Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1937, Qupperneq 7
LESBÓK MORGUNBLABSINS
239
Leikkonan þögla
GRETA GARBO.
að kemur sjaldan fyrir í Ev-
rópu, að frægir menn neiti
blaðamönnum um viðtal, neiti
þeim um að segja þeim álit sitt,
sejrja þeim um hugsanir sínar og
daglegt líf. En í Ameríku er slíkt
eiginlega talið gersamlega ómögu-
legt. Þó er í því sem öðru undan-
tekning, og það er Greta Garbo.
Hún hefir til þessa dags þvertekið
fyrir það, að blaðamaður fengi
nokkurntíma að tala við hana.
Þegar það einstaka sinnum hefir
komið fyrir, að fuiidum hennar
hefir borið saman við forvitna
blaðamenn, og frjettafúsa, hefir
hún annað hvort vísað þeim á
bug all-ókurteislega, eða steinþag-
að. Ekki orð hefir þá komið fram
á hennar varir.
Hvernig stendur á þessu?
Hvernig hefir hún getað haldið
þessu áfram í nærri því tuttugu
ár ?
Mörgum getum hefir verið að
þessu leitt, því að hin einfalda
skýring, sem maður nokkur kom
með fyrir nokkrum árum, getur
áreiðanlega ekki verið rjett, en
hún var sú: „Greta Garbo er svo
heimsk, að menn þora ekki, að
láta almenning fá vitneskju um
það“.
Hin fræga leikkona fór í mál
við mann þenna, Mr. Tully heitir
hann. Það varð til þess, að gera
hann heimsfrægan einn dag, er
nafil hans stóð í stærstu fyrir-
sögnum heimsblaðanna.
En alt fyrir það festu menn
ekki trúnað á þessa skýringu hans.
Frekar getur verið, að menn
faliist á skýringui ritstjóra eins,
er fjuúr tveimur árum sagði:
„Flótti Gretu Garbo frá öllum
blöðum er sói besta auglýsingaað-
ferð, sem nokkrum hefir hug-
kvæmst“.
Greta Garbo var orðin fræg
menn vildu fá að lesa eitthvað um
liana í blöðunum. En hún sjálf
neitaði að segja nokkurn skapaðan
hlut. Þetta varð til þess, að blaða-
mennirnir urðu að leita annara
heimilda en til hennar sjálfrar,
ellegar jafnvel finna upp eitt og
aiinað frá sjálfs síns brjósti.
En sífelt heimta blaðalesendui'
um allan heim að fá skýringu á
því, hvers vegna Greta Garbo er
svona mannfælin, og þá sjerstak-
lega hrædd við blaðamenn. En
þetta út af fyrir sig gefur blöð-
unum tilefni til þess að tala um
þetta mál sí og æ.
Þess vegna fá menn að heyra
um það, hvernig hún forðaðist,
blaðamenn, er hún ferðaðist yfir
Atlantshaf á sænska skipinu
Gripsholm. I hvert skifti sem hún
sá nýtt andlit, sem hún ekki þekti
áður, meðal farþeganna, varð hún
skelkuð og fór í felur. Leitað var
að henni með dunum og dynkjum
á því skipi, sem sagt var, að hún
ætlaði að fara á. En þar fanst
hún hvergi. Undir fölsku nafni og
jafnvel í karlmannsfötum fór hún
þessa ferð yfir hafið. Og þegar
blöðin í Gautaborg voru í marga
daga búin að furða sig á, hvað af
henni hefði orðið, og biðu eftir
lienni með eftirvæntingui, þá var
hún komin til Svíþjóðar fyrir
löngu.
Altaf eru fundnar upp nýjar og
nýjar sögur um það, hve Greta
Garbo elski einveruna, elski föður-
land sitt og hati umgengni við alla
menn.
Einu sinni átti bróðir hennar að
liafa keypt handa lienni stóran
herragarð nálægt Stokkhólmi. í
annað sinn átti hú sjálf að hafa
keypt mikla höll, sem Ivar Krúger
eldspýtnakonungur átti. Þar átti
hún að hugsa sjer að setja upp
leikhús, þar sem leikin væru m. a.
ieikrit Strindbergs. Eitt sinn átti
hún að hafa keypt litla eyju í
Malorcaeyjum, og þar átti hún að
hugsa sjer að byggja stóra höll
uppi á háum klettum, þar sem
hvorki væri gas nje rafmagn,
vatnsleiðsla, útvarp, eða nokkuir
nýtísku tæki.
Síðustu frjettir herma, að ame-
rísk fjölskylda, sem á heima í
Italíu, sje að leita að stað fyrir
hana þar í landi, þar sem hún
geti notið einveru sirtnar.
Fyrir nokkrum árum Var stofn-
að fjelag, til þess að vinna á
móti öllum þeim miklu áhrifum,
sem reta Garbo hafði á kvenþjóð-
ina í Ameríku. Fjelagsmenn litu
svo á, að þetta væri orðið alger-
lega óþolandi.
En þetta varð vitanlega einhver
sú besta amglýsing fyrir . Garbo,
sem hugsanlegt var.
Eitt sinn kom það fyrir að
tveir menn háðu einvígi út af
Gretu Garbo. Það var leikarinn
Mac Kay og blaðamaðurinn Robin-
son. Hvorugur þeirra liafði nokk-
ur persónuleg kynni af Gretu
Garbo. En annar þeirra hafði kom-
ist í hinn mesta geðæsing, út af
því, live mikið veður var gert út
af þessari íeikkonu og vildi vinna
á móti því með öllu móti. En hinn
hafði orðið yfir sig ástfanginn af
þessari ljóshærðui sænsku leik-
konu, sem hann hafði horft hug-
fanginn á í kvikmyndum.
Um ]iað leyti var sagt m. a„ að
Greta Garbo væri svo siðlaus kven
maður, að það væri engin leið að
lofa henni að halda áfram að eiga
heima í Ameríku.
Henni var og gefið það að sök,
að hún hefði kært leikkonuna Lily
Damita fyrir það, að herma eftir
sjer á leiksviðinu.
En skoðun manna á því, að
Greta Garbo notaði þögn sína til
þess að láta bera meira á sjer,
styrktist, þegar hvxn kom aftur xir
Svíþjóðarför sinni. Þá fekk hv'm
tilboð frá vvtvarpsstöðvum í Ame-
ríkvii um það, að henni yrði borg-
aðir 25 þús. dollarar, fyrir það
að koma einu sinni fram í útvarp-
ið og segja: „Jeg er ánægð yfir
því að vera komin hingað aftur“.
Greta Garbo sagði nei. Hún tók
ekki þessu tilboði.
Þessa neitun hennar geta menn
athtigað frá því sjónarmiði, að ef
hún hefði talað gegnum ameríska
útvarpið, héfðu 10 miljónir hlust-
enda heyrt liana. En þessa einu
neitun hennar hafa áreiðanlega
Jesið að minsta kosti 500 miljónir
blaðalesenda ttm allan heim.