Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1937, Síða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
237
Ljóðmæli
Matthíasar.
sjerstök töiusett eintök, á vand-
aðri pappír en hin og: innbundin
í skrautband, og verðlagði þau á
kr. 150.00 hvert. Og fyrir vin-
sældir föður okkar og Magnúsar
sjálfs, tókst honum, að fá góða
menn og ýins bokasöfn til að
kaupa góðan hluta af þessum dýru
eintökum og styrkja með því
Eftir Steingrím Matthíasson
Sá, sem sjer þessa nýju útgáfu
I.jóðmæli Matthíasar Joch-
umssonar. Útgefandi Magn-
ús Matthíasson. Beykjavík
1936.
ngin jólagjöf, sem jeg hefi
fengið um dágana, hefir
nokkurn tíma verið mjer kær-
komnari, en skrautútgáfan af ljóð-
mælum föður míns, sem Magnús
bróðir minn sendi mjer á jólun-
um í vetur.
Af mikilli rausn hefir liann, svo
að segja í einum rvkk, komið þess-
ari nýju útgáfu á markaðinn, al-
gerlega á sinn eiginn kostnað, og
vandað til hennar af mestu smekk-
vísi. Sjálfur verð jeg að játa, að
jeg hafði gugnað, og sömuleiðis
þeir bókaútgefendur, er jeg liafði
snúið mjer til, vegna þess hve
fyrirtækið sýndist áhættumikið.
Við gátum ekki hugsað okkur út-
gáfu allra ljóðanna nema í mörg-
um stórum og dýrum bindum. Og
bvenær gæti almenningur keypt
upplag af slíku bókasafni? Magn-
ús leysti spursmálið á óvæntan
hátt en einfaldan. Hann koin öll-
um Ijóðunum fyrir w einu bindi.
Með ágætri aðstoð Þorsteins Gísla-
sonar ritstjóra tókst honum, að
koma þessu í kring á tveimur
mánuðum og munu fleiri en jeg
hafa dáðst að röggseminni og góð-
um vinnubrögðum. En vissulega
eiga prentararnir í Isafoldarprent-
smiðju sinn góða hluta af þakk-
lætinu fyrir.
í þessari nýju útgáfu eru saman
komin öll sjerstæð kvæði Matthías-
ar, sem vitað er að hann hafi ort
eða þýtt. í einu handhægu biiidi,
sem aðeins er rúmur þumlungur að
þykt, er alt samankomið, sem var
í Östlundsútgáfunni (en hún var
í 5 bindum og hvert. þeirra um
300 bls.), og svo að auki mikið
og nýtt kvæðasafn, sem út af fyr-
ir sig mundi fýlla 3 bindi á við
Östlundsbindin.
Matthíasarljóða í búðarglugga,
eða handleikur haua, mun í fljótu
bragði alls ekki trúa því, að þar
sjeu samankomin öll ljóð Matthí-
asar, heldur mun hann ímynda
sjer, að hjer sje aðeins um nýtt
úrvaj að ræða. En sannleikurinn
er, að þetta eina bindi, samsvarar
nýrri Ostlupdsútgáfu í 8 bindum,
með samtals 2400 blaðsíðum.
Iljer er á 968 blaðsíðum öllu
hinu mikla efni komið fyrir, og
hefir það lánast með því, að letrið
er hæfilega smátt, prentið nokkuð
jijett og pappírinn þunnur, en jió
góður og sterkur. Og ennfremur
er plássið notað vel með því, að
kvæðunum hefir víðast verið tví-
raðað,, en sumstaðar þríraðað á
hverri síðu.
Þetta fyrirkomujag er tel-cið
upp eftir enskum sið, sem margir
munu kannast við, bæði af ensk-
uin biblíum og ljóðabókum enskra
og amerískra skálda.
Þegar athugað er þetta form
bókarinnar og alt efnið, sem lnin
geymir, þá er það hin mesta furða
hve ljóðabók jiessi er lódýr í sam-
anburði við allar aðrar Ijóðabæk-
ur íslenskar. Munurinn er svo
geysilega mikill, að ef tiltölulega
sama verð væri sett á Matthíasar-
Ijóðin eins og ljóðmæli sumra ann-
ara skálda yrði jiað að vera kr.
120.00 eða nálægt því, og mundi
það þykja dýrt, án þess þó að
vera það í rauin rjettri. Magnúsi
var áhugamál, að sem flestum
yrði kleyft að kaupa bókina og
verðlagði hana því eins lágt og
honum var unt, það er á krón-
ur 30.00 eintakið í vönduðp
bandi. En til þess að kljúfa
kostnaðinn, jirátt fyrir lágt verð,
tók hann það ráð, að gefa iit
heildarútgáfuna svo að hún gæti
borið sig. Og það mundi hún nú
vafalaust gera ef salan gengi
fljótt og vel. (Upplagið er 2000
eintök alls). En því miður má
fremur óttast liitt, að salan gangi
seint og verði þá gróðilm sein-
tekinn, eða stórtap á öllu, og væri
sárt að vita að svo yrði.
*
Þar sem jeg hefi átt allmikinn
jiátt í aðdráttum til jiessarar heild-
arútgáfu kvæðanna, er mjer skylt
í jiessu sambandi, að greina nokk-
uð frá því starfi.
Það eru nú rúm 15 ár síðau,
að jeg byrjaði að safnar brjefum
föður míns og um leið þeim mörgu
kvæðum, sem voru dreifð hjer og
þar í fórum ýmsra manna. En
árið 1927 herti jeg á leitinni með
því, að auglýsa í blöðum, aftur og
aftur, eftir þessum gögnum, til
væntanlegrar útgáfu síðar. Heimt-
ur urðu dræmar og lielst með tals-
verðum eftirgangsmunum. Hins
vegar spurði jeg uppi margt gott
hjá hinum og þessum frændum
og fornvinum föður míns og fór
j)á þar á vettvang, sem fjársjóði
var að finna, ef {>eir ekki bárust
mjer upp í hendur. Jeg skrifaði
j)á upp kvæðin eða ljet afrita
brjefin, ef jeg fekk þan ekki
frumrituð. Sumir lágu á þessu
eins og ormar á gulli og jeg sann-
færðist aftur og aftur um að lítið
gagnaði að auglýsa eftir slíkum
skjölum. Menn gefa því varla
gaum, og sumir kæra sig kollótta
og nenna ekki að leita í skúffum
eða í koffortum, iunan um rusl
af sendibrjefum og andstyggileg-
um reikningum, stundum uppi á
hanabjálkalofti. En með því að
koma sjálfur, tókst mjer að setja