Lesbók Morgunblaðsins - 22.03.1936, Qupperneq 8
06
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
„Dannebrog“ fellur úr lofti.'
Einhver stær&ta myndin á vorsýningu „Den Fries“ verður
frummynd Kræsten Iversens prófessors að loftmálverki í krýning-
arsalinn í Christiansborg. Frummyndin sjest hjer að ofan og er
af orustunni hjá Lyndanisse í Eistlandi 1219, þegar sögnin hermir
að Dannebrog hafi fallið úr lofti niður í her Dana. Til hliðar við
myndina stendur Iversen prófessor og má á samanburði sjá hve
stór hún er.
Smœiki.
— Jeg hefir haft þá ánægju að
kynnast konunni yðar.
— Sögðuð þjer ánægju? Þá
hefir það ekki verið konan mín.
*
Hún: Elskan mín, nú verðurðu
að muna eftir því að senda mjer
brjefspjöld frá hverri höfn, sem
þú kemur á, því að bróðir minn
safnar frímerkjum.
Kerling: Eftir hvetjum heitir
drengurinn þinn?
Vinnukona: Jeg ljet hann heita
Eyólf eftir húsbóúdanum, en jeg
þurfti ekki að láta hann heita
Eyólf, je'g hafði nóga aðra Eyjólfa
til að láta heita eftir. Jeg átti
afa, sem hjet Eyólfur, jeg átti
bróður, sem hjet Eyólfur og
druknaði tvisvar fyrir utan hann
Eyólf á Grímslæk.
*
HER BETAUS HÖJESTE
PRI5ERFOR GULD
„Gull borgað hæsta verði hjer“.
Strákur kemur með gullfisk.
— Þú skalt ekki vera hrædd,
Anna, jeg held við stigann að
neðan.
— Já, og pabbi eT við efri end-
ann.
Gestur: Þegar jeg var í höfuð-
borginni eyddi jeg 25 krónum í
drykkjupeninga.
Þjónn: Hve mörg ár voruð þjer
þar?
*
— Mundu það að með hverju
ölglasi, sem þú drekkur, styttirðu
líf þitt um viku.
— Það er ómögule'gt. Þá ætti
jeg að vera dauður fyrir mörgum
þúsundum ára.