Lesbók Morgunblaðsins - 03.05.1931, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 03.05.1931, Page 5
LESBÖK MORGUNBLAÐSLNS 133 Zamora, forseti bráðabirgðastjórnarinnar í Spáni, ávarpar lýðinn. Til hœgri kröfuganga í Madrid, ' Frá Madrid þegar konungur sagði af sjer. Sporvagnarnir voru notaðir sem ræðustólar fyrir hrifna lýðveldissinna. Spánverja burtu frá ættjörðinni tH Frakklands. Eftir komu sína til París ljet Alfons tilkynna, að hann hefði ekki afsalað sjer neinum af rjett- indum sínum. Hann kvaðst aðeins vera farinn úr landi um stundar sakir. Þangað til fyrirhugað þjóð- þing hefði ákveðið, hvort Spónn ætti framvegis að vera lýðveldi eða konungsríki sem fvr. Stjórn Zamoras viðurkennir, að Alfons hafi ekki formlega afsalað sjer völdum. en Zamora segir að það hafi enga þýðingu. Mörg og mikilvæg hlutverk liggja fj’rir stjórn lýðveldismnmm á Spáni. Umskifti frá einræði til þi.ngræðis eru oftast miklum • : fið- leikum bundin, ekki síst þegar mikill hluti þjóðarinnar hefir lít- inn eða engan pólitískan þroska; en þannig er ástatt á Spáni. — Þar að auki eru ráðherrarnir í stjórn Zamoras ósammála um margt. Stjórn lians er skipuð bæði borgaralegum lýðveldismönnum og sósíalistum. Baráttan á móti kon- ungsvaldinu hefir sameinað þá að undanfömu. En geta þeir haldið saman nú þegar þeir eru komnir til valdai Margar hætiur eru búnar hinu unga spánska lýðveldi, m. a. af hálfú konungssinna. Konungurinn hefir enn marga fylgismenn. En þó virðist sem stendur ólíklegt að konungssinnar muni vinna sigur. Margir óttast, að á Spáni muni lara eins og í itússlandi: Fyrst einveldi, svo frjálslynt lýðveldi og loks ,,rautt“ einræði. Verkföll hafa verið gerð í ýmsum borgum, síðan lýðveldið var sett á stofn, og kommúnistar hafa víða stofnað til alvarlegra og blóðugra óeirða. En stjórninni tókst fljótlega að bæla óeirðirnar niður og sem stendur er friður í landinu. En rússnesk- ir erindrekar hafa verið sendir til Spánar, til þess að undirbúa „bylt- ingu öreiganna“. Mesta hætta á Spáni er þó sem stendur sú, að spánska ríkið kunni að iiðast í sundur. Macia forseti lýðveldisins í Kataloníu hefir lýst því yfir að Katalonía sje sjálfstætt ríki í sambandi við spánska ríkið.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.