Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.1944, Side 9
LESBÓK MORGOJNBLAÐSINS
473
*
*
Bæn:
Til J)ín hljóður, Guð minn góður,
græt jcg eins og barn til móður.
I’á crum vjer á rjettri leið, því
að vjer minnumst hins dýrmæta
sannleiksorð, að ]>ú ó, Drottinn,
huggar, eins og móðir huggar barn
sitt.
Lcirrar huggunar þörfnumst vjer.
Gei' oss. ó, Guð, þá huggun. Anren.
Texti: Úr 60. kap. Jesaja.
Statt upp, skín þú, því að ljós
þitt kemur og dýrð Drottins renn-
ur upp yfir þjer. Því sjá, myrkur
grúfir yfir jörðinni og sorti yfir
þjóðunum; en yfir þjer upp rennur
Drottinn, og dýrð hans birtist yfir
þjcr.
Drottinn skal vera þjer cilíft
Ijós og Guð þinn vera þjer geisl-
andi röðull.
Jeg er sendur með þessa kveðju
til sorgbitinna vina.
Eitt er oss sameiginlegt, er vjer
hugsum um það, sem við hefir
borið. Vjer finnum vanmátt vorn.
Munum vjer ekki hvað sagt er í
hinni heilögu sögu ? Jesús varð sam
ferða, tveimur lærisveinum, sem
námu staðar daprir í bragði. En
við að vera honum samférða og
heyra hann tala, opnuðust augu
þeirra, og hrygðin hvarf fyrir gleð-
. . j, ' L
N’jer höfum l'ylgst að á síðustu
dögum með hrygð í hjarta. Vjer
finnum sannleikann í þessuni orð-
um þjóðsöngsins: „Ó,Guð vors
lands, ó, lands vors Guð. Vjer lif-
um sem blaktandi, blaktandi strá;
vjer deyjum, ef þú ert ei Ijós það
og líf, sem að lyftir oss duftinu
frá‘ ‘.
Hvað megnum vjer’’ Hvað getum,
vjer gert ? Eitf er hægt að gera.
Dyrnar eru opnar. llöldum þangað.
Leiðin til Drottins er ekki lokuð.
Þessvegna skulum vjer fara hinai
greiðfæru leið. Upp til Guðs mcð
öll vor mein.
Hjcr er hin mikla sorg. Þess-
vegna er þörf mikillar huggunar.
Oft hlýt jeg að hugsa um þessi
orð, oft styrkist jeg af þeim, og
bið þess, að þau megi stjórna oss,
sem eigum að tala til mannanna
og flytja þeim það huggunarorð,
sem geti blásið afli í brotinn hálm.
En orðin eru þessi:
Drottinn Guð hefir gefið mjer
lærisveinatungu, svo að jeg hefði
vit á að styrkja hina mæddu með
orðum mínum; hann vekur á hverj-
um morgni, á hverjum morgni vek-
ur hann eyra mitt, svo að jeg taki
eftir, eins og lærisveinar gjöra.
Þetta er hlUtverk kristinnar
kirkju með þjóð vorri. Þessvegna
t •
er einmitt minningarguðsþjónusta
-haldin hjer í húsi Drottins, svo að
vjer á heilögum augnablikum tök-
um eftir eins og lærisveinar, sem
eru hljóðnæmir, fyrir þessu orði
Drottins: ,.Jeg hcfi nokkuð að
segja ])jer“. Vjer svörum, eins og
þá var svarað: „Seg þú það“. Þá
heyrum vjer hans kallandi og lað-
andi rödd: „Ef nokkurn þyrstir,
þá komi hann til mín og drekki“.
En hvert er þá starf mitt í dag?
Jeg er sendur til þín, til þess að
segja við þig: Sorgbitni bróðir,
harmþrungna systir, gakk að lind-
inni, að þeirri lind, er helgan veit-
ir auð, að þeirri lind, þar sem sorg-
in og huggunin mætast.
Vjer vöknum á hverjum morgni
til dagsins anna. Leyfum Drott.ni
að vekja oss. Heilsum deginum í
nafni hans. Tökum svo, styrktir af
Drottins náð, því er að höndum
ber.
★
Hvað flytur dagurinn oss? Vjer
vitum það ekki. Við oss er sagt:
Vakið, því að þjer þekkið hvorki
daginn nje stundina.
Vjer heilsutn nýjum degt, og
hlustum. Hvað heyrum vjer? Vjér
hlustum daglega á fregnirnar, sem
staðfesta þetta orð: Myrkur grúfir
yfir jöröinni og sorti yíir þjóðunum.