Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1936, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1936, Blaðsíða 2
314 hljóðar svarið. Spiridon Luis var Grikkinn, seni da<rinn áður, við setningu Olympiuleikanna, færði Adolf Hitl er olíuviðarsreifr að prjöf. Olíu- viðarsveigurinn var frá hinu helga Olympsfjalli og var gjöf grísku þjóðarinnar til ríkiskanslarans þýska. Hann var tákn friðar og einingar, — ekki aðeins milli þess- ara tveggja þjóða, heldur á milli allra landa og allra þjóða, sem þátt tóku í leikunum. Þýska þjóðin heiðrar Luis. Spiridon Luis, þessi fátæki gríski bóndi — var boðsgestur þýska ríkisins á Olympíuleikunum í Berlín. Og það var hátiðlegt augnablik þegar .hann við setn- ingu leikanna kom inn um mara- þonhliðið með olíuviðarsveiginn í hendinni, og þó enn hátíðlegra þegar hann stóð augliti til aug- lits við einvaldinn þýska og biður hann taka mót sveignum, sem friðarósk allra landa og allra þjóða. En hver er Spiridon Luis og hví er honum fengið svo mikið hlut- verk í hendur? Það er einn einasti dagur, — eitt stutt atvik úr lífi þessa manns sem getur gefið fullnægjandi svar við báðum þessum spurningum. En til þess verðum við að hverfa fjörutíu ár aftur í tímann, og hverfa suður til Grikklands árið 1896. Maraþonhlaupið. Arið 1896 þegar Olympíuleikarn ir voru endurvaktir og ákveðið var að halda þá í Aþenu, — höf- uðborg Grikklands, varð þjóðar- fögnuður um endilangt Grikkland. Hver einasti Grikki fór að hafa áhuga fyrir íþróttum, hverrar stjettar sem hann var og hvort sem hann bjó í sveit eða við sjó. Allra mestan áhuga höfðu menn þó fyrir maraþonhlaupinu, hinu 42,2 km. langa hlaupi sem átti að fara fram á milli Maraþon og Aþenu og sem átti að heyja til minja um hið frægasta allra hlaupa, — maraþonhlaupið, þegar hlauparinn færði Aþenubúum fregnina um sigurinn við Maraþon. Þetta var erfiðasta og veigamesta LESBÓK MORGUNBLAÐSINS þrautin á Olympíuleikunum og jafnframt sú þrautin sem mest og ákafast var barist um. Það var meiri sigur að vinna marþonhlaup ið eitt heldur en allar aðrar íþrótt- ir leikanna til sainans. Hinsvegar stóð mönnum uggur af þessu langa hlaupi. Eini mað- urinn sem hafði lilaupið þessa leið síðan sögur liófust, fell niður dauður á áfángastaðnum. Var þetta hlaup ekki ofraun fyrir mannlegan mátt? Voru ekki líkur til að hlaupararnir annað hvort gæfist upp á leiðinni eða dytti niður dauðir við endamarkið ? Olympíunefndin var dálítið hik- andi þegar hún ákvað marþon- hlaupið. Geitnahirðirinn. Þann 28. mars. 1896 fóru 25 menn frá ýmsuin löndum til Mara- þon til að taka þátt í maraþon- hlaupinu sem átti að hefjast þar daginn eftir og enda á leikvang* inum í Aþenu. Einn hlauparanna helt sig altaf afsíðis, því hann var óframfærinn og óvanur að um- gangast menn og fanst hann ekki eiga samstöðu með þessum frægu hlaupurum sem voru víðfrægir um þvera og endilanga jörðina. Þessi óframfærni maraþonhlaup- ari var grískur geitnasmali, óþektur og einmana, sem öllum stóð á sama um og enginn gat treyst til neins. Nafn hans var ógrískt og óvenjulegt, því hann hjet Spiridon Luis, en þó mun ekki nokkur Grikki hafa verið grískari í lund heldur en einmitt hann. Spiridon Luis var sjerstæður meðal íþróttamanna, þeirra venju- legu íþróttamanna, sem lifa vegna íþróttanna og elta met. Hann var fæddur í sveit, alinn upp í sveit og hafði aldrei komið til nokkurs stærri bæjar. Hann vissi bókstaf- lega ekkert um íþróttir, hafði aldrei horft á íþróttakappleik, hafði aldrei hlotið neina tilsögn í íþróttum, aldrei lesið íþróttabæk- ur nje blöð, aldrei borið við að æfa sig fyr en honum hafði dott- ið í hug að taka þátt í maraþon- hlaupinu, og hann vissi ekkert um bætiefni, meltingu eða heilsu- fræði og því síður um nudd eða böð. Hann var ekkert annað en óbreyttur hjarðsveinn uppi í sveit, hæglátur feiminn, ómentaður og óþektur sveitapiltur, sem gætti geitna með frábærri samviskusemi og frábærum dugnaði. Er erfiðara að hlaupa uppi menn en geitur? Spiridon Luis hafði aldrei tekið þátt í íþróttakappleik og aldrei hlaupið í kapp við nokkurn mann, en hann hafði hlaupið á eftir geitum og oftastnær náð þeim. Hví skyldi hann þá ekki eins geta hlaupið á eftir mönnum? Með þessa óhagganlegu flugu í höfðinu byrjaði Luis að æfa undir hlaup- ið — og æfði á mjög einkennileg- an hátt. Með vínpela í annari hendi en brauð og ostbita í hinni, hljóp Luis eins og bandóð vera út um hagann, hann át þegar hann svengdi, drakk þegar hann þyrsti en lagðist niður og sofnaði þegar hann þreyttist — og svo helt hann áfram að lilaupa þegar hann vaknaði aftur. Þannig æfði Spiri- don Luis lilaup. Hinn langþráði dagur, 29. mars, rann upp bjartur og heitur, mun heitari en heitustu sumardagar eru hjer á íslandi. Stundvíslega kl. 2 e. h. ríður sprettskotið af og hlaup- ararnir 25 leggja af stað. Luis skokkar rólegur og ánægður í miðj um hópnum og hugsar með sjálf- umum sjer, að allir þessir menn sem í kring um sig eru sjeu óþekkar geitur sem ætli sjer að hlaupa frá honum. En það er langt síðan að nokkur geit hefir hlaupið Spiridon Luis af sjer, og í dag hefir hann ákveðið að láta það heldur ekki ske. Hitinn vex, hann lamar hlaup- arana og eftir fyrstu tíu rastir hlaupsins eru margir þeirra farn ir að dragast aftur úr svo um mun ar. En hitinn sakar ekki Spiridon Luis, hann er vanur hitanum, þekkir meira að segja ekki aðra veðráttu en hita — og aftur hita. Hann hleypur áfram tíðum ljett- um skrefum, áhyggjulaus og á- nægður eins og þetta sjeu þægustu &eitur jarðarinnar sem hann er nú að fást við. Og hann hleypur meira að segja á undan þeim. Luis er fyrstur. En svo fara „geiturnar“ að sýna

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.