Lesbók Morgunblaðsins - 25.07.1937, Side 1

Lesbók Morgunblaðsins - 25.07.1937, Side 1
Frá Magnúsi helga Orkneyjajarli. Eftir nokkra daga verður haldin 800 ára minningarhátíð Magnús- kirkju helga í Kirkjuvogi í Orkne.yjum. Hefir Alþing'i verið boðið að senda fulltrúa á hátíðina og fór forseti Sameinaðs þings, Jón Baldvinsson, þang- að. Er það sæmd íslendingum, að Alþingi skuli vera heiðrað með boði þessu. En vegna þess að margir lesendur Lesbókar kunna að vera lítt fróð- ir um Orkneyja-jarlinn, þó um hann sje skráð í Orkneyingasögu, er grein þessi rituð. Eftir Guðna Jónsson magister. Seint í þessum mánuði fara fram hátíðahöld mikil í Orkneyjum í minn- ingu þess, að þá eru liðin 800 ár, síðan Magnúskirkja var reist í Kirkjuvogi þar í eyjum. í tilefni af þessu merkisafmæli hefir Alþingi Islendinga verið boðið að senda fulltrúa á hátíðina. Hin veprlep:a steinkirkja í Kirkju vojj-i, sem stendur enn í dagr, var reist til minningrar um Magnús Orkneyjajarl Erlendsson, en þá þóttu fullgildar sannanir vera fengnar fvrir lielgi lians, og helg- ur dómur hans þangað fluttur. Frá Magnúsi helga, jarðtegnum eftir dauða hans og kirkjubyggingunni er sagt í Orkneyinga sögu, sem að líkindum er rituð undir hand- leiðslu Oddaverja í upphafi 13. aldar. Eu h'vernig sem það er, þá er það víst, að hún er alíslensk heimild, og eiga því Orkneyingar íslendingum að þakka svo að kalla alt, sem þeir vita um sína sögu fram á 13. öld. Magnús helgi var sonur Erlends jarls Þorfinnssonar, en kona Er- lends jarls var Þóra Sumariiða- dóttir, Ospakssonar. Móðir Óspaks var Þórdís, dóttir Halls af Síðu. Var Magniis þannig í móðurætt af íslensku bergi brotinn, fimti maður frá Síðu-Halli. Magnús fekk þegar í uppvexti sínum orð fvrir guðrækni og hreinan lifnað. Eftir að hann hafði dvalist við hirð Noregs-konungs og farið síðan til Skotlands og Englands, gerðist hann jarl á Katanesi, og síðan gorði Evsteinn konungur Magnús- son hann að jarli vfir þeim hluta Orkneyja, sem faðir hans hafði ráðið fyrir. Fyrir liinum hluta eyjanna rjeði Hákon Pálsson jarl, og voru þeir Magnús jarl bræðra- synir. Hákon var yfirgangssamur og drotnunargjarn og vildi ráða einn fvrir Öllum eyjunum. Gekk því á ýmsu með þeim frændum, en svo lauk, að Hákon sveik Magnús í trygðum, er þeir höfðu lagt með sjer sáttafund, og ljet höggva hann. Sá atburður gerðist þann 16. apríl árið 1116, sam- kvæmt tali íslenskra annála (lík- lega rjettara 1115). Hafði hann þá verið 7 vetur jarl yfir eyjunum með Hákoni, frænda sínum. Magnúsi jarli er svo lýst: „Hinn heilagi Magnús Eyjajarl var hinn ágætasti maður, mikill að vexti, drengilegur og skýrlegur að yfir- litum, siðgóður í háttum, sigur- sæll í orustum, spekingur að viti, máísnjall og ríklundaður, ör af fje og stórlyndur, ráðsvinnur og hverjum manni vinsælli, blíður og góður viðmælis við spaka menn og góða, en harður og óeirinn við ránsmenn og víkinga; ljet drepa mjög þá menn, er herjuðu á bænd- ur og landsmenn, ljet hann taka morðingja og þjófa og refsaði svo ríkum sem óríkum rán og þýfsk- ur og öll óknjdti. Eigi var hann

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.