Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.1941, Side 4
190
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
helvítis hundaveðri, sem eg hefi
komið útí og það sem yfir tók,
var að eg átti ekki blánkan eyri
til að hressa mig á. Þú getur því
nærri að eg hafi orðið feginn að
ná mér í viskí og vatn á bauk,
en um kvöldið vildi mér slys til.
Eg labbaði út á Oddeyri að hitta
vin Valdimar og gerði það líka, en
andskotinn vildi að eg skildi
nokkuð seint við hann svo kl. var
orðin 11 þegar eg kom inn eptir
og var biiið að loka. Eg barði
utan húsið í hálftíma, en eing-
inn vaknaði. Eg út til Ólafs sál-
uga. Lokað. Bánkaði. Barði. Böl-
sótaðist. Lokað. Nii var eg hold-
votur vegna ágjafar þegar eg fór
í land um daginn, svo eg trevsti
mér varla til að liggja úti vegna
óveðurs, svo eg tók það snjall-
ræði að labba heim um nóttina
og gerði það. 2V2 tíma var eg á
leiðinni. Eg ætlaði að synda vfir
Hörgá, en til allrar guðslukku sá
eg ljósa meri í túninu á Lóni, sem
eg stal vfir ána. Eg hafði ekkert
að hnýta upp í merina nema skít-
ugan vasaklút og eg hefi aldrei
séð hvikulara höfuðburð á nokk-
urri skepnu en merinni eptir að
klúturinn var kominn uppí hana.
Það er eins og henni hafi ekki
þótt gott bragðið að tóbakinu.
Svo hefi eg farið inn á Akureyri
síðan og er búinn að sækja dót
mitt.
Það er því sem næst óskemt og
er það mest þér að þakka þó
ótrúlegt sé. Þú kendir mér nefnil
það snjallræði að þurka jurtir í
kirkjum og færði eg mér það í
nyt og fékk Húsavíkurkirkju hjá
séra Jóni til fullra afnota. Eg
hefi ekki tekið nema fremur sjald-
gæfar jurtir á þessu ferðalagi
mínu, en fundið talsvert af þeim
Campanula1 lat., Milium eff.2,
Heleocharis uniglumis3, Atriplex
sp.4 o. s. frv. Ekkert hefi eg fundið
nýtt að eg held nema eina jurt
forvildaða: Phalarií Canariensis.
I Grímsey tók jeg ýmislegt, sem
er reyndar ekkert sjaldgæft, því
eg tók alt það, sem einhver vafi
1 Bláklukka.
2 Skrautpuntur.
3 Vatnsnál.
4 Hrímblaðka.
Jóhann Sigurjónsson
,,— Þar hitti jeg einn ungan og
efnilegan grasafræSing".
gat verið með ákvörðun á, en apt-
ur nenti eg ekki að taka það, sem
eg var alveg viss um t. d. Capsella,
Rumex Acetose1 etc. Velkomið er
að þú fáir expl. af öllu þessu sem
eg hefi við tíð og tækifæri. Item
allur greiði, sem eg get gert þér
ef þú verður ytra í vetur.
Helgi Jónson drap á að ekki
væri víst að eg yrði kennari á
Möðruvöllum í vetur þó þú yrðir
ytra; sagði að Helgi Pétursson
hefði haft á orði að reyna að ná
í vikariatið. Eg ímynda mér nú
satt að segja að ekki komi til
þessa. Að minnsta kosti er það
1 Túnsúra.
Þór55ur GutSjónssen.
,— Mest þótti mér þó koma til
Guðjónssens gamla“.
helvíti hart fvrir þig að fá ekki
að ráða hvern þú setur í þinn
stað. Reyndar hefi eg ekki próf,
en er þó fullboðlegur, því stundað
hefi eg náttúrufræði. Item held
eg að Jón gamli Hjaltalín mæli
með mér ef til þess kemur. Að
minnsta kosti sagði hann mér i
vor að hann væri fullánægður með
mig og teldi sjálfagt að eg yrði
í þinn stað í vetur ef þú kæmir
ekki í haust, einhverra orsaka
vegna.
Eg ætla að leggja af stað vestur
í Skagafjörð á morgun. Húsfreyj-
an lætur mig hafa hest, Skrögg,
segir hún og peninga. Eg hafði
dregist á það við þig í vor að
fara ekki vestur, en eg er svo illa
peningaður að eg get ekki farið
annað. Annað hvort er fyrir mig
að sitja heima á rassinum eða
fara vestur, því eg veit ekki þann
stað á landinu, sem eg get ferð-
ast eins billega um eins og Skaga-
fjarðarsýslu. Þú telur nú þetta
ferðalag kannske svik af mér og
það er það í raun og veru, eu
ætli að þú hefðir unnið það til í
mínum sporum að fara hvergi, eu
halda loforðið? Nú, eg hefi ekkeft
annað til að afsaka mig, en vestur
fer eg.
Pétur Soffi skrifar mér að hann
hafi fundið Erica tetralix og fleiri
raritet. Eg skil ekki að hann vaði
villu í þessu, því eg margítrekaði
fyrir þeim í vetur í báðum bekkj-
unum muninn á Erica1 og öðru
ísl. lýngi og sýndi þeim mynd af
Erica. Auk þess er Pétur góður í
bótaník eptir því sem við er að
búast. Nú fær maður að sjá.
Jæja! Eg hefi ekki tíma til þess
að skrifa þér neitt hér úr sveit-
inni, enda er ekkert markvert héð-
an að segja, það eg veit. Bréfið
er nauðaómerkilegt, en því er
hripað upp í flughasti. Ef þér
þykir gaman að einhverju í pistl-
inum þá er það konunni þinni að
þakka, því hún var að nudda við
mig að skrifa þér, en ef þér leið-
ist það, þá er eg úr allri sök, því
þá eru leiðindin konunni þinni að
kenna.
Vale. Þinn
Ól. Davíðsson.
1 Klukkulyng.