Vísir - 17.12.1975, Blaðsíða 6
6
Á þessari mynd sjást mussa og pils úr riff I-
uöu flaueli, sérlega vinsælt nú til dags.
Mussan er sérsaumuö og kostar 7.665 krón-
ur en pilsið 5.850. Rúllukragapeysan er úr
acryl og kostar 1.995 krónur.
Þaö eru ekki bara seldar bækur í Bókabúð
Giæsibæjar í Glæsibæ, heldur líka jarölikön
eins og myndin ber með sér. Likönin kosta
f r-.á 1.745 krónum upp í 5.800. Ferðabók Egg-
erts og Bjarna er líka á myndinni og kostar
15.000 krónur. Auk þessa fást allar nýjustu
bækurnar í Bókabúð Glæsibæjar.
I hljóðfæraverslun Poul Bernburg fást
þessar pianicur frá Yamaha i Japan. Poul
Bernburg er með umboðið fyrir Yamaha,
og ef einhverjum finnst ekki nóg að leika á
pianicu, þá má geta þess að í versluninni er
tií sölu raf magnsorgel sem kostar um hálfa
aðra milljón króna. En pianican kostar
2.850 til 5.760.
i versluninni Blóm og myndir Laugavegi 53
fást fjölmargar gerðir ramma í öllum
stærðum. Þeir eru á verðinu f rá 300 til 3000
krónur en sá á myndinni kostar 2.300 krón-
ur. Auk þess er hægt að fá í búðinni alls kon-
ar eftirprentanir eftir fræga listamenn.
Þessar hnepptu peysur eru yfirirleitt úr
botany ull og kosta frá 4.700 krónum, en
heila peysan með tveimur tölum kostar frá
4.000 upp í 4.700 króriur. Auk þess eru til
rúllukragapeysur úr shetlandsull á 2.500
krónur. Þessi mynd var tekin í Adam á
Laugavegi 47 og þar fást þessar vörur.
Sennilega þarf ekki að kynna lesendur fyrir
þessum gallabuxum en þær eru af gerðinni
Levi. Þær fást í Faco á Laugavegi en því
miður fylgir verðið ekki með.
Leikfangaver, Klapparstíg 40 selur leik-
föng fyrir fólk á öllum aldri. T.d. er þetta
billiard borð á boðstólum þar og kostar
12.600. Kannski svolítið dýrt miðað við mörg
önnur leikföng en upplagt leikfang fyrir
alla f jölskylduna.
Eiginlega er þetta jólagjöf fyrir plötuunn-
endur en þeir geta auðvitað verið á öllum
aldri. Þetta er hljómplötuhreinsisett og því
fylgir vökvi sem maður úðar yfir plöturnar
og bursti til að þurrka af nálinni. Kostar
2.275 og fæst hjá Einari Farestveit Berg-
staðastræti 10 a. Einnig eru til ódýrari gerð-
ir af þessum hreinsisettum.
Á tímum hraða og tækni er eins gott að
fylgjast meðtímanum. Vasatölvur eru eitt
þeirra fyrirbæra sem eru orðin mjög algeng
í daglegu lífi, t.d. er algengt að
krakkar i gagnfræðaskóla noti tölvur við
reikninginn, enda spara þær þeim óskap-
lega mikinn tíma. Þessar tölvur kosta
7.600.- og fást í Skrifvélinni, Suðurlands-
braut 12.