Vísir - 17.12.1975, Blaðsíða 12
12
~-----KÖMHRTOPI
Þessi rómarpottur kostar 2.440 krónur.
Hann er úr óhúöuðum leir, eldf astur og not-
aður til að steikja i. Hann sþarar þrif og
léttir heimilisstörfin. Þessi pottur er sá
minnsti af þremur stærðum og fæst í versl-
uninni Liverpool á Laugavegi.
í versluninni Húsgögn og raftæki sem er
til húsa í Iðnaðarhúsinu að Hallveigarstig 1
fást þessi amerisku heimilistæki. Fjórföld
brauðrist kostar 15.800 krónur, mjög full-
kominn grænmetis-, súpu- og alls konar
vökvablandari kostar 14.700 krónur, gufu-
straujárn, sem úðar vatni á undan sér til að
stenka tauið kostar 8.300, ný gerð af hrað-
suðukatli kostar 8.400 og litla brauðristin
kostar 8.840 krónur. Þessar vörur eru í sér-
flokki og fást aðeins þarna.
í versluninni Monu Lisu er f jölbreytt úr-
val snyrtivara fyrir konur og á veggjum
hanga myndir af Monu Lisu. í jólaösinni
þurfti þó að taka a.m.k. eina þeirra niður. Á
myndinni sjáum við aftast lúxus freyðibað
á 1.260 krónur, t.v. er baðolía á 1.510, t.h.
Eau de Cologne á 1.080, fyrir miðju er body
lotion á 960 krónur og 1.298 krónurog fremst
er baðpúður á 1.630 krónur. Einnig er hægt
að kaupa svona sett saman á 4000 krónur.
Ef þú hugsaðir sjálfur um að losa vasana
þína áður en þú þværð þvottinn, þá kæmi
þetta ekki fyrir.
Þessi norsku, handunnu kristaldýr er
hægt að fá i versluninni Norðfoss, Lauga-
vegi 48 og kosta hver 1.990 krónur. Fuglarn-
ir eru þó seldir tveir saman og kosta 2.900
krónur. Tilvalið skraut í stofuna.
Á þessari mynd sjáum við hálsband, arm-
band, hring og eyrnalokkaí setti en þessir
skartgripir eru smiðaðir af Gunnari Malm-
berg, eiganda skartgripaverslunarinnar
Skartgripir, Laugavegi 36. Verð settsins er
kr. 40.000.00. Tilvalin jólagjöf handa
frúnni!
Það hefur reyndar ekki verið mjög kalt
það sem af er vetrar, en við vitum aldrei
hvenær vetur konungur setur sig í ham og
byrjar að hrella okkur. Þess vegna er betra
að vera við öllu búinn og gefa því konunni
þessa húf u og trefilinn, en þetta er hægt að
fá í sex litum. Hvort tveggja er prjónað úr
ull en það er líka hægt að fá svona húf ur úr
acryl efnum. Settið kostar 2500 krónur.
Fæst í Glugganum, Laugavegi 49.
Þessi stígvél eru vestur þýsk og þau
vinstra megin kosta 14.500 krónur. Þau
hægra megin kosta 13.640 krónur. Gæða-
vara, sem fæst í Stjörnuskóbúðinni á
Laugaveginum við hliðina á Stjörnubíói.
I snyrtivörudeild Sláturfélags Suðurlands
fást alls konar baðpúður og ilmsápur í
gjafapakningum. Baðpúðrið kostar frá 562
krónum, baðpúðrið og ilmúðarinn 962 krón-
ur. í flöskunni er freyðibað og kostar slíkt
frá 497 krónum.