Lesbók Morgunblaðsins - 15.11.1942, Side 1

Lesbók Morgunblaðsins - 15.11.1942, Side 1
39. tölublað. Sunnudagur 15. nóvember 1942. XVII. árgangur. Ólafur Jónsson: r • • UR GRAFARLONDUM TIL GÆSAVATNA essi einkennilegi hringur get- ur varla verið nein tilviljun. Til myndunar hans hljóta að liggja einhverjar ákveðnar orsakir og þykir mjer líklegt, að þetta sjeu leifar hins upprunalega dyngju- gígs, en venjulega eyðilegst hann um leið og toppur dyngjunriar brotnar og sígur. Þegar við höfum lokið að skoða Svörtudyngju, höldum við upp í Dyngjufjöllin norðan við Öskju- opið. Allan daginn hefir verið steikjandi sólskin og við erum orðnir vatnslausir og sárþyrstir. Þegar kemur dálítið upp í fjöllin, hittum við litla snjófönn, þar bræðum við snjó til að drekka. Eftir því, sem ofar dregur, verða fannirnar stærri og fleiri og þar fáum við nóg vatn. Við tjöldum þarna norðantil í fjöllunum í skarði, sem liggur frá Öskjuopi norður gegnum fjöllin, og heit- ir Eystraskarð. Þegar við skríð- um í svefnpokana er þoka að læð- ast inn í skarðið. TRÖLLADYNGJUSKARÐ OG HOLUHRAUN. Það gerir þoku og súld um nóttina, sem helst fram eftir deg- inum. Um hádegi er þó orðið þurt og sæmilegt veður, en þokuslæð- ingur er á fjöllunum allan dag- inn. Upprunalega ætluðum við suð- ur fjöllin, vestan við Öskju, en vegna þokunnar breytum við á- ætlun og höldum inn Öskjuop vestanvert og suður hjá Víti, síð- an suður með Öskjuvatni og tjöld- um, að áliðnum degi, undir Mý- vetningahrauni, við suðvesturhorn vatnsins. Þaðan göngum við svo vestur í Trölladyngjuskarð og um fjöllin norður af skarðinu. Jeg mun leiða það hjá mjer, að þessu sinni, að reyna að lýsa Öskju og Dyngjufjöllum í heild. Fáir staðir í Ódáðahrauni eru kunnari en Askja og umhverfi hennar og hefir ýmislegt verið ixm þetta svæði skráð, þótt heilsteypta lýs- ingu á íslensku skorti. Að þessu sinni ætla jeg aðeins að víkja lít- ið eitt að því horni Dyngjufjalla, sem flestir sneiða hjá, en það er Trölladyngjuskarð og nágrenni þess. Trölladyngjuskarð liggur suð- vestur úr Öskju og dregur nafnið af Trölladyngju, sein blasir við í suðvestri, þegar komið er upp í skarðið. Milli þess og Suðurskarða, sem eru beint suður úr Öskju, er þakmynduð fjallsegg, sem á síð- ustu kortum af þessu évæði er nefnd Vatnsfell, en hjet áður

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.