Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.1940, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.1940, Blaðsíða 7
„heima“, lagst á dívaninn og lát- ið hugann reika um gamlar slóð- ir og gamlar minningar. Þannig getum við haldið rjettirnar, gömlu sveitakarlarnir ógangna- fíeru, sem í kaupstöðunum búum. Og ,innfæddu‘ kaupstaðarbúarn- ir, sem ekki vita hvað göngur eru, og sem aldrei hafa átt þess kost að fara í rjettir, þeir fara á mis við þennan þátt þjóðlífsins. Þeir verða að hugsa sjer hvernig geng ur til í göngunum og rjettunum, líkt og jeg og aðrir „landkrabb ar“ verð að hugsa mjer, hvernig lífið um borð í togara eða síldar- skipi gengur. En trúa mega þeir því, að göng ur í góðu veðri eru dásamlega unaðslegt verk, og göngur í mis- jöfnum veðrum eru karlmanns- verk, sem krefst bæði manndóms og þreks og sem gerir mann að meiri manni, eins og raunar allir erfiðleikar, sem okkur mæta og við sigrumst á. ólafur Jóh. Sigurðsson: Ljósið Hið daufa skin í dularlieim um dimma nótt jeg sje, hinn rauða bjarma, er blakti veikt á blökku súðartrje, — og vel jeg man hið litla ljós á litlum kveik hjá gluggans rós. Og máttur þess var meiri í kvöld en myrkrin auð og köld. Hið dapra brjóst fann blíðan yl, hið blinda auga sýn, því ósjeð hönd brá hvassri egg á hiimsins dökka lín. Og sjá. Á bak við brostið tjald reis bylgjan þín með perlufald, — og drifhvít ljeku löðurbönd við landsins bláu strönd. Það var sem hyrfi hugur þinn úv heimsins læstu skurn, og aftur sástu eins og fyrr hvern æsku þinnar turn. Og stundin leið, —- en ljósið brann og loginn út i tómið rann, uns hinsti geislinn húmið smó: Það hneig, það brast, það dó. LE8BÓK MOROUNBLAÐSINS S k á k Baden-Baden 1925. Hvítt: R. Réti. Svart: A. Aljechin. 1. g3, e5; 2. Rf3, (Aljechins vörn á hvítt) 2.....e4; 3. Rd4, d5; (Betra var 3........ c5!; 4. Rb3, c4; 5. Rd4, Bc5; 6. c3, Rc6, og svart á betra tafl) 4. d3, pxp; 5. Dxp, Rf6; 6. Bg2, Bb4-(-; 7. Bd2, BxB; 8. RxB, 0—0; 9. c4!, (Til þess að hindra 9...... c5) 9...... Ra3; 10. pxp, Rb4; 11. Dc4, Rb4xd5; 12. Rd2b3, c6; 13. 0—0, He8; 14. Hfd 1, Bg4; 15. Hd2, Dc8; 16. Rc5, Bh3; 17, Bf3, Bg4; 18. Bg2, Bh3; 19. Bf3,*Bg4; (Hjer virðist Aljechin hafa gert sig ánægðan með jafntefli) 20. Bhl, h5; 21. b4, a6; 22. Hcl, h4: 23. a4, pxp; 24. hxg, Dc7; 25. b5, (Ahættusamt og e. t. v. beinlínis rangt. Best er talið e4) 25. .... axb; 26. axb, 26.....He3!!; (Óvæntur leikur. Hvítt má ekki drepa hrókinn vegna 27.......Dxp-þ; og næst Rxp) 27. Rf3, (Tapar fljótlega. Hvítt þurfti að gera við hótun- inni Hxg3. Best var, og e. t. v. nógu gott Bf3) 27. pxp; 28. Dxp, Rc3!; 29. Dxp, DxD; 30. RxD, Rxp-þ; 31. Kh2, (Kfl var ekki betra vegna Rxg3; 32. pxR, BxR, 33. BxB, HxB-f; 34. Kg2, Haa3; og svart vinnur) 31......... Re4; 32. Hc4!, (Margir fleiri leikir koma til greina, en enginn virð- ist betri) 32.....Rxp; 33. Bg2, Be6!; (Gerir út um skákina í nokkrum leikjum) 34. Hce2, Rg4+’; 35. Kh3, Re5+; 36. Kh2, HxR!; 37. HxR, Rg4+; 38. Hh3, Re3+; 39. Kh2, RxH; 40. BxH, Rd4; og hvítt gaf. m FjAÐRFOK Loroaster, sem var mikilsmet- inn ráðgjafi hjá Persum og höf- undur að trúarbrögðum þeirra, borðaði ekki annað en ost í fimtíu ár. ★ Dómar Paul Krúgers, sem var forseti Búa, þóttu oft vera Salómonsdómar. Eitt sinn höfðu tveir Búar beðið hann að jafna þrætu þeirra um skiftingu á landi. Krúger sagði þá: „Nú skalt þú, Hennel, skifta landinu eins og þjer finst vera rjettlátt, og svo hefir þú, Pjetur, rjett til þess að velja annað þeirra“. Með þessu var þrætan leyst. ★ Nýja vinnukonan hjá skip- stjóranum spurði, hvort hann vildi hafa teið sterkt. — Nei, sagði skipstjórinn. En þjer skuluð þynna það með rommi, ekki með vatni! ★ Kenslukonan; Hver var Katríe Rússadrotning ? Telpan; Marlene Diatrich! ★ Amman var að skera brauð handa krökkunum. Páll litli: Stækka ekki gleraug- un þín mikið, þegar þú lítur í gegn um þau, amma mín? Amman: Ójú, barnið mitt; því spyrðu? Páll litli: Jeg ætla að biðja þig að taka ofan gleraugun, meðan þú skerð sneiðina handa mjer. ★ Fyrir nokkru sló niður eldingu í Laplean í Frakklandi. Það í sjálfu sjer er ekkert undarlegt, því þarna slær oft niður elding- um. Það undarlega var, að í hænsnabúi, sem varð fyrir eld- ingunni, drápust öll svörtu hænsnin, en hvítu hænsnin sluppu öll ósködduð. ★ Gesturinn: Kallið þjer þetta nautakjöt? Þjónninn: Er nokkuð að steik- inni? Gesturinn; Ekki annað en að mjer heyrðiit hún hneggja.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.