Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.1940, Page 8
304
LBSBÓK MORGUNBLAÐSINS
Fyrir einu ári ....
Þetta minnismerki, sem var vígt fyrir einu ári, reistu Frakkar til minningar um Marne-orustuna.
Myndastytturnar sýna m. a. herforingjana Joffre, Foch, French og Galiéni.
Ungan námumann í Suður-Wal-
es dreymdi fyrir mörgum árum
síðan, þrjár nætur í röð, að hann
var að mála málverk með mjög
fögru landslagi. í frístundum sín-
um fór hann að fást við að mála
og varð þá þess viss, að draum-
urinn hafði einhverja þýðingu.
Hann hætti námuvinnu og gaf sig
að málaralistinni. Maðurinn var
Hugh Richadson, einn af þektustu
málurum vorra tíma.
★
Ferðamaðurinn-. Hún er auðsjá-
anlega æfagömul þessi kirkja.
Bóndinn; Já, sú er nú komin
til éra sinna; hún er yfir 2000
ára gömul.
Ferðamaðurinn: Svo gömul get-
ur hún ekki verið, því þá væri
hún bygð áður en Kristur fædd-
ist.
Bóndinn: Nei, ekki þarf það að
vera, það er nú langra síðan hann
fnddist.
Hreppstjóri nokkur skrifaði á
skjöl skipstjóra, sem strandaði
með skipi sínu: „Við dagbókina
er ekkert að athuga; skipið er
löglega strandað“.
★
Enskur rithöfundur, Georg
Hann, hafði látið taka úr sjer
botnlangann. Uppskurðurinn átti
sjer stað snemma morguns og þeg-
ar hann vaknaði, var niðadimt í
herberginu. Hann gat ekki skilið,
hversvegna það var svona dimt,
svo hann spurði hjúkrunarkon-
una um ástæðuna. Hún skýrði hon
um frá, að mikill eldsvoði ætti
sjer stað í húsinu á móti og að
þau hefðu verið hrædd um að
uppskurðurinn hefði mishepnast
og að hann væri dauður. Að hann,
eftir þessu að dæma, skildi hvert
aðrir hjeldu að hann færi eftir
dauðann, þarf náttúrlega ekki að
segja frá.
★
Hermannaföt úr khakiefni voru
fyrst notuð í uppreisninni í Ind
landi 1856. Khaki er persneskt
orð og þýðir sandur. Það var nafn
á þrælsterku fataefni, sem’ ind-
versku uppreisnarmennimir not-
uðu. Bretar sáu brátt, hve hent-
ugt þetta fataefni var — mikið
hentugra heldur en rauða bóm-
ullarefnið, sem hermannaföt voru
þá búin til úr. Khakiliturinn varð
svo vinsæll, að hermennirnir
lögðu fötin sín í bleyti. til þess
að fá á þau brúnan lit.
★
Eitt sinn var ein Spánardrotn-
ing (kona Karls annars) á skemti-
reið og með hénni 43 menn og
konur. Hún fjell af baki og fest-
ist í ístaðinu og varð að hanga
þar alllanda hríð, meðan verið
var að sækja þann aðalsmann, er
einn þótti svo tiginborinn í öllu
ríkinu, að mætti koma við hennar
hátign.