Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.1941, Síða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.1941, Síða 1
JWtairðttiiIil&fciitw 23. tölublað. Sunnudagur 8. júní 1941. XVI. árgangur. Grímseyjarför Gamanbrjef frá Olafi Davíðs- syni tii Stefáns Stefánssonar. Fyrir nokkru fann jeg í gömlum skjölum eftirfarandi brjef frá hinum þjóðkunna, vinsæla fræðimanni, Ólafi Davíðssyni, til föður míns, Stefáns Stefánssonar, en hann var erlendis þegar brjefið er skrifað. Eins og allir sjá, má ekki taka suma kafla brjefsins alt of bókstaflega, því það er skrifað í gamni, að öðru leyti en því, sem sjálfri grasafræðinni við kemur. En alt fyrir það gefur brjefið nokkra lýsing á brjefritaranum, lifi hans og starfi, að öðru leyti en því, að hann sýnir þar sjálfan sig í spjespegli af ásettu ráði, að því er snertir brennivínsneyslu. Þvi enguni, sem þektu Ólaf á þess- um hans síðustu árum og hin merkilegu störf hans, mun hafa þótt hann neyta áfengis meira en góðu hófi gegndi. V. St. Ólafur Davíðsson. P.t. Möðruvöllum 8/8 ,98. Stefán sæll! Konan þín er búin að aka mér til að skrifa þér bréf, mér til mikillar skapraunar, því eg sé það í hendi minni að bréfið verður lángt, en eg hefi lítinn tíma og það segi eg þér fyrir fram að ef þú finnur að skript eða rétt- ritun þá svara eg illu einu til þegar við sjáumst næst, því ekki ætla eg mér að lesa bréfið yfir. Jæja! Þar er þá til máls að taka að eg lagði af stað í Gríms- eyjarferðina, gángandi eins og til stóð 12. júlí vel út búinn með brennivín og hrátt hángiket. Pyrsta daginn komst eg í hlöðu á Höfða og át þar drjúgum hángi- ket og drakk brennivín til allrar guðslukku, því sorglega fór fyrir restinni, eins og þú munt bráðuni heyra. Nii, morguninn eptir drakk eg mig hálffullan með Sigurði Hjörleifssyni og hann fylgdi mér uppað Grýtubakka, fór sjálfur að drepa aumingja barn út á Látra- strönd, en lánaði mér hest uppað Skarði. Friðbjörn reið með mér. Á miðri leið mætum við séra Árna afa og var svo sem sjálfsagt að fara af baki og snakka, en það endaði svo að eptir svo sem fjögra tíma bið var hvorki tangur né tetur eptir af brennivíninu né hángi- ketinu og það sem mér þótti verst: hálfflaska af bitter, sem Sigurður hafði stungið að mér fór líka til fjandans. En mikið var spjallað og meira var hlegið. Svo komum við fullir að Skarði og eg skamm- aði Jóhann gamla fyrir skeggleysi meðal annars. Ilann tók því öllu í góðu. Eg gisti á Garði í Fnjóska- dal og labbaði svo yfir Göngu- skarð næsta dag, mjög timbraður og eyðilagður. Þetta er ekkert slrarð þessi djöfull, hvergi hærra en Moldhaugnaháls, held eg. Gisti hjá séra Lúðvík næstu nótt. Þar bar fyrir mig þá nýlundu næsta morgun að eg gaf stráknum hans tvær krónur, tveggja ára gömlum, en hann fór að skæla, fleygði þeim sem leingst hann gat frá sér og sagðist ekki vilja sjá þær. Lúðvík prestur réð mér til að fara út í Náttfaravíkur og það gerði eg. Þar er tröllslegt mjög og ákaf- lega fjölbreyttur gróður en eg fékk vont veður og bótaníséraði þess vegna minna en skyldi. — Næstu nótt gisti eg á Sandi og var tekið þar mætavel; var þar undir sólarhring. Guðmundur frískur og sá skemmtilegasti; fað- ir hans og bróðir item, en mest þótti mér varið í Arnór hinn óskírða. Það er einhver sá kynd-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.