Lesbók Morgunblaðsins - 13.04.1941, Side 13

Lesbók Morgunblaðsins - 13.04.1941, Side 13
LESRÖK MORGUNBLAÐSINS 133 Ragnar Ásgeirsson: Sumar í Hróarskeldu '7 ENSEN, hinn nýji húsbóndi j minn, leigði sjer nú opinn vagn með tveimur hestum fyrir og svo ókum við áleiðis til járn- brautarinnar gömlu í Kaup- mannahöfn. Aftan á vagninum stóð koffortið mitt með aleigu minni í — og kemur það síðar meira við þessa sögu. Fleira en frá megi segja af nýju og furðu- legu fjekk augað að sjá í þessari fyrstu ökuferð minni um höfuð- borg Danmerkur. En ekki var staðnæmst fyr en á stöðinni. Með mikilli eftirvæntingu steig jeg upp í járnbrautarvagninn, sem var hið hraðasta samgöngu- tæki, sem þá þektist. Jeg hafði auðvitað sjeð járnbrautarlestir þjóta eftir teinunum fyr — á Gamla Bíó í Reykjavík, en þarna var það ekki á hinu hvíta ljer- eftstjaldi, heldur var það veru- leikinn sjálfur. Svo var blásið í pil una og lestin rann á stað með hjólaskrölti og hávaða, svo að varla heyrist mannsins mál. Hús- in „þutu framhjá" með meiri og meiri hraða, uns komið var út fyrir borgina og hinar dönsku sljettur tóku við, þar sem bónda- bæir með lágum, kölkuðum veggj- um og háu risi, stóðu á víð og dreif milli grænna akurteiga. Skógarlundir voru víða við bæ- ina og á milli þeirra — en ósköp var þettað nú sljett alt saman í augum Islendingsins, ekki nokk- ur hæð eða brekka nokkursstað- ar! Það liðu víst mörg ár áður en augu mín lukust upp fyrir þeim sannindum að sljettan á sína miklu fegurð að geyma, í svip sínum, fyrir utan þá hag- sæld, sem oftast fylgir frjósemi hennar. Og oft er jeg hefi farið um Danmörku síðan, hefi jeg hugað um, hve steinblindur Bjarni Thorarensen hefir verið fyrir svip og fegurð þessa lands, er hann líkir því við svipljótt, neflaust og augnalaust andlit. — En það má segja nútíma Islend- ingi til hróss, að þá vísu heyrist hann sjaldan syngja nú orðið. Lestin stansar nokkrum sinn- um, við minniháttar járnbraut- arstöðvar á leiðinni til Hróars- keldu og heitir hin síðasta, áður en þangað er komið, Heiðahús. Þegar Danir segja einhverjum að fara til Helv.....þá segja þeir: „Farðu til Heiðahúsanna"! Þegar komið er dálítið vestur fyrir Heiðahúsin, sjest frá járn- brautinni að sljettunni, fer að halla svo, að sjá má vítt yfir og vestur að Isafirði, en inn úr hon- um gengur Hróarskeldufjörður- inn. Þar sjást hinir tveir mjóu turnar dómkirkjunnar gnæfa hátt yfir húsaþökum. Og von bráðar er komið til hinnar forn- frægu borgar Hróarskeldu — Roskilde, á dönsku nútímans. Hróarskelda liggur allhátt yfir sjávarflöt og frá borginni hall- ar allmikið niður að firðinum, því þangað er stutt. Upp úr brekkunum vella víða vatnsmikl- ar uppsprettur (keldur). Heitir ein sú allra stærsta Maglekilde og er talið að hún hafi heitið Hróarskelda til forna. Danmörk hefir, eins og menn vita, verið byggð af mönnum í margar þús- undir ára og á fyrri tímum var helgi mikil á sumum þessara upp- spretta. 1 einni þeirra við Hróars keldu hafa fundist æfaforn vopn, sem hafa vafalaust verið látin þar sem fórn til guðanna. Á einum stað hér á Islandi hef jeg sjeð uppsprettur koma úr jörð á svipaðan hátt og í brekk- unum við Hróarskeldu. Það er á Rangárvöllum, og heitir þar: Keldur. ★ Fyrrum var Hróarskelda ein mesta borg Danmerkur — með fjölda kirkna og klaustra. Eru þar enn margar byggingar og nöfn á götum og ýmsu öðru sem minnir á forna frægð og sögu. Þar má heyra nöfn eins og Dúfu- bræðra-, Gráubræðra og Svörtu- bræðraklaustur, þegar kirkju- valdið var mest, voru þar 6 stór klaustur og 12 sóknarkirkjur. Þar sat Abasalon á biskupsstóli og sameinaði Dani til varnar gegn árásum Vinda. Þá var Hróarskelda einnig þýðingarmikill verslunarstaður, hin grunnskreiðu skip þeirra tíma komust greiðlega inn í fjarðarbotn. Þá höfðu konungar Dana aðsetur sitt þar um langa hríð. En svo minkaði veldi þess- arar borgar, að sama skapi og Höfn óx, við Eyrarsund, klaust- ur voru lögð niður og kirkjur rifnar, öllu fór þar aftur, og stóð lengi í stað, þar til Hróarskelda varð þýðingarmikill punktur í járnbrautarkerfi landsins, um miðja síðustu öld. Þegar ég var þar, minnir mig að íbúatala væri milli 6 og 7 þúsund, en síðan hef- ir talan hækkað mikið. Það er ekki tilkomumikið að koma til Hróarskeldu með járn- brautarlest. Frá stöðinni sér maður ekki svip og fegurð borg- arinnar. Hún sjest betur annar- staðar frá. ★ Svo var ekið yfir götur borgar innar, Algade og Skomagergade, uns við komum út á þjóðveginn til Hringstaða (Ringsted). Hægra megin við veginn var feikna stór vindmylna (Store Mölle), rjett fyrir utan bæinn. Hinumeg in vegarins var svo garðyrkju- stöð húsbónda míns. Hann var frumbýlingur á þeim stað. Þarna hafði hann tekið sjer nokkrar „tunnur lands“, gamla akra til ræktunar. Var þá alt land þar mælt í „tunnum" og „skeppum“ og er hver sk. 690 fermetrar. Ærið frumbýlislegt var þar að sjá, trjágróður enginn á landinu,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.