Vísir - 17.12.1975, Síða 11
Ein afgreiðslustúlkan í Domus klæddi sig
i vatteraðan greiðsluslopp til að sýna okkur.
Þessir sloppar fást í þremur litum, bláum,
brúnum og bleikum. Inniskórnir sem hún er
í eru í stíl við sloppinn og kosta 930 krónur.
Naglalistaverk (Pin Art) er svona fyrir-
bæri kallað og er reglulega snjallt. Það
kostar frá 1.750 krónum en það sem myndin
er af kostar 3.350. Fyrst eru naglar negldir
á spjald og gylltur þráður settur eftir
ákveðnum reglum. Naglalistaverkin fást í
hannyrðaversluninni Lilju, Glæsibæ. Auk
þessa er fjölbreytt úrval af hannyrðalist
frá Penelope, sem fæst hvergi nema í Lilju.
Á þessari mynd sjáum við nýlega gerð af
hakkavél og grænmetiskvörn. Þessar vélar
eru bæði léttar og litlar og á botni jDeirra eru
sogskálar, svo þær festast vel við borðið.
Hakkavélin kostar 1.970 krónur en græn-
metiskvörnin 2.870. Þær fást í Lissabon
Suðurveri við Kringlumýrarbraut.
Gætuð þér gefið mér fyrir fari upp í
Kerling§rf jöll?
Þessar laglegu stúlkur brugðu sér í svunt-
urnar sem fást í versluninni Irmu, Lauga-
vegi 40. Svunturnar kosta frá 695-985 krón-
ur. Auk þess er hægt að fá í versluninni
svuntur fyrir karlmenn en þær kosta 1.760
krónur. Svuntur f yrir börnin kosta 595 krón-
ur.
Þessi blússa er f rá Baaden-Heinz og er úr
Diolen efni. Verð hennar er frá 6.800 krón-
um og fæst í þremur litum og stærðum í
versluninni Didó Hverfisgötu 39.
Þessar ullarrúllukragapeysur fást hjá
Sonju, Suðurveri við Kringlumýrarbraut og
hægt er að velja um 7 liti. Þær kosta 2.965. í
Sonju er einnig hægt að fá gjafakort, þann-
ig ef menn skyldu vera í vandræðum eru
gjafakortin ágætis lausn á jólagjafavanda-
málinu.
Á þessari mynd sjást sænsku viðarljósin,
sem eru til sölu í Ljósi og hita á Laugavegi
89. Þau kosta f rá 9.090 krónum upp í 14.535.
Á þessari mynd er allf úr silf ri. Hálsfest-
in kostar 14.300 krónur, armbandið 17.200
krónur og hringurinn kostar 5.400 krónur,
en í honum er bergkristall. Þetta fæst allt í
Úra- og skartgripaverslun Jóns og Oskars,
Laugavegi 70. Þar er einnig hægt að kaupa
hringi fyrir 120.000 krónur, þannig að ef
menn hugsa hátt er eins gott að buddan sé
vel feit.