Lesbók Morgunblaðsins - 29.04.1928, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 29.04.1928, Blaðsíða 6
134 LESBÓK MQBÖUNBLAÐSINS lljer á myndinni sjest nokkurskonar gjallarhorn, sem sett e'r í sam- band við hljóðfæri. Heyrnartól fylgir og úr því geta menn heyrt hljóð- færasláttinn þótt þeir sjeu heyrnarlausir. Sneið svo bolinn úr tæpri hálfri breidd og hafði hann lrtið aðskor- inn. Pilsið náði ofau undir mjóa- legg, felt alt í kring, heldur minna borið í framfellingarnar. — Svart breitt flauelsband um mittið á öðrum fötunum, með silfurpörum. Bolm'inn prýddur eins og venja er til. Peysuhúfa f.vlgir báðum fötnn- um, en engijk svunta. Önnur fötin eru dökk-muðbrún að lit, en hin ljós-blágræn. Jeg bvst við, að nú sje búið að sýna önnur upphlutsfötin í „Hinu íslenska kvenfjelagi“ í Reykjavík, og freysti jeg því, að fjelagskonur taki nú þetta mál til athugunar og framkvæmda. Pleiri en jeg geta komið með breytingartillögur, og er þá að Arelja það, sem skynsemi cg góður smekkur mælir helst með. Blönduósi í febrúar 1028. Nýja tískan. Ef nokkur sjerfræðingur er til í öllum heilbrigðismálum sem snerta fatnað, þá er hann sennilega próf. Bubner í Berlín. Hann hefir verið brautryðjandi í ýmsum rannsókn- um viðvíkjandi fatnaði og fata- dúkum. Rubner liefir nýskeð skrifað all- langa grein um nýju tískuna og má vera að einhverjum þyki fróð- legt að lieyra álit þessa fræði- inanns. Að sjálfsögðu hefir R. augun opin fyrir þeim framförum, sem orðið hafa á síðari öldum í bún- ingi manna og fatagerð. Minnist hann t. d. á hve prjón hafi reynst betur en ofnir dúltar í nærfötum o. fl., hversu fundist hafi hentugir búningar fyrir ferðamenn svo og vinnuföt. Hinsvegar spyrji tískan sjaldnast hvað hentugt sje og holt, að hún fari að mestu eftir því, hva^ stóriðnaðurinn í fatagerð teljýsjer gróðavænlegast. Tískuna elta svo allir, livort sem hún er ill eða góð, hvað sem það kostar. I öllu öðru verða menn þó að taka nokkurt tillit til þess, sem hentugt er, t. d. í húsagerð. HArað kvenbúningana snertir, þá hefir stefnan á síðustu á'rúm verið sú, að ganga sem mest nak- inn. Af yfirborði líkamans er nú orðið nálega helmingurinn ber eða fatalaus að heita má. Ermar eru að mestu úr sÖgunni, fætur og fót- leggir eru klæddir til skrauts en ekki hlýinda, og lcjólar flegnir alt hvað af tekur. Fyrst má spyrja hvort slíkur búningur sje nægilega heitur. — Margir láta í veðiú vaka, að það sje hann, — því hörundið herðist, kulvísin fari af manni, en loft og ljós hafi greiðan aðgang að hör- undinu og sje það til heilsubóta. Þá sje það og ekki lítil meðmadi, að fagur líkami sjáist sem hest. Hvað síðasta atriðið snertir þykir R. konum gleymast, að fæstar eru alskostar fagrar eða Vel vaxnar svo fat aleysið lýti fleiri en prýði. Iíinsvegar komist það upp í vana, eins og alt annað, að sjá hálfnakt- ar konur, og þá finnist karlmönn- um lítt til um það. Annars telur R. það vmfalaust, að búningunnn sje of kaldur nema yfir hásum- arið, þegar miðað er við Þýska- land. Það sje jafnvel mörg dæmi þess, að stúlkur hafi kalið á fótum svo þær hafa mist fleiri eða færri tær. Aðrar fá kuldabólgu í fætur. Þég'ar um slíkt er að ræða, hljóta allir að vera sammála um, að bún- ingurinn sje of kaldur. Það ligg- ur og í augum uppi, að hann ejr of kaldur á leggjum á fótum ef nokkuð er að veðri, en fótakuldi yfirleitt óhollur. Ef setið er inni þarf að hita húsin rneira en clla, til þess að svo klæðlitlu fólki sje notalegt. Upp iir herðingunni vill R. ekki leggja mikið, segir að hiin sje frekast æfing í að una við það að vera kalt og kvef sje engu fá- tiðara hjá fáklæddu konunum en áður gerðist, hinsvegar sje talið að fleiri stúlkur deyi á 20—26 ára aldri síðustu árin en vænta mætti. Annars sje það misjafnt hversu menn þoli kulda, og sumum geti hanu orðið að heilsutjóni. Hversu sem þessu er fabið, þá er það víst, að skjóllítill biiningur hentar hálfu vér á íslandi en í Þýskalandi. Þá bendir R. á annað atriði: -að búnmgurinn sje að nokkru leyti óþrifalegur og jafnframt óhent- ugur. Nærfötin ,sem eiga að taka við öUum óhreinindum af líkaman- um og vera auðþvegin, hylja ekki líkamann þar sem hann er ber, og þar liggja þá ytri fötin, sem aldrei eru þvegin, að beru hör- undinu. Þau ejru þá einskonaf

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.