Lesbók Morgunblaðsins - 11.01.1948, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 11.01.1948, Blaðsíða 3
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 3 mv"* * Gisli Hókonarson lögmaður. komu í hlut Vigfúss til ævinlegrar eignar. En svo var það 1520 að Ögmundur biskup Pálsson kaupir báðar jarðirnar af Páli syni Vigfúss „með vottum og handsölum fyrir það gjald, sem vjer bítöluðum fyrir hans föður Vigfús Er- lendsson í Englandi“. Árið 1538 gefur svo biskup Þórólfi Eyjólfssyni, syst- ursyni sínum, báðar jarðirnar til kvon armundar. Um þær mundir bjó í Laug arnesi sira Einar Ólafsson (afi Jóns Egilssonar sagnritara og Ólafs prests í Vestmannaeyjum, sem Tyrkir her- tóku). Einar prestur var „hinn mesti fulltrúi Ögmundar biskups, — Haíði hann allt umboö yfir Skálholtsjörðum um öll Suðurnes og upp að Hvalfirði, og hann var sá eini, sem Ögmundur biskup trúði fyrir að sækja persemar sínar austur að Hjalla“, þegar hann hafði verið handtekinn. Nú hefjast nýar deilur um eignar- rjettinn á jörðunum og stóðu þær fram um næstu aldamót. Hinn 19. maí 1570 er gert skipta- brjef eftir Pál lögmann Vígfússon, og eru systur hans tvær, Guðríður og Anna á Stóru-Borg, erfingjar hans. Barna-Hjalti, maður Önnu, var við skiptin fyrir hennar hönd og komu þar í hlut hennar jarðirnar Engey og Laugarnes „suður við Sund“, 50 hndr. að dýrleika. Höfðu Páli verið dæmdar þessar jarðir 1554, vegna yfirlýsingar um það að hann hefði alörei ætlað sjer að halda samninginn við Ögmund biskup „sökum hans ofríkis". — Var svo dæmt að hann skyldi halda jörð- unum þangað til Þórólfur gæti leitt vitni að því, að Páll hefði gert fullar' samning við biskup. Árið 1572 kærir svo Þórólfur Eyj- ólfson út af því, að Magnús sonur Hjalta og Önnu haldi jörðunum Laug- arnesi og Engey fyrir sjer. Bar hann fram brjef með ósködduðu innsigli Ögmundar biskups um það, að biskup gaf honum þessar jarðir, er hann hefði keypt af Páli fyrir áður greint gjald. Virtist dómsmönnum, sem þetta væri fullgild skilríki og dæmdu að Þórólfur mætti jörðina Laugarnes „að sjer taka og henni bíhalda". Árið 1599 helt síra Jón Kráksson Laugarnes. Kærði þá Magnús Hjalta- son um jarðirnar, en síra Jón lagði fram dóminn um að Þórólfi hefði ver- ið dæmt Laugarnes til ævinlegrar eignar. Þá helt Magnús því fram, að svo hefði ekki verið um Engey, því að hún hefði verið dæmd hálf hvorum, þangað til annar hvor gæti sannað til- kall sitt til hennar allrar. Niðurstaða dómsmanna var sú, að báðar jarðirnar skyldi standa þar sem komnar væri, hjá erfingjum Þórólfs. Gísli lögmaður Hákonarson kvænt- ist dótturdóttur Þórólfs og eignaðist þá Engey og Laugarnes, og bjó um skeið í Laugarnesi. Um þær mundir var höfuðsmanna- og Bessastaðavaldið að ná jörðinni Reykjavík undir sig. Hefur Gísla lögmanni verið lítið um það gefið og hafa orðið ýmsar greinir út af því á Alþingi 1615 og 1616, þótt eigi sje hægt að skýra frá því vegna þess að Alþingisbækurnar eru glatað- ar. En konungsvaldið náði að fullu eignarrjetti á jörðinni Reykjavík með „makaskiptabrjefi“ 19. apríl 1616. Þegar jarðabókin var samin (1703) var Elín Hákonardóttir eigandi Laug- arness og Engeyjar. Elín var sonar- Steingrímur Jónsson biskup. dóttir Gísla lögmanns Hákonarsonar og hefur hún því fengið jarðirnar að erfðum. Þá er talið að þrjár hjáleigur hafi verið í Laugarnesi: Norðurkot eða Sjávarhólar, Suðurkot og Barn- hóll, og einsetumaður á heima í litlum kofa hjá bænum. Þá er þess getið að Engey hafi torfristu, torfstungu og móskurð í landi Laugarness og sjest þar enn hvað jarðirnar eru tengdar. Jarðab. er fyrsta lýsingin á þessum jörðum og má það merkilegt heita að hún getur ekki um jarðhitann í Laug- arnesi fremur en hann hafi ekki verið til og enginn hefði nytjar hans. Má þó telja víst að menn hafa farið þangað til laugar allt frá landnámstíð. EN'GEY HVERFUR ÚR SÖGUNNI Þegar Elín Hákonardóttir dó, gengu eignir hennar til útarfa og þá mun hafa orðið skilnaður Engeyar og Laugarness, eftir að þessar jarðir höfðu fylgst að í 8 aldir. Árið 1787 er Hannes biskup Finnsson talinn eig- andi Laugarness, en Engey er ekki nefnd. Hannes biskup mun hafa feng- ið Laugarnes í arf. Móðir hans var Guðriður, sonardóttir Jóns biskups Vigfússonar, en Jón biskup og Elín Hákonardóttir voru bræðrabörn, og mun því Jón biskup hafa erft Laugar- nes eftir Elínu. ,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.