Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1945, Síða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1945, Síða 10
202 LESP.ÖK MOTtniTNBLAÐSTNS um oft pkki mikið til skiftanna og< J>ótti gott samt. En ekki f jekst nokk urt plagg úr búð. Maður reyndi að ná sjer í ullarhár til að spinna úr og vaðmálsbút, því altaf voru ein- hverjir karlar, sem gátu fengist til að vefa fyrir mann. Einn átti heima hjerna á næsta bæ. Og aJlir á ís- lenskum skóm. Elstu börnin okkar sex fengu ekki stígvjel á fæturna fyrri en þau fermdust. Þá fjekk maður ógarfað skinn í verslunum til að gera skó úr, bæði þunt og Jiykt, og þunna skinnið var stund- um haft í brækur, til að vera í á sjónum. .Trg held nú það. Og það bar ekki á öðru heldur en fólkið væri ánægt, Jægar það hafði ofan í sig. Fólk komst ekki upp á annað en þetta, sem var. Þegar börnin fóru að stálpast, bötnuðu okkar ástæður allar. Elstu drengimir okkar tveir fóru að róa, þegar þeir voru 15 ára gamlir. Þeir fóru til Austfjarða. Og elsta dóttir okkar, Ouðrún, hún fór með þeim bæði til Vopnafjarðar og Seyðis- fjarðar, og var búin að véra þar í snmarvist, áðuræn hún fór frá mjer, Jiegar hún var tvítug. — Fóruð þjer aldrei í sumarvist? — Jú, fyrsta sumarið okkar Sveins sáluga, vorum við í kaupavinnu á Staðarbakka, hjá sjera Lárusi heitn- um Eysteinssvni. Sveinn heitinn átti tvo drengi með fyrri konunni sinni. Systir hans passaði þá um sumarið hjerna heima á Sveinsstöðum. Við fórum lausríðandi norður. Það var skemtileg ferð. Jeg fjekk 7 krónur í kaup á viku og hann 12. Við vor- um þar í 10 vikur. Við þurftum eitt- hvað að hafa til vetrarins, og kaup- ið var sæmilegt fyrir mig, því jeg hafði aldrei áður snert á hrífu. — Ilvenær mistu þjer manninn yðar ? — Hann dó árið 1914. Hann var mikill dugnaðar og atorku maður. Er hann fjell frá bjóst jeg við erfiðum tímttm fram- undan því Jiá vOrtt Jirír yngstu svn- ir mínir í ómegð ennþá. En með' Guðs hjálp og vilja rættist vel úr. öll börnin mín reyndust mjer vel og get jeg ekki nógsamlega þakk- að það. Guði er sá sem gefur og tekur og nú á jeg fimm á lífi. V. St. - Skiili Skúlasnn Framh. af bls. 190. draumurinn búinn. Jeg fjekk ekki meira. Skúli á nú Fagurey með Sigurði svni sínum. Á hverjn sumri hevjar hann þar, hirðir dún og egg og flytur í land. Hann gengur enn heill að hverju verki. Vlð Hólmarar óskum honum til hamingju með daginn og alls vel- farnaðar um ólifaðar æfistundir. Á.H. Smælki — ITvað á jeg að gera til þess að lostna við kvefið, herra læknir? — Þjer skulið fá yður heit fót- þöð og gæta þess að vökna ekki í fæturna. ★ — Það ertt tvíburar, herra endttr- skoðandi, tvær telpur. — Ila, eruð þjer alveg vissar um að þær s.jett tvær, teljið aftur og berið saman. ★ Frá ameríkri ritstjórnarskrifstofu. Blaðamaður (við símann): — Hún segist hafa skotið mann sinn og spyr að því, hvort við getum komið því í morgun útgáfuna. ^Jranz ScliLibert Hjarta vort grunar með geig geimanna ómælisþögn, hræðist sín hugsun sje feig, hverfandi, forvitin ögn. Gall var í gleðinnar teig, grúfðu yfir ógæfumögn. Hver og ein sunna loks hneig — var hamingjan annað en sögn? Söngljóðin þín voru þó — þá, er ei veröldin tóm. Eilífðin í henni bjó, ómælið fult var a,f hljóm. Bergmál í huga þjer hló: Himnamir áttu þá róm! Heym þín úr djúpinu dró dýrðlegrar fegurðar óm. Örbirgðin óðal þitt var, en enginn var ríkari þjer. Hjarta þitt hljómandi bar hamingjustrenginn í sjer. Of snemma átti þitt far að ýta úr vörinni hjer út á hinn myrkra mar. Mannkynið trega ber. Yngvi Jóhannesson. * F. 1797 d. 1828. „Le musicien le plus poéte qui fua jamais“ (skáld- legastur allra tónsnillinga, er uppi hafa verið. Fr. Liszt). Til skýringar við htigsunina í 2. vísunni skal þetta tekið fram: Svo virðist sem þeir formshættir tilverunnar, er hin stærðfrfeðilcgu sannindi segja frá, hljóti að vera í eðli síntt óháðir því, hvort nokkur finnur þá eða ekki. En má ekki segja eitthvað svipað ttm tónlistina? Er gáfa tónskáldsins elcki einmitt fólgin í þessu, að geta hlerað eitt- hvert brot af þeim formsháttum fegtirðarinnar, sem þegar búa í til- verunni (a. m. k. sem möguleikar) ?

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.