Lesbók Morgunblaðsins - 27.06.1937, Blaðsíða 1
or0MMÍ>Ia!>sks
tölublað.
Sunnudaginn 27. júní 1937.
XII. árgangur.
i
I
V
.♦♦.♦♦.♦♦.♦♦*♦♦♦♦♦♦♦♦.♦♦♦♦♦♦♦♦.♦ »,♦♦♦♦♦♦* •,•*,♦♦,♦♦,♦♦,• ',**,*VVVV *„•*♦*VV ♦♦**♦**♦♦ VVVVVVV *♦**♦* ♦**♦*v•»♦*.**♦**.****wv v*♦♦ ♦•♦♦**♦*♦♦•♦♦* •♦♦♦♦•♦♦< *♦ • V ♦ ♦ V *♦**♦**♦* *♦*♦♦**♦♦*♦* *,
Styi jöldin á Spáni.
Eftir
Guðmund Friðjónsson á Sandi,
Á blóðvelli Spánar var barist í gær.
Sú bölvirka úlfúð til heimsenda nær.
í veðri kólnar og hríð fer um hauður.
En hvarvetna á pjóðleið er snjórinn rauður.
Á Hjaðninga sviði er herjað í dag
og herneskja kveður l>ar útfararlag.
Sú háreysti er nærgöngul himna sölum
og hljómar í botnlausurn táradölum.
En bræðurnir, frændurnir berast á
þeim banaspjótum, sem oflangt ná.
f lofti bólar á lævísum dauða,
þar leikur flugdreki halanum rauða.
Sú framhleypni er nafnbætur frelsis tók,
hún fór til morðvíga í Lenins brók.
Og ósvinna hin með eitur í gini,
læst andanum þjóna og föður og syni.
Og hvorttveggja sækir nú fylking fram
til frændvíga, járngráum týgjuð ham.
Þar gerist í leynum ’in grátlega saga: '
Að gislum er misþyrmt án dóms og laga.
Og höfð eru á spjótsoddum hálfnakin börn,
hve hræðileg sókn og skelfileg vörn.
Og sifjabönd höggvast í svartnætti, á degi
með sverðseggjum, hertum í eiturlegi.
Og elskhuga sinn grætur unnusta þar
í einvígi grimmu, sem lægra hlut bar
og manninn kona, er morðvargar deyddu,
og manndómur sonu, er gildrur veiddu.
í flakandi sárum er fólksins sverð,
öll foldin að bardagavelli gerð.
Og lævi blandið er loft yfir borgum.
En logarnir vaka um nætur á torgum.
Því herskildi bálvond um hjeruð fer
in herskáa þvervið, sem staðráðin er,
að spara alls engi spellverk í landi,
þó Spánn á höfði í glóðinni standi.
Nú ríkja þau samvalin Oddur og Egg.
í Evrópu er dynjandi benjahregg.
Hve mátternið helvíska er mikilla sanda
og mikilla sæva til beggja handa.
Nú sannast ið fornkveðna: Að Surtur fer
að sunnan og eldinn að mannheimi ber.
Og hersingar eldguðs í hálofti anda
og höfin kafa þær milli landa.
Sú hámenta verðandi heyrir og sjer
þann harmleik sem framinn á jarðríki er.
í öndvegi hálfduldu Eilífðin varir —
á illmensku þjóðanna höggdofa starir.
Guðm. Friðjónsson.
I
X
v
I
!
!
1
I
i
x
1
x
!
!
x
*
X
?
!
!
♦
x
x
x
x
y
x
y
y
X
x
y
X
2
!
!
!
y
y
y
y
X
X
y
y
y
x
y
y
X
X
x
y
y
X
X
y
I
I
Ý