Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.1945, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.1945, Blaðsíða 1
15. tölublað Sunnudagur 15. apríl 1945 XX árgangur. U*foU*rprwUaU4]« HANDRIT ÍSLENDINGA Eftir Peter Hallberg, lektor \ ÁliIÐ 1944 ,er merkur áfangi í sögu íslands. Þann 17. júní, á af- mælisdegi frelsúshetjunnar Jóns Sig urðsson (1811—’79), var lýðveldið jsland stofnað á Þingvöllum, og fyrsti forseti }>ess vann emhættis- eið sinn. lsland hefur aftur öðlast fullt stjórnarfarslegt sjálfstæði, sem það hefir ekki haft, síðan Jiöfðingjarnir gengu Ilákoni llá- konarsyni Noregskonungi á hönd á alþingi árið 1262. Þau 682 ár, sem fsland laut er- lendum þjóðhöfðingja, efur oltið á ýmsu. öðruhvoru hefur versl- unarkúgun. hallæri, drepsóttir og fcvðandi eldgos haldið þjóðinni í heljargreipum. Hin fádæma hörðu 'k.jör hafa þó aldrei megnað að kæfa lífsþrá hennar. Jafnvel þeg- ar svartast skyggði að. hefur eldur frelsisins logað í brjóstum Islend- inga. Ef til vill hefur stundum slegið á hanii fölskva, en hann hef- ur aldrei kulnað iit. Baráttan fyr- ir ótakmörkuðum stjórnarfarsleg- um sjálfsákvörðunarrjetti er orðin löng, og markvís hefur hun verið að minnsta kosti síðustil hundrað ár. Hinn 17. júní 1944 táknar loka- þáttinn í þessari baráttu. Sjálfstæðisbarátta íslendinga hef ur ekki verið háð með sverðum nje kostað miklar blóðsixthellingar, eins og t. d. frelslsbarátta okkar Grein þessi er fyrst og fremst skrifuð til birtingar í sænsku blaði — rituð í nóv- ember s. 1. forðum. En samt er/hxin ekki síður virðingarverð en sjálfstæðisbaiátta hvaða anjxarrar þjóðar sem er. — Iliin hefur verið háð, eins og menn- ingarþjóð sæmir. Islendingar hafa sýnt og sannað vilja sinn og getu til að annast öll sín mál með ó- trauðu og affarasælu starfi í þágu fjárhagslegrar, þjóðfjelagslegrar og meuningarlegrar þróunar í landinu. Það þarf varla að þekkja hið nýja Island ofan í kjölinn til að sjá. að þjóð, sem lyftir af eigin ratnmleik því taki, sem Islendingar hafa lvft, skipar sæti sitt meðal fullveðja þjóða meðj sóma. A þessu ári gerast tslendingar aðiljar að bræðralagi hinna nor- rænu þjóða á nýjan hátt, og þeir geta gert það með þeirri vissu að hafa ávaxtað pund sitt vel. íslendingar eru menningarþjóð. J>eir eru líka gömul menningarþjóð. ÍMikinn hluta þekkjngar okkar á fornnorrænni menningu höfum við fír forníslensku bókmenntunum. ís- lendingar geta talið frarn 'óvenju fjölbreyttar og sjálfstæðar bók- menntir frá tíma, sem aðeins hefur leift fátæklegum og ófrumlegum bókmenntaarfi hjá hinurn norrænu þjóðunum. Nægilegt er að minna á' Sæmundareddu með ljóðum eins og Hávamálum, sem er kjarninn úr liinni hi'jvifu lífssjxeki forfeðra vorra eða Völuspá með hinixnt stórfeng- legu sköpunarsögum, vitrunum og draumum um nýjan himin og nýja jörð. í íslensku ættarsögunum, t. d. sögunnií ixm N.jál og svni hans eða víkinginn og skáldið Egil Skalla- grímsson, kynnumst við fjölda manna og atburða, sem frá er sagt á safanxiklxx máli, sem oft er krydd- aðjbeiskri, kjarnyrtri kímni. I heild bregða ]>essar sögur upp mvnd af fornnorrænxi lífi, allt frá smásorg- um hversdagsins til hinna miklu örlagastunda. Safn miðaldahandrita hefur að gevma dýrasta feðraai'f Islendinga. En hver fer með þessi einstæðu' plögg? Svo virðist. sem það ábyrgð- arstarf ætti að vera x höndum hins í'jetta eiganda, íslensku þjóðarinn- ar. Tlins vegar er því svo farið, að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.