Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.1941, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.1941, Blaðsíða 8
200 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS I meðferð sem samviska bauð, með rjettlæti og manúð. Látum okkur aldrei gleyma að við vorum komin um þúsund ár frá villimenskunni, frá kvalafýsn og blóðþorsta. Við vitum að þetta stafaði ekki af því, að slíkar kendir væru aldauða í hugum vor- um, en við börðumst gegn þess- um tilhneigingum af heilum hug. Það átti að útrýma þeim eins og hverjum öðrum óþverra. Hetju- lund sýndu þeir menn, í okkar augum, er lögðu líf sitt í hættu til þess að bjarga öðrum frá dauða, t. d. er heilar skipshafnir vilja fórna lífi sínu til að bjarga mönnum úr sjávarháska, eða bænd ur gera alt sem í þeirra valdi stendur þó ekki sje annað en bjarga búpeningi úr ógöngum í klettum eða jöklum. Við vitum að það er erfitt fyr- ir þá sem heima eru að halda fast við alt sem er norskt hug- arfar og menning, hinn háleita vilja til rjettlætis, fórnfýsi og virðing fyrir mannrjettindum, líka meðal þeirra veiku, lasburða og þeirra sem hafa glæpahneigð. Til eru vissar tegundir glæpa- hneigðar, sem vekur meðal okkar svo innilegan og óendanlegan við- bjóð, að ekki er hægt að hata þá sem þvinga okkur til þess að horfa upp á og þola andstyggilega hluti. Fyrir ykkur, sem nú verðið að horfa á að „ríkisráð“, samsett af vikapiltum útlendinga, vill stjórna Noregi, leggja niður fán- ann okkar sem norsk skip hafa siglt undir með heiðri og sóma um öll heimshöf og blakt hefir yfir sorgum okkar og gleði alt frá því við vorum smábörn í 17. maí skrúðgöngunni og vill taka upp merki Ólafs helga, eftir að það hefir verið atað í forarpollum svika og lyga, fyrir ykkur er það erfitt að muna hvað það þýddi fyrir einu ári, að vera norskur. En munið orð Runebergs, er hann minti á, að enn kæmi dagur, enn væri ekki öll von úti. Enn berjast Bretar og högg þeirra verða þyngri með degi hverjum. Stærsta lýðræðisríki heims er nú vaknað og veit um hvað er bar- ist um gervallan hnöttinn, barist fvrir lífsrjettindum manna og lífs- hamingju. Og fyrir vfirunnar þjóðir Ev- rópu er vert að muna orð hins háleitasta andans manns er Sví- þjóð hefir alið, eins þess mesta manns af norrænni ætt sem sjeð hefir dagsins ljós: „Þeir vfirunnu eiga eftir sín vopn — þeir áfrýja til Guðs“. Kona Rudolfs Hess Rudolf Hess er kvæntur æskuvinkonu sinni, Ilse Pro- el, en henni kyntist hann barn að aldri í Alexandríu. Þau eiga einn son 4 ára gaml- an. Frú Hess og sonur henn- ar — og ennfremur foreldr- ar Rudolfs Hess, sem sótt voru til Alexandríu í sjerstakri flugvjel skömmu áður en stríðið hófst — eru enn um kyrt í Þýskalandi. Dómarinn við vitnið: — Þjer verðið að skilja það, að alt það sem þjer segið hjer fyrir rjettinum verðið þjer að staðfesta með eiði. Þess vegna verðið þjer að gera yður fulla grein fyrir því, hvað það er, sem þjer vitið af eigin reynd, og hvað það er sem þjer hafið eftir öðr- um. Hvenær eruð þjer fæddur? — Þann 17. apríl 1897, svaraði vitnið. Það er að segja, jeg get ekkert sagt um það með vissu, mjer hefir verið sagt þetta. Fjaðrafok Það var á mánudagsmorgni, drengirnir í bekknum svfjaðir og lítið eftirtektarsamir. Kennarinn var að útlista hvað orðið krafta- verk þýddi, og spurði síðan einn nemandann, sem verið hafði úti á þekju: —- Iivað væri það, ef maður fjelli niður af 100 metra háu bjargi án þess að meiða sig? — Það kalla jeg hepni, sagði pilturinn. — En ef hann fjelli í annað sinn niður af bjarginu, án þess að meiða sig? — Það kallaði jeg hundahepni, sagði pilturinn. — En ef hann fjelli enn í þriðja sinn fram af og meiddi sig ekki að heldur ? — Þá kalla jeg það æfingu, sagði pilturinn. ★ I Kaupmannahöfn: — Ilvenær er karlmaður orðinn gamall? — Þegar ung stúlka stendur upp í strætisvagni og býður hon- um sæti sitt. — En hvenær eru konur orðnar gamlar ? — Þegar ungir menn hætta að standa upp fyrir þeim í strætis- vagni og bjóða þeim sæti sitt. ★ Það er enginn vandi að ganga á skíðum, þegar maður brúkar eins stór númer af skóm og Jón, sem þarf engin skíði, að renna sjer á, hefir ekki annað en skóna á löppunum. ★ — Heyrðu, Gústafsson, hvað er að þjer, því ert þú svona dapur í bragði? — Æi, konan mín hefir ráðið til mín nýjan einkaritara. — Er sú hin nýja dökkhærð eða ljóshærð? — Nei, sköllótt. ★ — Hvaða þrjú orð eru það, sem stúdentar nota oftast, er þeir ganga undir próf? — Veit það ekki? — Einmitt rjett, sagði prófess- orinn, það eru þessi þrjú.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.