Lesbók Morgunblaðsins - 26.05.1929, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 26.05.1929, Side 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 163 skurðum. Veturinn er mildur og sumarið ekki of heitt, vegna haf- golunnar. Fyrir utan kornjurtir svo sem hveiti, bygg, maís og lirísgrjón, vaxa þar margskonar ávaxtatrje, gullapaldrar, eplatrje, sítrónuviðir, granatar, hnetur og möndlur o. fl. o. fl. Hæðirnar eru þaktar olíuviðarrunnum og vín- görðum. Frá því á dögum Rómverja hefir þetta svæðið verið mjög þjettbýlt og nú búa þar yfir 150 manns á hverjum ferkílómetra. —' Stærsta borgin er Reus (30 þús. íb.), miðstöð vefnaðariðnaðarins. En höfuðborgin er Tarragona (á stærð við Reykjavík). Hún var til löngu áður en Rómverjar komu til Spánar, og enn sjást leifar hinna hrikalegu varnarmúra, sem bygðir voru umhverfis hana á forsöguöldinni. — En Rómverjar geiðu Tarraco að hernaðar- og menningarlegrí miðstöð sinni á Spáni, og blómgaðist þá svo hagur hennar, að fáar borgir stóðu henni á sporði. En á öllum sviðuin hef- ir borginni hnignað stórum, þótt íbúar hennar stundi enn töluverð- an iðnað og verslun. Þar eru búin til alþekt matvín, áfengi og krydd- vín, eins og t. d. hinn frægi ,líkör‘, sem Chartreuse-munkarnir halda áfram að búa þar til, eftir að þeir voru útlægir gerðir iir Fralcklandi. Verslunin fer æ minkandi eins og í öðrum hafnarborgum í grend- inni, t. d. Salou og Combrils, sem áður voru siglingamiðstöðvar. — Stórborgin Barcelona er svo ná- lægt, að verslunin hlýtur meir og meir að færast í hennar hendur, enda hafa þar nú allar stærstu skipalínur bækistöðvar sínar. II. Barcelona er stærsta borg Spán- ar. Með úthverfum telur hún rúma miljón íbúa, og af þeim eru um 250 þúsundir starfandi í verk- smiðjum hennar. Hún stendur á eiði milli ánna Besos og Llobregat. Við ósa þeirra eru sjóböð (Bar- celonetta = litla Barcelona). Sunnanvert við bæinn stendur 200 metra hamraberg við sjóinn, hið illræmda Montjuich. A því er kastali sem notaður hefir verið fyrir fangelsi; þar hafa pólitískir fangar verið pyndaðir og lcvaldir til dauða með sömu píslartækjum og áður voru notuð í þágu trúar- rannsóknanna (Inquisición). Fyrir ofan borgina er fjallið Tibidabo (500 m. hátt). Þangað má komast í strengbraut. Þaðan má fá gott útsýni yfir borgina og hið blóm- lega hjerað í kring. Þó er sjald- gæft að maður geti verið svo hepp inn með veður, að ekki sjé mistur í lofti og mökkur yfir þjettustu verksmiðjuhverfunum. Tibidabo! Þetta nafn er merki- lega til orðið, ef leggja skal trúnað á þá upprunaskýringu, sem Kata- lónar gefa því. Þeir segja nefni- lega fullum fetum, að upp á þetta fjall hafi Satan leitt Jesú til að sýna honum öll ríki veraldarinnar og ]>eirra dýrð og freista hans með þessum orðum: tibi dabo im- perium mundi = jeg mundi gefa þjer völd yfir öllum heimi o. s. frv.) Til minningar urn þennan raerkilega atburð hafi svo hinir trúuðu Katalónar skírt fjallið „tibi dabo“ — þótt öll setningin, senni- lega full löng og óþjál í meðferð- inni, þegar að því er gætt, hvað þeir þurfa oft að nefna þetta fjall. Þeir halda eins mikið upp á það og heilagan anda. Og hjeraðið í kring finst þeim eftir þéssu svo ósambærilega fagurt, að enginn blettur á jarðríki átti að vera betur til þess' fallinn að freista sonar Guðs. Það er þriggja tíma ferð frá Barcelóna til hins einkennilega fjalls Montserrat, sem svo er kall- að vegna þess að tindar þess eru margir og keilulaga og tilsýndar eins og tennur í sög. Upp í því, í 2500 feta hæð, er frægt klaustur og bænahús með Maríulíkneski, sem gerir kraftaverk, að sögn. — Koma þangað árlega um 100 þús. pílagríma. í Barcelona er verið að byggja gríðarmikla dómkirkju, sem á að heita í liöfuð heilagrar þrenningar. Það tæki aldrei enda, ef maður ætti að fara að telja ujij) alt, sem vert er að sjá í borginni, því að það er svo mikið og margt. — Hinar svonefndu „ramblas“, þess- ar breiðu, sólríku götur, faldaðar pálmum og sígrænum laufviðum, eru til beggja handa prýddar glæsilegum stórhýsum, þar sem nöfn stórkaupmannanna, bank- anna og skipalínanna standa utan á með gleiðu gullletri eða iðandi ljósstöfum. Umferðin er hvarvetna geysimikil; sporvagnar, stræta- vagnar og bílar bruna látlaust fram og aftur. Hvergi næstum óvinnandi maður. Kaffihúsin fá- menn, nema á morgnana og seinni part daga eftir skrifstofutíma. — Þegar heitt er, fá menn sjer þá „horchata“ = einskonar melónu- safa. Vín er yfirleitt drukkið mjög í hófi. Flestir útlendingar, sem komið hafa til Barcelona munu kannast við Kolumbusar-súluna niður við höfnina og hið ágæta útsýni, sem fæst þaðan yfir fjölförnustu stræti borgarinnar: Rambla del Centro og San José, þar sein standa vöru- hús hins stóra firma ,,E1 Siglo“, og Vía Layetana; nokkru austar getur að líta hinn fagra Cindadela- skemtigarð með tjöruum, fossum og gosbrunnum, og inni í miðri borginni aðaltorgið, sem kent er við Katalóníu. Katalóníutorgið er hjarta borgarinnar, á sinn máta eins og Puerta del Sol er mið- punktur Madridar; þar er mesta umferðin og þaðan liggja flestar sporvagnalínurnar. Hingað til hefir Barcelona verið óspænskust allra spænskraborga og miðstöð sjá Ifst jórnarhreyfingar- innar katalónsku; eins og áður hefir verið drepið á hefir húu jafnan unað illa sterkri miðstjórn í Madrid. lín síðan Primo dc Rivera tók við stjórnartaumunum, hefir hann gert alt, sem á hans valdi stóð, til að kveða niður metnaðarkritinn milli borganna, og hefir tekist það með því að stilla svo til, að Barcelona yrði nokkurskonar útvörður spænskrar menningar og merkisberi spænskra áhrifa erlendis. Ein stórfenglegasta tilraunin í þá átt er heiinssýningin, sem nú á að fara að opna eftir margra ára erfiðan og kostnaðarsaman undir- búning. Ekkert hefir verið sparað til að gera hana sem best úr garði. Þessi sýning á að standa yfir frá maí-byrjun og fram í des- ember. Munu þeir, sem hana sa*kja, enga fýluför fara. Þeir munu geta

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.