Lesbók Morgunblaðsins - 13.04.1941, Síða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 13.04.1941, Síða 10
130 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Á ársafinæli styrjaldarinnar: »Vjer erum ermþá að klifra upp hiíðina...« Ræða eftir Winston Churchill Hjer fer á eftir kafli úr ræðu, sem Mr. Churchill, forsætisráð- herra Breta, flutti i neðri mál- stofu breska þingsins, er tæpt ár var liðið frá þvi styrjöldin hófst. Ræðan er úr nýútkom- inni bók með ræðum hans, sem nefnist „Into Batle". n það bil eitt ár er liðið síð- an styrjöldin hófst. Það er því ekki óeðlilegt, að vjer stöldrum við á þessum vegamót- um og litumst um á hinu víðáttu mikla og skuggalega sviði. Það er einnig girnilegt til fróðleiks, að bera þetta fyrsta stríðsár annarar þeirrar styrjaldar, sem við heyjum gegn þýskri árás, við fyrstu stríðsár hins fyrra stríðs fyrir aldarfjórðungi. Enda þótt þessi styrjöld sje í raun rjettri aðeins framhald af hinni fyrri, þá er þó mikill munur á eðli þeirra. í síðustu styrjöld börðust miljónir manna í hríð stáls og blýs. Herópið var „menn og byssukúlur", og afleiðing þess voru ægilegar blóðfórnir. 1 þess- ari styrjöld hefir ekkert þessu líkt gerst enn. Nú er baráttan milli herkænskuskipulags, vís- inda og vjelatækni. Manntjón Breta fyrstu 12 mánuði fyrri styrjaldarinnar var 365 þús. Með þakklátum huga get jeg sagt, að fallnir, særðir og teknir til fanga af voru liði nú eru ekki yfir 92 þúsund. Veru- legur hluti þessarar tölu eru herfangar á lífi. Ef litið er á þetta á víðari grundvelli, má segja, að á móti hverjum einum manni, sem særðist eða fjell á þessu eina ári þessarar styrjald ar, komi fimm menn á fyrsta ári styrjaldarinnar 1914—1915. Mannfórnin er aðeins brot af hinni fyrri, en afleiðingamar fyr ir þjóðimar jafnvel ennþá ban- vænni. Vjer höfum sjeð voldug þjóð- lönd með öflugum herafla sópað til hliðar á fáum vikum. Vjer höfum sjeð franska lýðveldið bugað og beygt til algerrar auð- mýktar með minna hiannfalli en það beið í örfáum orustum á ár- unum 1914—1918. Vjer sjáum annan augljósari mismun þéssara ára. Nú heyja Mr. Winston Churchill. þjóðirnar allar stríðið, ekki að- eins hermennirnir, heldur einnig konur og börn, öll þjóðin. Víg- völlurinn er alstaðar. Skurðir eru grafnir í götur borganna. Hvert smáþorp er víggirt. Hver einasti vegarspotti er lokaður. Víglínan liggur gegnum verksmiðjurnar. Verkamennirnir eru hermenn, að eins með önnur vopn, en með sama hugrekki. Þetta eru stórvægilegar breyt- ingar frá því, sem vjer sáum fyr ir aldarfjórðungi, í baráttu vorri þá. ★ Það sýnist vera öll ástæða til þess að halda, að þessi nýja teg- und styrjaldar henti betur anda og afli bresku þjóðarinnar og breska heimsveldisins, eftir að hún er orðin sæmilega undirbúin og og komin á rekspöl, heldur en hin hróplegu hópmorð við Somme og Paschendaele í síð- ustu styrjöld. Ef það er þannig, að öll þjóðin berst og þjáist sam- an, þá er oss þetta heppilegra vegna þess, að vjer erum allra þjóða best sameinaðir nú og vjer lögðum út í stríðið með einhuga þjóðarvilja og opnum augum. — Ennfremur vegna þess, að vjer erum aldir upp við frelsi og á- byrgðartilfinningu einstaklings- ins. Það er ætlan vor, að halda uppi ströngu hafnbanni, ekki aðeins gegn Þýzkalandi, heldur Italíu Frakklandi og öðrum löndum, er fallið hafa í hendur þýsku valdi. Jeg les það í blöðunum, að herra Hitler hafi einnig lýst yfir hafn banni á Bretlandseyjar. Yfir því er ekkert að kvarta. Jeg man, að keisarinn gerði það líka í síðustu styrjöld. Það sem væri umkvörtunarefni er það, ef vjer þyrftum að fram- lengja þjáningar allrar Evrópu, með því að leyfa flutning mat- væla þangað, til næringar nasist- unum og aðstoðar þeim, eða ef vjer þyrftum að leyfa hernumdu þjóðunum innflutning matvæla, sem hinir nasistisku kúgarar þeirra myndu óðar hrifsa til sín. Það hafa komið fram ýmsar upp- ástungur, bygðar á hinum háleit ustu hvötum, um það, að matvæl- unum yrði sleppt gegnum hafn- bannið til þessara þjóða. Mjer þykir leitt að verða að hafna þess um uppástungum. Nasistar hafa lýst því yfir, að þeir hafi komið á viðskifta- legri „nýskipan" í Evrópu. Þeir hafa hvað eftir annað lýst yfir því, að þeir hefðu full hús matar birgða og gætu fætt hinar her- numdu þjóðir. Vjer vitum, að í Noregi voru við hernám landsins matvæla- birgðir, a. m. k. til eins árs. Vjer vitum, að þótt Pólland sje ekki ríkt land, þá framleiðir það að jafnaði nægileg matvæli fyrir þjóðina. Ennfremur voru í hin- um löndunum, sem Hitler hefir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.