Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.1935, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.1935, Blaðsíða 2
2§8 LESB^K MORGUNPrAPStN§ inn í upplýst göng, það voru „efri hæðirnar“ í þessu völundarhúsi. Von bráðar vorum við komn- ir alla leið niður, rúmlega 600 metra, og stigum út. Lágu þar göng í margar áttir, hve löng var ekki hægt að sjá, en af næstu „hæð“ fyrir ofan, á rúmlega 500 metra dýpi, náðu göngin saman við göngin frá hinum brunnun- um, og mátti fara þar á milli og upp um fjarlægasta brunninn, sem er 12 km. í burttí. Við brunninn, þar sem göngin kvíslast út í allar áttir, er eins og víður og hár salur, og er rept með stálbogum rauðmáluðum, og svo var fremst í göngunum, en þegar innar dregur og göngin þrengjast og lækka, er rept yfir með trje. Fremsti hlutinn í einum göng- unum var talsvert hærri og víð- ari en hin göngin, og hafði þar verið útbúinn kvikmyndasalur með stólum og tjaldi, eins og í hverju öðru kvikmyndahúsi. Eini munurinn var sá, að sýningar- vjelin var á bak við tjaldið og sáum við myndina í gegn. Og nú var okkur boðið í bíó. Var sýnt á myndinni, hvernig kolavinslan fer fram. Við sáum námumennina, Þetta eru hinir svonefndu há- ofnar, sem get- ið er um í grein- inni. vopnaða borum, sem reknir eru með samanþjöppuðu lofti, vinna bergið, koma fyrir stoðum og röft- um, tU þess að verjast grjóthruni. Síðan sáum við þá losa kolin, og hvernig kolin voru flutt á bandi, sem rann fram hjá námumannin- um, að kolavögnunum, sem renna á spori um göngin. Sást greini- lega, að þetta er erfið vinna og óskemtileg, þó að ólíku sje saman að jafna og þá er kolin voru los- uð með venjulegu jarðhöggi og engin tök voru á loftræstingu svo langt niðri. En loftræsting var svo ágæt, þar sem við sát- um, að jeg hef aldrei komið í bíó, þar sem loft hefir verið jafn gott. Eftir myndasýninguna Htuðumst við um og skoðuðum námugöngin. Á einum stað sást í mannhæð yf- ir gólfi í kolaæð, en hún var of þunn til þess að gerlegt væri að vinna hana. Þá sáum við farveg þann, sem neðanjarðarvatnið (því þarna er talsverður vatnsagi) er leitt í niður i brunn, en þaðan er því dælt upp á yfirborð jarðar. Er dælan gríðarstór og látin vinna í 13 klst. á sólarhring, en önnur dæla er til vara, ef þessi bilaði, til þess að eiga ekki á hættu, að vatn. flœddi upp í göngin, svo sem verða mundi, ef dælan stöðvaðist í 36 klst. Þegar upp úr námunni kom, vorum við leiddir inn í stóran sal. Þar voru á veggjum upp- drættir af námusvæðinu, og sýnt á þeim, hvernig kolaæðirnar liggja í jörðu og hvernig göngin liggja. Þá sáum við sýnishorn af kolum, sem þar eru grafin úr jörðu; þau eru fernskonar: gas- logakol, gaskol, fitukol og ant- hrazitkol. Þrjár fyrstnefndu teg- undirnar eru notaðar til koks- og tjöruframleiðslu, en dýpstu kol- in eru ljelegust, og eru þau mul- in og pressuð í töflur. Þar var og sýnd koitjara, fjöldi tegunda, og hvað úr henni er unnið, en það er svo ótrúlega margvíslegt, að of langt yrði upp að telja. í öðrum sýningarsal var sýnt ýmislegt af framleiðslu stálsmiðj- unnar, bæði á myndum og sýnis- horn af smíðisgripunum. Hefir fyrirtæki þetta viðskifti um allan heim og smíðar jafnt stærstu hengibrýr, flotkvíar, skip og vjel- ar, hverju nafni sem nefnast, og hinn mjósta stálþráð, gaddavír, hnoðsaum og þessháttar. Kolanámugöng. Hin tröllslegu stóriðjufyrirtæki úti í löndum eru svo gersamlega frábrugðin íslenskum framleiðslu- háttum, að því verður ekki með orðum lýst. Þau eru heill heimur út af fyrir sig, sem venjulegir ferðalangar eiga engan kost á að kynnast. Þetta litla sýnishom, sem við fengum í Oberhausen og í einni af verksmiðjum Siemens og Halske í Berlín, af vinnuháttum vjelamenningarinnar, þótti mjer einna merkilegast af því, sem fyr- ir augun bar í þessari ferð.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.