Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1945, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1945, Blaðsíða 8
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 1200 í KAPLASKJÓLI í SEXTÍU ÁR TIL MÍN ÍIRINGIR maður ofan af Akranesi hjer á dögunum, og segir: Það er gömul kona vestur í Kapla- skjóli, sem heitir Guðrún Ásmunds- dóttir. Ilún varð nýlega áttræð. Hún hefir alja sína æfi átt'heima í Reykjavík. llún kynni að geta sagt yður eitthvað um lífið, eins og það var hjer fyrir aldamótin. — Nokkru síðar íór jeg þangað vestur eftir. Ilitti ]>ar lítinn dreng, sem var að leika sjcr i'iti á túni og spyr hann: Getur þú sagt ínjer, hvar Guðrún Asmundsdóttir á heima? Drengurinn fylgir mjer að stóru hfisi, ogþar upp á loft. I’ar á gamla konan heima, í tveimur snotrum og hreinlcgum hcrbergjum. Þaðan er fagurt útsýni vestur yfir Nesið. Við tókurn tal saman. •leg hefi alla míni æfi átt heima í Reykjavík, segir hún. Jeg er fædd í Hlíðarhúsuin ó. febrúar árið 1865, en hjer í Kaplaskjólinu hefi jeg átt heima síðan árið 1884. Foreldrar mínir voru Ásmundur Guðmunds- son og Ilalldóra Þorvaldsdóttir. Jeg misti þau bæði meðan jeg var á barnsaldri. Faðir minn dó, þegar jeg var þriggja ára, en móðir mín, þeg- ar jeg var átta ára. Þegar faðir minn dó, var okkur systkinunum tvistrað, nema hvað móðir mín fjekk að hafa tvö okkar hjá sjer í Hlíðar- húsum. Við vorum sex. Jeg fór til Gfsla Björnssonar á Bakka. Ilann var útgerðarmaður, eins og ýfirleitt allir voru f Vesturbænum í þá daga. llvað getið þjer sagt mjer um lffið'í Reykjavík á uppvaxtarárum yðar 1 — Og það var heldur tilbreyting- Guðrún Ásmundsdóttir arlítið. Ekki annað en að basla ]»etta áfram. —- Og skemtanir? Þg'r voru lítið annað en það, að hafa ánægju af vinnunni, og fara í kirkju á sunnudögum. Sumir fóru í sveit á sumrin. Það var helsta til- breytingin. - llvað kom til að þjer fluttuð í Kaplaskjólið, — Þá var jeg 19 ára. Sveinn sál- ugi, maðurinn minn, hafði fyrir 4 árum bygt sjcr bæinn sinn, er hann nefndi Sveinsstaði. Ilann var Hún- vetningur að ætt, alinn upp í Vest- urhópi. Faðir hans hjet Guðmund- ur Skúlason, bróðir sjera Sveins Skúlasonar, er síðar var á Staðar- hakka. Hann misti konuna sína nokkru eftir q,ð hann flutti hingað. Hann var 35 ára, þegar við* giftum okkur. Sveinsstaðir var fyrsti bær- inn, er bygður var hjer í Kapla- skjóli. Hann var hjerna niður við sjóinn. Nokkru síðar komu tveir bæir í viðbót, Hjallaland og Hrísa- kot. — Var þetta ekki nokkuð af- skektur staður á fyrstu árum yðar hjer: — Það mátti nú segja. Enginn vegur hingað, og yfir kviksyndi að fara. Nema þegar maður gat farið á fs. Besti vegurinn inn í bæinn, var að fara fram með sjónum, inn fyrir mógrafir, og beygja svo U]>p á Mel- ana. Mjer hefir altaf ]»ótt Kaplaskjóls- nafnið leiðinlegt, en nú eiga að k4ma h.jer eintóm ,,skjól“ trúi jeg. Nafnið er dregið af útigangsliest- um, sein hjer gengu oft, og höfðu ofan af fyrir sjer. Því þá var flest- um. hestum ekki gefið annað en það, sem fleygt var í þá úti undir húsi, þegar mfflt harðindi voru. Fyrstu hjúskaparárin okkar var ífið liálf baslaralegt. Það var um >að leyti, sem fiskileysið var hjer sem mest. Stundum þýddi ekkert að róa. Menn komu fiskilausir í land. Þetta var fyrir aðal-skútu- öldina. ITvernig stóð á því, að niaður- inn yðar bygði bæinn sinn hjer? Þá var um að gera fyrir alla að vera sem næst sjónum. Þá voru ekki annað en sex-manna för og svo leiðis, til þess að bjarga sjer. Þá höfðu menn oft lítið. Þá voru stund- um ekki önnu'r ráð en lána í búðinni upp á vonina. Þegar enginn afli var og skuldirnar orðnar svo miklar, að enginn reis undir þeim þá voru tek- in skipin af mönnum, eins og honum Sveini sáluga. Það var erfitt líf þá. Þegar svo þilskipin komu til sög- unnar, þá fjekk rnaður fiskinn að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.