Lesbók Morgunblaðsins - 05.07.1931, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGrUNBLAÐStNS 207
Seimsta. Atlantshafsflug'ið. Til hægri á myndinni sjest Daninn Höjriis, sem nýlega flaug frá
New York til Kaupmannahafnar í flugvjeliuni „Liberty“. Til vinstri handar er mynd af Þjóðverj-
cnum Otto Hiliig, sem var far|>egi hjá lionum. Punktalínan sý.úr þá leið sem Höjriis ætlaði sjer
að fljúga, en haiin viltist og tók land fyrst á Spáni og flaug svo jiaðan norður yfir Frakkland og
Þýskaland. á'egnaí.þess að sú leið er mikið lengri, varð hann uppiskroppa að bensíni og varð að
ienda í Krefeld og gisti ]>ar um nótt. Ef hann hefði ekki vilst þetta, mundi hann hafa. flogið í
einum áfanga til Kaupmannahafnar.
Ríkir betlarar.
Giacomo Spinelli var alkunn-
ur betlari í Milano. Elstu íbúar
borgarinnar mundu eftir jjví að
hann var að betla j>egar jieir voru
börn. A ákveðinni stundu á hverj-
um degi tók hann sjer stað fyrir
framan einliverjar kix-kjudyr og
hóf einróma söng — beiðni unx
ölmusu og nokkrar guðrækilegar
setningar fýlgdu. Hver maður
gerði sjer J>að að skyldu að
víkja einhverju að honum.
Enginn vissi neitt annað
um hann en að Iiann væri fátæk-
ur og guðhræddur maðui*, og
heilsuveill. Hann klæddist fádæma
ræflum og var svo lasburða að
hann komst ekkert nema á hækj-
um sínum.
Einn góðan veðurdag andaðist
Giacomo Spinelli. Menn rákust á
hann dauðan í greni sínu, ofur-
lítilii kompu í hálfhrundu hxxsi í
xitjaðri borgarinnar. Þar hafði
Ixann átt heima mestan hluta æf-
innar. Engum kom til hugar að
liann mundi eiga neitt, og j>ess
vegna var hann grafinn á bæjai*-
ins kostnað, en fatagörmunum
hans var fleygt á öskuhaug. Að
gömlum vanda leituðu sorphreins-
unarkarlarnir vandlega í fata-
görmunum, og fundu j>ar innan
fóðurs 30.000 líra.
f Englandi er ótrúlegur sægur
betlara, því að hvergi eru gefnar
jafn miklar ölmusur og þar. Og
freistingin að gerast betlari verð-
ur oft öllu öðru yfiraterkari, hjá
þeim sem ekki eru staðfastir. Um
1800 fjell jafnvel nafnkunnur
málafærslumaður í Brighton fyrir
}>eirri freistingu. Hann hjet .Tames
Cranage. Hann var kvæntur mað-
ur og þótti konu lians það und-
arlegt ihvað hann gerði sjer tíðför-
ult til Lundúna. En hún hugsaði
sem svo, að hann hefði þar svo
rnörgum málum að sinna, að hann
yrði jafnan að vera j>ar með ann-
an fótinn. í hvert skifti sem
Cranage koin heim, ljek hann á
alls oddi og færði konu sinni og
börnum smágjafir. En einu sinni
kom hann ekki heim aftur. Kona
hans tilkynti hvarfið og fór sjálf
til Lundúna að grenslast um hann.
Mönnum kom helst til hugar að
hann mundi hafa farist af slysi,
eða verið myrtur, og þess vegna
sýndi lögreglan frúnni myndir af
öllum þeim líkum, sem fundist
höfðu frá því að hann hvarf, og
enginn hafði þekt. Og lögreglunni
til mestu undrunar jxekti konan
mann sinn á einni myndinni. Hún
var af líki nafnlauss betlara, sem
menn höfðu fundið í Thames.
Nánari rannsókn leiddi í ljós, að
Cranage hafði um mörg ár verið
betlari í Lundúnum, og hafði hon-
um tekist að græða margar þxis-
undir sterlingspunda á þann hátt.
Var sú atvinna miklu betri held-
Ur en málfærslan. En að lokum
höfðu aðrir betlarar komist að
því hver hann var } raun og veru
og í hefndarskyni höfðu þeir
drekkt honum í ánni. Mál }>etta
komst inn í jxingið, Jxví að út at'
því kom einn þingmaður með til-
lögu um j>að, að betl væri harð-
lega bannað í landinu, en sú til-
laga náði ekki fram að ganga.
Madrid er einnig sannkallað
Gosenland betlara. Nærfelt 10.
hver maður í borginni lifir á þeirri
,,atvinnu“. Og meðal Jxeirra merk-
isstaða, sem ferðamönnum eru
sýndir, er stórhýsi nokkurt í fá-
tækrahVerfi boi*garinnar, sem
kallað er „betlarahöllin“. Ilún
hefir nú staðið auð um nokkura
áratugi. Sá, sem bygði hana hjet
Daníel Cortyz og hann hafði þá
atvinnu að betla fyrir utan kirkj-
urnar í Madrid. Hann var uppi um
miðja 18. öld og lionum tókst að
betla saman rúmlega miljón pes-
eta. En hann rak líka betlið í
stórum stíl. Hann hafði í þjónustu
sinni rúmlega 50 vansköpuð og
fötluð börn til að beitla, og allir
aðrir betlaraj* í Madrid urðxi að
gjalda (honum skatt, sem hann
sjálfur ákvað eftir ]>ví hve vel
Jxeim liafði orðið ágengt. Hann
var hinn viðurkendi konungur
betlaranna í Madrid.
En einhverju sinni fanst hann
myrtur í húsi sínu. Hann bjó ]>ar
aleinn. Alment var álitið að hinir
betlaramir hefðu myrt hann, til
þess að losna undan ánauðaroki
hans.