Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 15.11.1942, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 15.11.1942, Qupperneq 2
354 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Wattsfell, eftir hinum kunna enska Vatnajökulsfara William Lord jWatts. Nafnbreyting þessi er ákaflega hæpin, þar sem ekki er unt að setja fellið í samband við neitt vatn, hefði vel mátt íslenska nafn fellsins og láta það þó minna á W. L. Watts, sem var afburða duglegur og athugull ferðamaður og virðingarverður í hvívetna. Mjer dettur t. d. í hug Vilhjálms- fell. Vatnsfeli er og verður út í hött. Hæð Trölladyngjuskarðs, yfir botn Oskju, er varla meiri en 20 m og skarðið er aðeins nokkur .hundruð metra á vídd. Alt er það þakið svörtu, úfnu, gjallkendu hrauni, sem virðist unglegt. Það nær inn í Öskju, þekur hnjúkana beggja megin við skarðið og breið ist yfir hlíðarnar suðvestur frá skarðinu niður til Ódáðahrauns. í skarðinu, og þó einkum utari í hnjúkunum til beggja hliða, er hraunið alt sprungið og kubbað sundur og minna sprungukerfin á sprungur í bröttum skriðjökium, sumsstaðar sjer í ljósleita mó- bergshellu í botnum sprungn- anna. Hraun þetta hefir valdið ýms- um heilabrotum, því ekki virðist auðvelt að segja, hvaðan það er runnið. Eldvörp, sem hraunið gæti verið runnið frá, sjást þarna engin, en þess ber að gæta, að mörg eldvörp hjer í Öskju eru ákaflega ógreinileg. Þannig eru eldvörpin í Suðurbotnum og við Suðurskörð, sem yngstu hraunin eru runnin úr, lítið annað en ó- reglulegar gjallhrúgur. Hitt er augljóst, að hraunið í Trölla- dyngjuskarði liggur á svo mishæð- óttu landi, að þar hljóta að hafa orðið mikjl jarðsig og bylting samhliða því, sem hraunið rann. Inn í Öskju, rjett undir skarð- inu, eru allmiklir gjallhólar. Það er ekki óhugsandi, að hraunið sje runnið frá þessum hólum, en spilda með hólunum á, hafi síðan sigið, og jafnhliða því hafi líka orðið sig um miðbik hraunsins, Jmr sem skarðið er nú. Þessa sjást þó engin glögg merki, skörp brot sjást þarna ekki, heldur er því líkast, að landið sje orpið og beyglað. Það leynir sjer ekki, að mikil eldgos og jarðsig hafa orðið í ná- grenni Trölladyngjuskarðs. Upp í fjöllunum, norðan og vestan við skarðið, er stór sprengigígur, dá- lítið sporöskjulagaður, lengstur frá SV-NA um 150—200 m, en um 100 m víður frá SA-NV. Gíg- brúnin er hæðst að NA, en lægst að SV, meðaldýpt um 60 m. Þess sjást augljós merki, að þarna hefir verið jarðhiti í gígbörmunum til skams tíma. Niðri í gígnum er gulleit tjörn. Dr. Spelhmann fann gíg þenn- an 1907 eða 1910 og telur, að þá hafi verið greinilegur jarðhiti í börmum gígsins. Enginn vafi er á því, að gígur þessi er ekki gamall. Sumir telja hann jafnvel ekki eldri en frá 1875 og styðja það við frásögn sjera Sigurðar Gunn- arssonar á Hallormsstað. I Norðan fara 1875, bls 58—59, segir hann, að í ársbyrjup 1875, hafi hann sjeð, af Hallormsstaðahálsi, 2 reykjarmekki yfir Dyngjufjöllum og nokkurt bil á milli. Norðan við gíginn ganga greini legar sprungur í gegnum fjöllin frá SV-NA. Hefir hraun runnið úr þeim, sem næstar eru gígnum, en nokkuru norðar gengur grunn dalskora, auðsjáanlega sprunga, gegnum fjöllin, eru víða merki um útkulnaðan jarðhita á börm- um hennar, ljósleitur lei^ og Kís- ilmulningur. Vegna þess, að áliðið er orðið, en þoka og hríðarjel upp á fjöllunum, förum við skemmra norður á fjöllin, en við hefðum kosið. Um nóttina gekk á me'ð snjóeljum og hvítnaði í kringum f jallið. Næsta morgun, sem er þriðju- dagurinn 21. júlí, er veður kalt en sæmilega bjart og útlit fyrir batnandi veður. Þennan dag er ferðinni heitið suður í Holu- hraun. Fyrst liggur leiðin upp í gegnum Suðurskörð, en þegar þangað er komið blasa við fann- hvítar hjarnbreiður Vatnajökuls, austan frá Eyjabökkum og vestur að Vonarskarði, baðaðar í sólskini. Þarna uppi í skörðunum rekumst við á stóran brattan hraungíg. Hann er mjög reglulegur og tvö- faldur, þannig, að innan í aðal- gíghringnum er annar minni. Suð- ur frá þessum gíg liggur röð af eldvörpum. Þau eru nokkuð sand- orpin, en þó varla mjög gömul, því hjer í suðurhlíðum Dyngju- fjallanna eru óhemju birgðir af svörtum vikursandi, sem fljótlega jafnar allar ójöfnur. Gígaröð þessi hverfur út í aðra, miklu meiri og miklu yngri gossprungu, sem er um 10 km. löng ofan frá Þor- valdstindi og niður á sanda. Gos- sprungu þessari, sem aðeins er fárra ára gömul, hefi jeg lýst nokkuð í Lesbókinni 1939 bls. 273 —278. Við komum nú að þessari sprungu neðanverðri. Virðist mjer sandurinn.hafa aukist mjög mikið í sprungunni, á þeim þremur ár- um, sem liðin eru síðan jeg kom þar. Þá var aðeins sandur sjáan- legur í dýpstu gjótunum með fram sprunguveggnum, en nú teygja sandskaflarnir sig upp undir brún ir sprungunnar. Suðurhlíðar Dyngjufjalla eru hallalitlar. Allar eru þær þaktar hraunum, sem runnið hafa langt austur á sandana við rætur hlíð- anna, en, að yngstu hraununum undanskildum, eru þau að mestu hulin svörtum vikri og sandi. Frá rótum fjallanna, suður að Holu- hrauni, er um 4 km. leið, sandar, staksteinótt grjót og leirbornir árfarvegir, sem þó eru skraufþurr ir nema í leysingum og miklum hitum. Þá fyllast allir þessir far- vegir af mjólkurlituðu jökulvatni, einkum síðara hluta dags. Næsta morgun eru þeir venjulega aftur þurrir, en þaktir ljósleitum leir, sem þornar og þyrlast upp í loft- ið, hvað lítið sem hreyfir vind. Holuhraun, sem er takmark okk ar, er allmikil hraunbreiða á sljett um söndunum fram undan miðj- um Dyngjujökli. Á að giska er hraunið um 7 km. á hvern veg, eða um 50 km2 að flatarmáli. Nyrst er helluhraun, en megin- hluti hraunsins apalhraun, sem verður því úfnara og stórskorn- ara, sem nær dregur jöklinum. Hraun þetta er runnið frá gos- sprungu, sem virðist liggja frá S—N eftir hrauninu ^vestanverðu og hafa nákvæmlega 'sömu stefnu og nýja gossprungan sunnan í Dyngjufjöllunum. Á þessari sprungu eru þó ekki sýnileg eld-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.