Lesbók Morgunblaðsins - 05.07.1931, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 05.07.1931, Page 6
206 LESBÓK MORGrUNBLAÐSINS úr því. Þar voru ávalt einliverjir þeir menn, sem undir eins gerðu þær dillandi fjörugar. Má þar t'il nefna ekki síst Mr. Vjohnston sjálfan ineð hans óbrigðulu, hæg- látu kýmni. Og hversu miklir menn og frægir sem þarna voru meðal fundarmanna, þá gat þó aldrei neinn komist lijá því að finna, að þar var miðdepilMnn sem Mr. Johnston var. Með allri ani liógværð og yfirlætisleysi hafði liann eitthvað ])að við sig, ■sem því olli. Fyrir okkur íslend- i.iga var ef til vill sjerstök á- stæða til þess að finna þetta sök- um þeirrar tilviljunar, hve mjög honum svipar til Jóns Sigurðsson- ar að útliti, eftir því sem myndir af Jóni liafa fest svip hans í liuga okkar. Á fundinum, sem haldinn var í janúar 1919 til þess að fagna sjálfstæði íslands, mint- ist Sir Henry Howorth, nafntog- aður sagnfræðingur, Jóns Sigurðs- sonar og sagði. um hann að hann hefði verið „undoubtedly one of tihe greatest characters of tlie nineteenth century“ (eflaust einn af mestu mönnum nítjándu ald- arinnar). Þá leituðu víst öll augu þangað sem Johnston sat í for- setastólnum. Johnston er tiguleg- ur maður á velli, eins og sagt er að Jón liafi verið. Það segir sig sjálft, að af öllum norrænum þjóðum eru það sjer- staklega við Islendingar, sem hof- um ástæðu til þess að vera þakk- látir fyrir starfsemi Víkingafje- lagsins, og sem ættum því að stuðla að því eftir megni, að hún þurfi ekki að leggjast niður. En það er kunnugt af grein þeirra Halldórs og Vilhjálms, að sú liætta vofir nú yfir sökum fjár- hagsö. iugleika fjelagsins. Okkur má að „jálfsögðu vera þökk á bók- mentah gri starfsemi þess, en þó lteld j 'g að hitt sje meira um vert, hve mjög það vinnur að því að glæða velvild í okkar garð. Það þarf ekki mikinn skilning eða skarpleik til þess að gera sjer það ljóst, hve mjög. okkur ríður á að halda vináttu Breta, og ekki að vita nema skjótt kunni að því að reka, að við höfum hennar sjer- staka þörf. Þetta útaf fyrir sig held jeg að sje ærin ástæða til þess, að við látum okkur hag Víkingafjelagsins miklu skifta. Þetta þykist jeg líka liafa sönnun fýrir að sje fleirum ljóst. Jeg hefi nýlega gefið leyfi til þess, að telja mætti mig umboðsmann fje- lagsins hjer á landi, og af þeirri ástæðu voru mjer send nöfn þeirra manna, sem orðið höfðu við áskor- un þeirri, er að ofan getur, og gengið í fjelagið. Um suma þess- ara imanna- dylst mjer það ekki, að þeir muni hafa gerst fjelagar fremur af þjóðræknislegum á- stæðum heldur en áhuga fyrir sögulegum, bókmentalegum og málfræðislegum rannsóknum fje- lagsins, þ. e. að þeir hafi gert það fyrir þá ástæðuna, sem jeg tel meira um vert, þótt ekki vilji jeg gera lítið úr liinni. Jeg vona að íslenskum meðlim- um fjölgi enn, og þeir sem hafa hug á að ganga í fjelagið mega snúa sjer til bókaverslunar minnar í Austurstræti 4, Reykjavík, um allar upplýsingar. Vegna þess að sumir kunna að ætla að hjer sje um tekjulind að ræða fyrir mig og að grein þessi sje því auglýs- ing, skal jeg geta þess, að svo er ekki. Þetta bakar mjer bæði fyr- irhöfn og nokkur útgjöld, en tekj- ur veitir það mjer alls engar Jeg tók að mjer umboðsmenskuna vegna þess, að mjer ]>ótti með öllu ósæmilegt að skorast undan því. Af því sem að ofan hefir verið sagt, er það augljóst, að Mr. John- ston ihefir unnið merkilegt starf og óeigingjarnt í þágu þessa lands. Hins er enn ógetið, að ávalt hefir hús hans staðið Islendingum opið og jafnan hefir hann verið þess albúinn að greiða götu þeirra á allan hátt. Hann hefir fórnað starfskröftum sínum í þarfir þess fjelagsskapar, sem við megum mikils meta, og hann hefir fyrir það vanrækt að sjá sínum eigin hag borgið. Allar Norðurlanda,- 'þjóðir — íslendjingar' Ííka i— hafa sæmt hann heiðursmerkjum og Norðmenn búsettir í Lundún- um hafa að sögn oftar en einu sinni fært honum rausnarlegar fje- gjafir. Nú er svo komið fyrir hon- um (jeg fer hjer eftir sögn ná- kunnugs manns og mjög mikils- metins) að eigur hans eru ger- samlega þrotnar og tekjur hans víst nauðalitlar. Hann er svo ald- urhniginn maður, að þótt karl- nvenskan liafi verið mikil, hlýtur r,ú starfsþolið að fara að láta undan. Þannig er þá umhorfs á æfikvöldi lians eftir að hann hefir í fjóra tngi ára' fórnað kröftunum í'yrir hugsjón sína og hagsmuni rnnara. Þá væri sómi íslands meiri og liagur ])ess þó óskertur ef Al- þJngi sýndi þann höfðingsskap að ákveða honum einihver eftirlaun ])ann tímr. sem liann á enn ólifað- an. Að gera svo, hygg jeg að mundi reynast eins viturlegt eins og það væri drengilegt og vel við- eigandi. Pyreneskagi hefir nú losað sig við konunga sína, og dvelja- þeir báðir landflótta í Englandi. Hjer er mynd af Manuel, fyr- verandi konungi í Portugal og Ágústu Viktoríu fyrverandi dr tn- ingu. Myiidin er tekin þegar kappreiðarnar fóru fram milli Hyde Park og Richmond. Er Man- uel á flestum kappreiðum og veðj- jr óspart. Skrifstofustjóri: Hver er það sem öskrar svona' þarna á innri skrifstofunni. — Það er Nielsen — hann er að tala við Gautaborg. — Farið þjer inn til hans og segið honum að nöta talsímann.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.