Lesbók Morgunblaðsins - 11.10.1942, Qupperneq 1
34. tölublað. Sunnudagmr 11. október 1942. XVII. árgangur.
, 1—f l« ... k-í.
Höfuðstaður Skagfirðinga
Sauðdrl^rókur fyrir 50 drum
ið að minnast þess, að næsta
* vetur er Sauðárkrókskirkja
50 ára gömul, hefir mjer stundum
flogið í hug, hvort engin myndi
verða til þess að minnast aðdrag-
andans að þeirri kirkjubyggingu,
og þeirra manna, sem mest og best
unnu að því að koma henni upp.
Sauðárkrókur fór fyrst að
byggjast kringum 1870. Þá sett-
ist þar að Árni Árnason járn-
smiður, sem venjulega var kall-
aður Árni vert, því hann hafði
lengi gistingu fyrir ferðamenn.
Hann var mesti sæmdarmaður og
þegar 25 ár voru liðin frá því
hann settist að á Sauðárkróki, var
honum og fjölskyldu hans haldið
samsæti og gefin heiðursgjöf.
Skömmu eftir 1880 fór fólki að
fjölga í kaupstaðnum. Jeg held.
að mjer sje óhætt, án þess að
styggja nokkurn, að nefna þrjú
heimili, sem þá sköruðu fram úr
með rausn og myndarskap. Það
voru heimili þeirra kaupmann-
anna,- L. Popps, V. Claessen og
Stefáns Jónssonar verslunarstjóra,
sem annálað var fyrir hýbíla-
prýði. Svo var á þessum árum
byggt „Hótel Tindastóll", sem
þótti gott gistihús. Þar var rekið
bakarí, þar var billiardstofa, og
þar voru haldnir fundir og sam-
komur.
f kring um 1890 mun sýslu-
maðurinn hafa sest að 1 kaupstaðn
um, Jóhannes Ólafsson, hinn vin-
sælasti maður.
Á þessum árum var vaknaður
mikill áhugi fyrir kirkjubyggingu
á Sauðárkrók, því erfitt þótti að
sækja kirkju að Sjávarborg. Síra
Árni Björnsson sóknarpresturinn,
sem þá bjó á Fagranesi, sem einn-
ig var kirkjustaður, hafði mikinu
áhuga á málinu, og byrjaði að
halda guðsþjónustur á sunnudög-
um og hátíðakvöldum í húsi, sem
var lánað til þess. Það voru ýms-
ir málsmetandi menn, sem beittu
sjer fyrir því að koma kirkjunni
upp.
Fyrsta fjeð safnaðist til henn-
ar, þannig, að nokkra vetur voru
leiknir sjónleikir og ágóðinn lagð-
ur í fyrirhugaðann kirkjubygging
arsjóð.
Aðalleikendurnir fyrstu árin
voru stjúpbörn Claessens, Guðrún
og Kristján Blöndal, Jónas Jóns-
son verslunarstjóri, bróðir Jóns
frá Múla, Sigfús Jónsson, síðar
prestur, systurbörn Stefáns Jóns-
sonar: Jóhanna og Einar Stefáns-
son og börn Popps, sem þar að
auki lánuðu píanó, og ljeku und-
ir sönginn og á milli þátta. —
Ýmsir fleiri ljeku og aðstoðuðu
á ýmsan hátt, sem jeg man nú
ekki lengur.
Popp lánaði ókeypis stórt
geymsluhús, til al leika í. Hann