Lesbók Morgunblaðsins - 13.04.1941, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 13.04.1941, Blaðsíða 1
JföorðttnMaððinð 15. tölublað. Sunnudaginn 13. apríl 1941. XVI. árgangur. _______________ .■■lulflarprftoUiDiðjA b.l A jeg að gæta bróður míns? Eftir síra Jón Auðuns „Þá sagði Jahve við Kain: Hvar er Abel bróðir þinn? En hann mælti: Það veit jeg ekki, á jeg að gæta bróður míns? Og hann sagði; Hvað hefir þú gjört? Heyr, blóð bróður þíns hróp- ar til mín af jörðunni!“ Kain hefir framið fyrsta morð- ið á jörðunni, hann hefir myrt bróður sinn og stendur yfir blóðugu líki hans. En eftir myrk- ur haturs, afbrýðisemi og heiftar er að birta af nýjum degi í sálu hans, því að innra með honum er að vakna meðvitund um, að hanu hafi framið ódæði, þar er að rofa fyrir skilningi á því, að hann hafi framið glæp. Kain stendur á frumstigi hins hálf-vilta manns og hann hefir lagt hendur á bróður sinn án þess að finna, að það var ódæðis- verk. í þeim efnum hefir hanu litlu meiri meðvitund um mismun góðs og ills en dýr merkurinnar. En þar sem hann stendur yfir líf- vana líkama einkabróður síns, rof- ar fyrir undursamlegri tilfinning í sálu hans, þar er sektarmeðvit- undin að vakna, fyrsti skilnings- votturinn á synd bróðurbanans og fyrsti hrollurinn yfir að sjá mannsblóði úthelt er að altaka sál hans. Þá hljómar hræðileg ásökun fyr- Síra Jón Auðuns. ir eyrum hans: Hvar er Abel bróð- ir þinn? — Og lostinn skelfing svarar hann: Á jeg að gæta bróð- ur míns? Það skiptir engu máli hvort þessir atburðir hafa raunverulega gerst með þeim hætti, sem fyrsta Mósebók greinir frá, en hitt skipt- ir hjer öllu máli, að hjer er meist- araleg lýsing á því heilaga augna- bliki, þegar mannvera, sem stend- ur á mörkurn dýrs og manns, verður maður, gæddur samvisku og sál, gæddur viðbjóði mannsins á þeim verknaði, sem dýrinu er eðlilegur og sjálfsagður. Þannig er þessi fornhelga harín- saga hinna fyrstu bræðra á jörð- unni jafnframt sagan af einhverj- um dýrðlegasta áfanganum, sem mannkynið hefir náð á þroskaferli sínum. Tímarnir liðu, öld af öld og ár- þúsund af árþúsundi, því að geisi- langur vegur liggur á milli Kains, sem spyr undrandi yfir líki Ab- els: Á jeg að gæta bróður míns? — og Mannssonarins, sem dó á smánartrjenu austur á Golgatha, fyrirgaf kvölurum sínum og ljet sjálfur lífið fyrir bræður sína. „Á jeg að gæta bróður míns?“ Það er næsta athyglisvert að gefa því gaum, hvernig íslenska þjóðin hefir svarað þessari spurn- ingu og skilið hana. Fram að árinu 1000 bjúggu all- flestir íslendingar við Ásatrúna fornu, lifðu að einhverju tals- verðu leyti eftir þeim lögum, sem hún setti þeim, og aðhyltust að einhverju verulegu leyti þá lífs- skoðun, sem hún boðaði þeim. Þótt drengskapardygðin, sem Ása- trúin lagði sjerstaka áherslu á, væri á ýmsan hátt mjög ófullkom- in og næsta varhugaverð dygð, eins og hún reyndist í fram- kvæmdinni, var sitt hvað gott um hana að segja. En sá átrúnaður, sem hvatti til víga og manna- blóta og dýrkaði hefndina sem heilaga lífshugsjón, var naumast líklegur til að lyfta mönnunum hátt yfir bróðurbanann Kain. Árið 1000 leið heiðinn siður und

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.