Lesbók Morgunblaðsins - 09.09.1945, Síða 7
LESBOK MOÍiGUNBLAÐSINS
439
og áhöldin. Klæðnaður nianna var
vandlega prófaður. Sjerstaklega út-
búin áhöld gáfu merki, þegar „radio
aktífur" verkamaður nálgaðist.
Orka og eitur.
AUK plutonium framleiddu Han-
ford verksmiðjurnar tvö hryllileg
úrgangsefni. Vatnið, sem átti að
kæla keðjuverkunartækin bar með
sjer nægjanlega orku frá tækjunum
til að hita Coloradoána töluvert
mikið. Um þessi úrgangsefni veit
almenningur ákaflega lítið, en ým-
islegt af því, sem dr. Smyth gefur
í skyn í skýrslu sinni veit á illt.
Eitthvert efni, skylt uranium kann
ef til vill að fela í sjer nægjanlega
orku til að reka allar vjelar verald-
arinnar.
Hitt úrgangsefnið var hreint og
heint hræðilegt. — Við reglulega
starfsemi keðjuverkanatækjanna
reiknaði dr. Smyth út, að myndast
mundi svo mikið af „radioaktífum“
eiturtegundum á hverjum degi að
nægja mundi til að gera heil hjeruð
óbyggileg.
Hætta á ferðum í Los Alamos.
MEÐAN verið var að reisa þess-
ar, tröllauknu tilraunastöðvar og
gera tilraunirnar, var ánnar hópur
eðlisfræðinga að taka sjer bólfestu
á annari eyðimörk. í marsmánuði
1943 safnaðist hópur manna, undir
stjórn prófessors <T. R. Oppenheim-
er við KaHforniaháskólann, saman
hjá Los Alamos í New Mexieo. - -
Illutverk þesara manna var að gera
drög að og reyna atómsprengjuna
sjálfa. Tilraunamennirnir við keðju-
verkanatækin höfðu barist við að
koma í veg fyrir að alt spryngi í
loft upp fyrir tímann. Sprenginga-
mennirnir höfðu þeim mun erfiðara
hlutverk, sem þeir áttu að reyna
spreng.junS sjálfa á þeim tíma og á
þeim stað. er til þess var ákveðinn.
Af eðlilegum ástæðura er lýsing
dr. Smyth á sprengingunni mjög
ófullkomin. En þó má með lagni lesa
ýmsan fróðleik um hana á milli
línanna. Það þarf ekki að nota
hvellhettu við það að spreng.ja U—
235 og plutonium eins og TNT. •—
Þessi efni springa í loft upp hve-
nær, sem næganlega miklu magni
þeirra er safnað saman. Þess vegna
er aðalvandinn við framleiðslu atóm
sprengjunnar sá, að útbúa tæki,
sem geta komið af stað sprengingu
í tiltölulega litlu magni þessara
efna.
Litið fram á við.
SKVRSLA dr. Smyth nær ekki
lengi'a en til júníloka 1945, eða
skömmum tíma fyrir hina afleið-
ingaríku prófun atómsprengjunnar.
Dr. Smvth var fullviss um það, að
tilraunin mundi heppnast, áður en
hún var gerð, en hann var þó ekki
alg.jörlega ánægður. — 1 upphafi
voru margir vísindamenn, sem von-
uðu, að eitthvert lögmál mundi
koma í ljós. sem gerði notkun atóm-
sprengjunnar ómögulega — sagði
hann. — Þessi von hefir brugðist. —
Það er hægt að sjá fram á örar
framfarir í vísindunum í framtíð-
inni, hvað snertir klofningu atóm-
kjarnans. I vísindunum er þetta
náttúrlega þróun fram á við, en
segir dr. Smvth: — Ef fundið væri
upp ráð til þess að breyta þó ekki
væri nema örlítilli prósenttölu ein-
hvers venjulegs efnis í orku. þá
mundi siðmenningin vissulega verai
búin að afla sjer tækis til að fremja
sjálfsmorð. —
Efasemdir og ótti.
. JAFNVEL á stundu sigursins
voru hinar sameinuðu þjóðir fljótar
að átta sig á hættunni af atóm-
sprengjunni og hinum óhjákvæmi-
legu afleiðingum hennar. f New
Vork Times var skrifað: — Þetta
er bletfur á þjóðlifi voru. -— Þetta
er ekkert annað en fjöldamorð,
hrein og bein ógnaröld. — Við
skulum sökkva öllu saman niður á
botn Atlantshafsins eða Kyrrahafs-
ins, maðurinn er of breyskur til
þess að óhætt sje að trúa honum
fyrir öðru eins valdi. —
Methodistabiskupinn G. Bromlev
Oxnam og lögfræðingurinn JoHn
Foster Dulles, sem töluðu á vegum
kirkjuráðsins komust þannig að
orði: — Ef þessari þjóð, sem játar
kristna trú, finnst það siðferðis-
lega rjettlætanlegt að nota atóm-
orkuna á þennan hátt, þá munu
aðrar þjóðir haga sjer í samræmi
við þessa afstöðu hennar — allt er
þá tilbmð fyrir skyndilega óg end-
.anlega eyðingu mannkynsins. —
Dr. Cecil Hinshaw, skólastjóri
William Penn skólans í Oskaloosa
(kvekara skóli) lýsti atómsprengju-
árásum sem „villimannalegum, ó-
mannúðlegum hernaðaraðgerðum.
Notkun atómsprengjunnar er órjett-
lætanleg". —
Enda þótt Vatikan blaðið Oss-
orvatorc Romano ljeti svo ummæ.lt.
að atómsprengjuárásirnar hefðu
valdið „óánægju“ í Vatikaninu.
hefur þó Pius páfi 12. sagt blaða-
mönnum, að þessi ummæli væri ekki
samkvæmt opinberum heimildum.
Breski eðlisfræðingurinn Sir Jam-
es Chadwick skýrði frá því, að sum-
ir starfsbræðra hans liefðu neitað
að vinna að atómsprengjunni af
þeim ástæðum, að þeir bjuggust alt
eins vel við því, að verið væri að
framleiða ferlíki, sem gæti tortímt
heilum plánetum.
I ' ■
Aðrar raddir.
ERKIBTSKUPINN af Kantara-
borg dr. G. F. Fisher var ekki hrædd
ur við neina tortímingu. — Á sín-
um tíma mun þessi uppgötvun bæta
gífvirlega lífskjör manna.... Mikil
þægindi eru mönnum meiri freisting
en mikil hætta. Með því að nota
hin auknu þægindi að nota þau rjett
mun maðurinn 'vaxa andlega. Menn