Lesbók Morgunblaðsins - 01.11.1942, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 01.11.1942, Blaðsíða 1
&éíf 37. tölublað. Sunnudagur 1. nóvember 1942. Sunnudagur 25. október 1942. X NORDAHL GRIEG: 17. maí 1940 l T T T T T X T T T X T T T T T x T x x T T ? I I x x x x x T ? x x x x x x x x x x x f I Á Eiðsvelli stöngina auða yfir angandi limið ber. En fyrst nú í dag vjer finnum, hvað frelsið í rauninni er: Um landið fer sigrandi söngur, er svellur frá ströndu til fjalls, þó að hvísli honum hálfluktar varir undir heroki kúgaravalds. Sú fullvissa er fædd í oss öllum, að frelsið sje líf hvers manns, jafn einfalt og eðlisbundið sem andardráttur hans. Vjer fundum, er áþjánin ægði, hve andþrengslin sóttu oss heim sem köfnun í sokknum kafbát . . . Vjer kunnum ei dauða þeim. Því verri en byggðanna bruni er sú bölvun, sem enginn sjer, en vefur í eitruðum eimi hvern afdal og tind og sker: Af njósnum og uppljóstursótta er orðið í Noregi reimt. Vjer áttum oss aðra drauma, — og aldrei verður þeim gleymt. Vjer erjuðum landið til eignar, unz ávöxt gaf mold og sær, með striti, er þann veikleika vakti, að virða hvert líf, sem grær. Nordahl Grieg og Magnús Ásgeirsson Sem storkun við tímans stefnu var starf vort friðinum vígt. — Og riddarar rústa og dauða hafa rjett til að hæða slíkt. Nú er fyrir andrými barizt! Og allir vjer treystum því, að Norðmenn nái ennþá að anda í einingu og frelsi á ný. — Vjer fjarlægðumst frændurna syðra, föla og úrvinda menn. Til þeirra sje kall vort og kveðja: Vjer komum til yðar senn! Hjer blessum vjer minning hvers bróður, er blóð fyrir frið vorn gaf, .hvers hermanns, er blæddi á hjarnið, hvers háseta, er barst í kaf. Vjer erum svo alltof fáir, að engum má gleyma af þeim: Þeir fylgja oss til dáða, þeir dauðu, þann dag, er vjer komum heim! Magnús Ásgeirsson þýddi. i f f I x x x x z i I f x x 1 I * J ‘<?x-x-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-x-:-:-x~x-:-:-:*<-:-:-x-»*:-:-:*x-x-:-:-:-:-:-:-:-x-:-:-:-:~x-><-:-:-:-x-:-:-:-:-:-x-:-x-:-x-:-:->-:i> Í f X x i

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.