Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.1940, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.1940, Blaðsíða 3
LBSBÓK MORGUNBLAÐSINS 299 ursetur, í sumarlangar veiðifarir. Þar hafa þeir haft fyrstu kynni sín af Skrælingjunum og jafnvel átt við þá verslun. Það kemur fyrir ekki ósjaldan, að það finn ast munir af norrænum uppruna og smálíkön af norrænum mönn- um í fornum Eskimóabústöðum alla leið norður undir Thule. Tii þessara veiðifara þurftu Græn- lendingar rambygð skip, enda hljóta þeir að hafa haft allgóðau skipakost alla velgengnistíð ný- lendunnar. Varla er ástæða til að efast um, að þeir hafi sótt trjá- við til Marklands, en svo nefndu þeir land, er þeir uppgötvuðu ein- hversstaðar á austurströnd Ame- ríku. Auk þess er reki mikill á Grænlandi. Höfuðeinkenui hins grænlenska þjóðfjelags var, eins og sjá má á þessuni stuttu lýsingum, að það var sjálfbirgt að flestu, ef ekki öllu leyti, enda var það lífsnauð- syn nýlendunni í einangrun sinni. Kvikfjárræktin og veiðarnar gáfu mjólk og kjöt til matar og skinn og ull til fata, og rekaviður bætti upp skógaskortinn. Potta og pönnur og ílát allskonar gerðn menn úr tálgusteininum græn- lenska, sömu tegundar eins og steinn sá, er skírnarfonturinn í Hólakirkju er gerður úr, og tir horni og beini smíðuðu þeir alls konar búshluti og listiðnað. Járn hafa þeir unnið úr mýrarrauða eins og aðrir norrænir menn. Þó hefir löngum verið hörgull á járni, og mun járn hafa verið mjög eftirsóth vara hjá kaupmönn um, er til landsins komu. Það er táknandi, hversu fátæklegir og þrautslitnir allir járnmunir, sem rústirnar geyma, eru. Margs fleira þörfnuðust Grænlendingar frá Ev- rópu, auk nauðsynjarinnar að standa í andlegu sambandi við umheiminn, að fá fregnir um helstu viðburðina í hinum stóra heimi. En lífsnauðsyn var það ekki. Alt miðaðist við að vera sjálfum sjer nógur, og samgöngu- leysi við útlönd hefði aldrei getað orðið Grænlendingum að fjör- tjóni, ef skilyrðin heima fyrir hefðu verið þau sömu og á blóma- skeiði þeirra. Eins og vænta mátti befir Húnninn á biskupsstafnum, sem fanst í rústunum í Görðum. / menning Grænlendinga verið nauðalík hinni íslensku, aðeins fátækari, lítilsigldari. Híbýlin eru t. d. mun kotungslegri en ís- lenskir bæir frá sama tíma, það vantar höfðingsbraginn, sem hvíl- ir yfir bæjum eins og Stangar- bænum, sem grafinn var upp í Þjórsárdal. í kirkjusmíðum virð- ast Grænlendingar þó síst hafa staðið okkur að baki. Þeir reistu kirkjur sínar iir höggnum^steini, en svo langt komust íslendingar aldrei í guðshúsasmíð. Á miðöld- um voru dómkirkjurnar á Hól- um og í Skálholti einu dómkirkj- urnar í Niðaróss erkibiskupsdæmi, sem ekki voru steinkirkjur. Á biskupssetrinu Görðum hefir stað- ið voldug dómkirkja úr steini, 27x16 metra, en því miður hafa Eskimóar, er nú byggja staðinn, rifið höggnu steinana úr veggj- unum og reist úr þeim kofa sína, svo að nú stendur varla steinn yfir steini. En svo frábærlega vel voru steinkirkjurnar hlaðnar, að enn standa þær að mestu, jafnvel gaflarnir, eins og t. d. Hvalseyr- arkirkja. í grænlenskri kirkna- smíð þykir kenna engilsaxneskra eða suðureyskra áhrifa, en alls eigi íslenskra. Aldrei hafa norrænir menn átt í höggi við harðvítugri náttúru en íslensku veiðibændurnir á Grænlandi og aldrei bygt af- skektari útkjálka en hina græn- lensku dali. Geta má nærri, hve óbemju einmanalegt lífið befir verið, hve lítið samneyti fólks, hve fátt hefir gert einn dag öðr- um frábrugðinn. Þegar best ljet munu hafa verið um 3000 sálir til samans í báðum bygðunum, sem annars höfðu fremur lítil við- skifti. En þegar er fram kemur um 1300, er fólkinu vafalaust farið að fækka og þróttinn byrj- að að draga úr nýlendunni. Þá þegar hefst sá liarmleikur, sem lýkur með dauða seinasta íslend- ingsins á Grænlandi um eða litlu fyrir 1500. Áreiðanlegar heimildir herma, að Vestribygð hafi eyðst milli 1360 og 1370, og kendu menn í Eystribygð það Skrælingjum, sem mjög voru þá teknir að sækja suður með vesturströnd Græn- lands. Það voru hinir mikhi eskimóisku þjóðflutningar, þegar Eskimóaflokkar tóku sig upp frá heimalandi sínu í Norður-Ame- ríku, hjeldu yfir Smith-sund og ljettu eigi, fyrr en þeir höfðu komið á flesta staði á ströndum Grænlands og víða fest bygð sínu þar. Eftir eyðing Vestribygðar heyrist öðru hvoru talað um skifti milli þessara dimmóskulegu steinaldarmanna og íslending- anna, bæði vinsamleg viðskifti og blóðugar skærur. Þjóðsögur Eski- móa, skráðar á seinustu tímum, bera vott um hið sama, og greina nofn á norrænum höfðingjum, er þekkja má gegnum eskimóiska dulbúninginn (Olave og Unger- toq, Ólafur og Ingvar). Það var því til skamms tíma allra álit, að Eskimóarnir hefðu strádrepið íslendingana á Græn- landi með báli og brandi, eins og norrænir menn höfðu orðið að láta bygð sína fyrir þeim í Vín- landi. Og víst er, að Eskimóar hafa farið með ófrið á hendur ís- lendingunum, jafnvel þó einhver friðsamleg skifti hafi átt sjer stað, eins ög fyrst í Vínlandi. Þjóðir þessar voru of fjarskyld- ar að útliti, tungu, eðli og menn- ingu til að geta búið í bræðralagi hlið við hlið. Slíkur munur skap- ar altaf tortrygni. En spurningin er, hvort sennilegt sje, að frum- stæð þjóð eins og Eskimóarnir, sem ekki þektu notkun málma, bafi getað eigrað í stríði táp-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.