Vísir - 15.12.1975, Síða 17
VISIR Mánudagur 15. desember 1975.
25
Sjónvarp kl. 21,20:
ÞRÓUNARKÍNNING DARWINS
- LtlÐIN TIL FULLKOMNUNAR
Leiðin til fulikomnunar
nefnist þátturinn um
vegferð mannkynsins í
kvöid. Verður þar f jallað
um þróimarkenningu
Darwins. Reyndar var
það annar samtíðar-
maður Darwins, sem
uppgötvaði þessi
þróunarlögmál fyrstur,
þó Darwin fengi seinna
allan heiðurinn af því. Sá
maður hét Alfreð
Wallace.
Verður meira fjallað i
myndinni um þennan Wallace.
Meðal annars verður fjallað
mikið um ferðir hans til Suður-
Ameriku. Margar fallegar
landslagsmyndir sýndar frá
Amazonsvæðinu.
Ekki sakar það að sýnd verða
atriði úr Surtseyjarmynd Ós-
valdar Knudsen, en Surtsey er
einmitt ágætis dæmi um
hvernig lif haslar sér völl og
skapár sér lifsskilyrði á nýju lif-
vana landi. Þar reyndist kjörið
tækifæri fyrir liffræðinga að
fylgjast með framþróun lifs frá
upphafi.
Það er ekki að efa að margir
fylgjast af áhuga með þessum
fræðslumyndaflokki um upphaf
og þróunarsögu mannsins, enda
málið okkur skylt. -VS.
Sjónvarp kl. 22,20;
„Hlýddu og vertu góð"
Sjónvarpsleikrit kvöldsins er
úr breska myndaflokknum
„Country matters”. Þaö segir
frá ungri sveitastúlku eins og
lög gera ráð fyrir. Hún býr hjá
foreldrum sinum öldruðum.
Karlinn er frekur og ráörikur og
beygir þær mæðgur undir vilja
sinn. Orð hans eru lög.
Svo kemur að þvi að honum
þykir dóttirin vera orðin full
þurftarfrek. Hann ákveður þvi
að ráða hana i vist. Fyrir valinu
verða gömul hjón sem búa i
gamalli myllu. Myllan er búin
að syngja sitt siðasta, en hjónin
lifa á þvi að karlinn kaupir og
selur gamlan varning. Konan er
sjúklingur.
Þar sem karlinn er mikið að
heiman vegna vinnu sinnar er
stúlkan ráðin til að annast
konuna.
Hún leggur rikt á viö stúlkuna
aö hún verði að þóknast karlin-
um i einu og öllu. Aumingja
stúlkan tekur þetta vist of bók-
Atriöi úr leikritinu Mylian. Holland hjónin leika Brenda
Alice leikin af Rosalind Ayers. Bruce og Ray Smith.
staflega þegar karlinn kemur ritinu verða svo samskipti þess-
heim. Meginuppistaöan i leik- ara þriggja. -VS.
Útvarp kl. 22,15:
BFAÐIST m AÐ BÍTL-
ARNIR VÆRU MESTU
TÓNSNILLINGAR, SEM
UPPI HAFA VERIÐ
,,Ég var kominn í
þriðja bekk i mennta-
skóla þegar ég fór að
ef ast um það, að Bitlarnir
væru mestu tónsnillingar,
sem uppi hefðu verið",
sagði einn nemandi Jóns
Ásgeirssonar eitt sinn.
Þetta er það tema, sem
hann ætlar að leggja út af
i þættinum Úr tónlistar-
lifinu í kvöld.
Annars var kveikjan
að þessum þætti ritdeilur
sem spruttu af gagnrýni
sem hann skrifaði í
Morgunblaðið. Gunnar
Egilson gerði við hana
athugasemd. Skiptust
þeir nokkuð á orðum
vegna þessa.
Nú ætlar Jón að fá Gunnar i
þáttinn ásamt tveim öðrum, og
spjalla almennt um gagnrýni og
tónlist i fjölmiðlum — menntun
og almennar upplýsingar sem
fjölmiðlar gefa um tónlist.
Gunnar Egilson.
IÍTVARP •
Mánudagur
lS.desember
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan:
„Fingramál” eftir Joanne
Greenberg Bryndis Vig-
. lundsdóttir les þýðingu sina
(15).
15.00 Miðdegistónieikar Fil-
harmóniusveitin i Los
Angeles leikur
„Petrushka”, ballettsvitu
eftir Igor Stravinsky, Zubin
Metha stjórnar. John Willi-
ams og Enska kammer-
sveitin leika „Hugdettur um
einn heiðursmann”, tónverk
fyrir gitar og hljómsveit eft-
ir Joaquin Rodrigo, Charles
Groves stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn
17.00 Ungir pennar Guðrún
Stephensen sér um þáttinn.
17.30 Or sögu skáklistarinnar
Guðmundur Arnlaugsson
rektor segir frá, fimmti
þáttur.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Pagiegt mál Guðni Kol-
beinsson flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn
Þórarinn Helgason talar.
20.00 Mánudagslögin
20.30 Gestir á IslandiÞættir úr
fyrirlestri, sem Thordis
örjasæter flutti i Reykjavik
i april um barnabækur og
sjónvarp. Ólafur Sigurðsson
fréttamaðursérum þáttinn.
21.00 Pianókvartett I P-dúr op.
23 eftir Antonin Dvorák
Walter Trampler og Beaux
Arts-trióið leika.
21.30 „Feðurnir”, saga eftir
Martin A. Hansen Séra
Sigurjón Guðjónsson þýddi.
Kristján Jónsson les fyrri
hluta. Siðari hlutinn er á
dagskrá á miðvikudags-
kvöld.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Ur tón-
listarlifinu Jón Asgeirsson
sér um þáttinn.
22.45 Hljómplötusafnið i um-
sjá Gunnars Guðmundsson-
ar.
23.40 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
SJÓNVAIfP •
Mánudagur
15. desember
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.40 iþróttir. Umsjónar-
maður Bjarni Felixson.
21.20 Vegferð mannkynsins.
Fræðslumynd um upphaf og
þróunarsögu mannsins. 9.
þáttur. Leiðin til full-
komnunar. Þýðandi og
þulur Öskar Ingimarsson.
Myllan. Breskt sjónvarps-
leikrit úr myndaflokknum,
„Country Matters”, byggt á
smásögu eftir H. E. Bates.
Alice er hlýðin stúlka og
gerir allt, sem fyrir hana er
lagt. Foreldrar hennar ráða
hana i vinnu til roskinna
hjóna. Konan, sem er
sjúklingur, segir Alice, að
hún verði að þóknast hús-
bónda sinum i hvivetna
Þýðandi: Kristmann Eiös
son.
Dagskrárlok.