Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 17.08.1945, Qupperneq 1

Lesbók Morgunblaðsins - 17.08.1945, Qupperneq 1
33. tölublað. JfofgmifrlatoisMi Sunnudag-ur 17. ágúst 1945 XX árgangur. I*»{ol4&rpr«atuil4ja hX EFTIRHREYTUR - JEG ER oft 'spurð að því, hvort jog sje ekki að seinja Endurminn- ingar mínar. Má vera, að þessi spurning sjc elcki óeðlileg, með því að jcg hef fengist við að lifa í nœr- felt átta tugi ára, víða farið og þekkt niargt merkilegt fólk. En sjálfsæfisögur eru viðsjáiar; við lestur slíkra bóka heli .jeg oft orð- ið fyrir vonbrigðum og sjeð eftir að hafa ekki látið mjer nægja að þekkja aðaldrættina í lífssögu mætra manna og fylla svo út í oyð- urnar í huganum. Annað mál er það, að lítið atvik eða viðburður getur orðið til þess, að röð af myndum líður fram hjá hugskotssjónum míniun og veitir nijer svo mikla ánæg.ju, að mig langar ósjálfrátt t.il að segja frá frá einhverju af því scm á daga mína hefir dregið. Þannig varð 100 ára dánarminning Jónasar Hall- grímssonar til þess að kvikmvnda í húga mínum frábærilega skemti- lega ferðasögu frá árinu 1937. Á Frakklandi á jeg mína bestu vini og eru tveír ungir menn eftir af þeirri ætt, sem tók mig að sjer þegar .jeg kom fyrst tl Parísar fyr- ir 47 árum siðan. Þeir áttu sinn bílinn hvor og með því að þeir vildu gera eitthvað mjer til .skemt- unar, þá um sumarið, varð það úr að ánnar hvor þeira skyldi vera bíl- stjóri minn þegar jeg færi um land- Eítir Thoru Friðriksson Bagnolles de l’Orne í Normandí ið til þess, að heimsækja vini mína utan Parísar. Var þetta dásamlcg uppástunga, því j.árnbrautarferðir eru ekki skemtilegar. Fyrstu ferðinni var heitið til Bagnolles de FOrne í Nonnandi, þar sem tvær vinkonur mínar dvöldu sjer til hressingar, því þettá er þektur baðstaður og náttúrifeg- urðin mikil þar í kring. En þetta hjerað þekkti jeg frá fyrri tíð og var það því ekki sjer- stakur þáttur í þessari kvikmynd. Næsti áfanginn í heimsóknarferð þessari var að vísu annar baðstaður — því allir vinir mínir voru í sum- ai'leyfum — en í þetta sinn vár það, bærinn Dinard í Bretágne frægur fyrir fegurð sína og s.jóböð, því iofts lag er 'þar biítt og ströiidin 'þar ber hið fagra nafn Cote d’émeraude (smaragðströndin). En á leiðinni var svo margt fallegt að sjá og hugsa um, að bílstjójáfm og jeg vor- um ekkert að flýta okkur. .leg gæti sagt margt um útúrdúra okkar, eu jeg skal að eins nefna Mont St, Michel þar sem við eyddum einum

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.