir tveim árum var
nefnt „Aðall” Evrópskrar knatt-
spyrnu — sigraði þá i Evrópu-
keppninni þrjú ár i röð — var
slegið út i UEFA-keppninni af
Levski Spartak i Búlgariu i gær-
kvöldi, þegar siöari umferðin i 16
liða úrslitum keppninnar var
leikin.
Hollendingarnir sigruðu i fyrri
leiknum i Amsterdam 2:1, en i
gær sigruðu Búlgararnir með
sömu markatölu. Þá var Fram-
lengt, þar sem markatalan var
jöfn, en hvorugu liðinu tókst að
Johan Cruyff var „kóngurinn”
iliðiAjax á meðan það var og hét.
Nú leikur Cruyff með Barcelona
og hann átti allan heiðurinn af
márki liðsins i leiknum I Ung-
verjalandi í gærkvöldi;
skora i framlengingunni, og þá
var vitaspyrnukeppni látin ráða.
Rund Geels skoraði örugglega úr
fyrir spyrnunni fyrir Ajax, en
Pavel Panov jafnaði fyrir
Levski. Þá mistókst Helling og
búlgararnir komust áfram.
Liverpool og Barcelona unnu
stærstu sigrana i 16 liða úrslitun-
um. Liverpool sigraði pólska liðið
Slask Wroclaw 2:1 i fyrri um-
ferðinni og i gærkvöldi áttu
pólverjarnir sér aldrei
viðreisnarvon á Anfield i
Liverpool og töpuðu 3:0. Jimmy
Case var hetja Liverpool-liðsins,
hann tók stöðu Steve Heighway
sem þjáðist af hálsbólgu ' og
skoraði öll mörkin.
Barcelona sigraði ungverska
liðið Vasas Budapest i Ungverja-
landi 1:0. Það var „super-
stjarnan” Johah Cruyff, sem átti
allan heiðurinn af marki
Jafntefli
Spurs og
Everton
Tottenham og Everton gerðu
jafntefli á White Hart Lane I 1.
deilarkeppninni i Engiandi i gær-
kvöldi 2:2.
John Pratt skoraði fljótlega
fyrir Tottenham, en þeir Telfer og
Bob Latchford komu Liver-
pool-liðinu yfir 1:2 og þannig var
staðan þar til stutt var til leiks-
loka. Þá tókst skotanum John
Duncan að jafna metin fyrir
Tottenham.
Þá sló italska liðið Florentina
West Ham út úr ensk-itölsku
keppninni. ítalarnir gerðu sér lit-
ið fyrir og sigruðu West Ham á
Upton Park 1:0. Þeir sigruðu
einnig i fyrri leiknum með sömu
markatölu og halda þvi áfram —
2:0 samanlagt. — BB.
Barcelona i gærkvöldi. Hann lék
skemmtilega á þrjá varnarmenn
og sendi siðan góða séndingu á
Fortes sem skoraði af stuttu færi,
Barcelona vann samanlagt 4:1.
Belgiska liðið Bruges kom á
óvart á Olympiuleikvanginum i
Róm og gerðu belgarnir sér litið
fyrir og sigruðu A.C. Roma 1:0.
og halda þvi áfram i keppninni —
unnu samanlagt 2:0. Raoul
Lambert skoraði mark Bruges i
siðari hálfleik — og stuttu siðar
urðu voniritalanna að engu þegar
markvörður Bruges — Jensen —
varði vitaspyrnu frá Prati.
Hitt italska liðið, AC Milan,
komst hins vegar áfram. Það
tapaði að visu fyrir rússneska
liðinu Spartak Moskvu 2:0, en
sigraði i fyrri leiknum 4:0 og
komst þvi áfram á betra marka-
hlutfalli 4:2. Rússarnir urðu að
færa leikinn til, þvi að nú er vetur
Moskvu og hann leikinn suður
við Svartahaf.
Dynamö Dresden frá Austur--
Þýskalandi sló hitt Moskvuliðið
— Spartak —út úr keppninni. Sá
leikur fór einnig fram við
Svartahafið oglauk honum með
sigri rússanna 3:1, en þjóðverj-
arnir sigruðu i fyrri leiknum 3:0
og komust þvi áfram i marka-
tölunum 4:3.
Hamburger tapaði fyrir
portúgalska liðinu Oporto 2:1 i
Portúgal. Fimm leikmenn voru
dæmdir i bann eftir fyrri leik
liðanna i Vestur-Þýskalandi, sem
lauk með sigri Hamborg 2:0 —
einn þjóðverji og fjórir
portúgalar.
Reinmann skoraði mark fyrir
Hamborg ifyrri hálfleik, en Julio
og Cubillas skoruðu mörk Oporto
i siðari hálfleik. Hamborg kemst
þvi áfram á betri markatölu 3:2.
Þá sigraði Stal Mielec frá Pól-
landi, tékkneska liðið Inter
Bratislava 2:0 — Inter sigraði i
fyrri leiknum 1:0 og þvi heidur
Stal Mielec áfram á samanlagðri
markatölu 2:1. -BB.