Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.1929, Side 8
64
r' 1* LBSBÓK morgunblaðsins
Prestur (er að spyrja dreng):
Hvað segir nú guð um öll þessi
boðorð ?
Drengur: Hvað ætli hann geti
sagt — hann hefir sjálfur sett þau!
Elsti maður í Rússlandi er
bóndi, sem heitir Nikolas Sjopov-
ski og á heima í þorpinu Iaty,
sem er í fjallahjeraðinu hjá Suce
hum í Abkasía. Hann er 147 ára
að aldri, fæddur í Póllandi árið
1782, á dögum Katrínar drotning-
ar. Hann er eklci orðinn mjög
hrumur, þarf ekki að nota gler-
augu, en heyrniu er orðin mjög
sljó.
— Er það satt, að föðurbróðir
þinn sje svo veikur, að þið megið
búast við öllu?
— Nei, ekki öllu — við erfum
ekki nema helminginn.
Óeirðirnar á Spáni.
Primo de Rivera heldur ræðu fyrir nemendum liðsforingjaskóla.
— Pabbi, fáum við Pjetur ekki
píanóið þegar við eruiu gift»?
—- Jú, telpa mín, en jeg' held, að
þú ættir ekki að segja Pjetri frá
því fyr en eftir brúðkaupið.
Heldurðu, að maður geti
elskað tvær konur samtímis?
—* Já, þangað til önnur hvor
kemst að því.
Sjúklingur (með óráði) : Hvar er
-~jeg? Hvar er jeg? í paradís?
Kona hans: Hvaða vitleysa er
nú í þjer, Þorbjörn! Sjerðu ekki,
að jeg er hjerna hjá þjer?
—• Jæja, Lína, hefirðu brotið
allar valhneturnar ?
—• Ekki allar, frú —* sumar eru
svo stórar, að jeg kem þeim ekki
upp í mig.
— Hvaða tryggingu getið þjer
sett fyrir láninu?
—■ Drengskaparorð heiðarlegs
manns.
— Jæja, komið með heiðarlegan
mann, og þá skuluð þjer fá pen-
ingana.
Um síðustu mánaðaraót blossuðu
upp óeirðir hjer og þar á Spáni,
gegn einræðisstjórn Primo de Ri-
vera. Var talið áreiðanlegt, að
meiri brögð hefðu orðið að óeirð-
um þessum, en símfregnir hermdu
frá Spáni, því þar er skeytaskoðun
og ritskoðun og alskonar kúgun
höfð í frammi, sem kunnugt er.
Undirrót óeirðanna að þessu
siniii var að sÖgn sú, að einvalds-
herrann ljet dæma liðsforingjaefni
í þungar refsingar fyrir andúð
gegn sjer, og andúðina, er kom
einkum fram í liðsforingjaskólan-
um í Segova á síðastliðinu hausti.
Á fáum dögum tókst Primo de
Rivera að bæla niður uppreisnina
að þessu sinni. Hjet hann því
þegar, að menn þeir, einkum her-
menn, er hefðu haft sig í frammi,
skyldu sæta þungri hegningu. —-
Meðal þeirra er handteknir voru
var Sanchez Guerra, foringi frjáls-
lyndra íhaldsmanna og fyrverandi
forsætisráðherra. Var hann hand-
tekinn í Valencia og fluttur
burt á herskipi. Var þess getið til
að hann mundi færður í útlegð.
Þetta tiltæki vakti þegar mjög
mikla gremju.
Samhljóða áliti fjölda rnanna,
sem kunnugir eru á Spáni, er það
að óánægjan með stjórn Primo
Primo de Rivera.
de Rivera fari sívaxandi. Ef hon-
um tekst mikið lengur að kalda
völdum, þá komi það til af því,
að almenningur óttist nokkuð lang
varandi óeirðir, þegar honurn verð-
ur velt iir stóli.
— Jeg er farinn að finna á mjer
ellimörk. Nú sje jeg ekki lengur ‘ fsafoidarprentsmitsja h.f.
hema á mín eigin Spíl,