Lesbók Morgunblaðsins - 05.11.1933, Blaðsíða 8
"44
LESBÓK MORGBNBLAÐSINS
E attur Napóleons. Að stríðinu
loknu kröfðust Frakkar þess að
Fjóðverjar skiluCu aftur öllum
sigurmerkjum, er þeir höfðu tekið
af þeim í styrjöldunum 1914—18
og 1870—71. Þar á meðal var
hattur Napoleons og heiðursmerki.
En þeir gripir hurfu þá úr her-
gagnasafninu í Berlín og vissi
enginn hvað um þá haíði orðið. Nú
nýlega voru gripirnir sendir her-
gagnasafninu, og veit enginn hvað-
an þeir koma-
Yngsti kvikmyndaleikari í heimi
er drengurinn Le Roy. Hann var
aðeins 8 mánaða gamall, er hann
ljek á móti Maurice Chevalier.
Hann er í miklu afhaldi hjá þeim,
sem kvikmyndaleikhús sækja og
fær of fjár fyrir að leika. Ótelj-
andi brjef berast honum daglega
frá aðdáendum hans, og sjest hann
hjer sitjandi í brjefahrúgunni.
5mc?lki«
— Pabbi, á strúturiim egg.'
— Já, auðvitað, þetta er fugl.
— En brotna þau ekki altaf
þegar þau detta úr svona mikilli
hæð?
Rikiserfingi Jugoslaviu.
Vdlu litlu þótti afar slæmt að
láta baða sig, en mamma hennar
segir:
— Á meðan þú vilt vera heima
l’já pabba og mömmu, verðvir þú
að láta þjer lynda að vera böðuð.
— Þá skal jeg bara segja þjer
það, að jeg gifti mig hið allra
fvrsta.
Pjetur prin.s, átti nýlega 10 ára
afmæli. f tilefni af því var haldin
mikilfengleg hersýning í Belgrad-
Hjer á myndinni sjest krónprins-
inn og drotningin móðir hans, þar
sem þau eru að horfa á hersýn-
inguna.
— Læknir, haldið þjer að jeg
g*di orðið 90 ára.
— Hvað eruð þjer gamall?
— Fertugur.
— Drekkið þjer?
— Nei,
— Revkið þjer?
— Nei,
— Spilið þjer?
— Nei,
— Hlustið þjer á útvarp?
— Nei,
— Til livers skrattans viljið
þjer þá lifa svo lengi?
Blaðamaður.- Kærið yður ekkert
um það þótt þjer sjeuð í öngviti
— þjer getið lesið í blaðinu mínu
í fyrramálið hvernig hnefaleikur-
inn hefir gengið
— Hagskýrslur segja, að þriðji
hver maður í Ameríku eigi bíl.
— Þá skil jeg ekkert í því sagði
liún, Jivers vegna þeir eru að smíða
fjogurra og sex manna bíla!