Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1948, Page 3

Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1948, Page 3
LESBOK MORGUNBLAÐSEMS 223 Tína Rondóní hann í ógæfuförina löngu, sem endaði á þriðju eyjunni, óralangt frá þess- um snæþöktu fjöllum, sem hann von- aði einu sinni að myndu rísa máttug og sterk yfir alfrjálsu ættlandi hans. Skyldi honum við leiðarlok ekki hafa verið hugsað hingað? Skyldi honum aldrei hafa komið til hugar í niður- lægingunni á fjarlægri klettaey, að síðasta hlutskipti hans hafi einmitt vcrið vendettan, hefnd Korsiku, lands ins, sem ól hann í trú á lausn, lands- ins, sem hann sveik? Círazic .... Klukkan er nú 1,40. Marseilles, hafnarborgin mikla við Miðjarðarhaf, er á bakborða.... Að undanförnu hef jeg loksins gegnt embætti hjer um borð. Jeg hef verið veitingaþjónn. Það, atvikaðist þannig, að þegar jeg gekk inn í íarþegaklefann um 1 lcytið, sá jeg, að aftast i farþegákleíanum stóð flugþcrnan okkar, Sigriður GeSts- dóttir, mjög vandræðaleg á svip og hjá henni ítali einn, miðaldra kaup- maður. Hann stóð þárna u)ip á end- anii, benti á víxl á múnninn á sjer og magann, sló út höndunum, hellti út úr sjer orðaflaumi og andlit hans vai' skelíingin uppmáluð. Jeg flýtti mjer til Sigríðar, og spurði, livort við vær- um að farast. Hún kvað ítalann- heimta mal, sagðist vera búin að segja honum, að ákveðið hefði verið að gefa síðar að borða, en það kæmi fyrir ekki, ítalinn vildi samt fá að jeta og það strax. Hinn sársvangi samferðamaður vatt sjer nú að mjer og sór við alla dýrlinga, að hann hefði hvörki fcngið vott nje þurt írá því klukkan 9 í morgun. Þegar jeg var búinn að reyna að útskýra íyrir hon- um á öllum tilkippilegum þjóðtung- um, að það væri mál með öllu óvið- komandi oss íslendingum, hvort hann hefði verið sveltur að skilnaði á ítalíu eða haldinn sæmilega, þá gerðist það tvent jafnsnemma, að Lann virtist skilja ræðu'mína og greip upp seðla- fúlgu mikla i því skyni að gera mjer ljóst, að hann væri enginn ólmusu- maður vor íslenskra. Var það hvort- tveggja, að okkur Sigríði rann mjög til rifja hið hryggilega ástand sam- ferðamannsins og svo hitt, að ekkert var líklegra en hann myndi steypa sjer úr flugvjelinni og seðja hungur sitt á sardinum Miðjarðarhafsins, ef ekki >Tði undan látið, cnda fór það svo, að áætlúnum var breytt og mat- gjafir ákveðnar þegar í stað. Tilreiddi Sigríður kostinn í kokkhúsi simi, en jeg fók að mjer að brynna ítölskum. Skeiðaði jeg mbð bakkana, hneigði mig og brosti, en ítalir sögðu ,,Graz- ie“ og tóku til matar. Er jeg liafði lokið við að færa þcim það síðásta var hinn banhungraði byltingaforingi fallinn í svefn alsæll og belgsadd- ur... . .... Klukkan er nú um hálf þrjú. Við tókum stefnu á Lyon eítir að við fórura fram hjá MarseiUes og fljúg- um nú upp Rhónc daíinn. Neðan okk- ar er eitt frjósamasta hjeraö Frakk- lands, cn á hægri hönd blíðar Vestur- Aipanna, fjöllin snæþakin og hrikaleg yst við sjóndeildarhringinn, stjórn- borðsmegin. Jeg er nú búinn að athuga farþega- skrána í því skyni að fræðast eitthvað um ítalina okkar. Konan er 28 ára gömul, efnafræðingur, gift. 17 ára piltur er yaigsLur karlmartnanna, ald- Farþegar ganga urn borö. ursforsetinn sextugur, sennilega fað- ir piltsins. Meðalaldur karlmannanna 30 ár. 18 eru kvæntir. Flestir eru skráðir landbúnaöarverkamenn, þá vjelfræðingar, smiðir, bókaútgefandi, kaupmaður og læknir.... Gcrfismiðurinn Galvani Á leiðinni til flugstöðvarinnar hafði cinn íarþeganna gefið sig á tal við mig. Hann talar sæmilega ensku. — Ilann hcitir Giuseppe Galvani, er 29 ára gamall, þrekvaxinn, dökkhærður, dökkeygur, mjög vingjarnlegur og hlýr í viðmóti. Jeg scgi honum, að mjer sje forvitni á að vita eitthvað um hagi hans og kveðst hann þess al- búinn að leiða mig þar í allan sann- leika. Saga hans er í fám orðum þessi: Ilann er bóndasonur frá Fol- igno, scm hann segir vera um 100 mílur vestan Rómar. Ilann hefur að- allega unnið við landbúnaðarstörf, en er hagur og hefur talsvert fengist við smíðar, kallar sig trjesmið á farþega- skránni, reiknar með að fá vinnu vestra við smíöar, en hefur aldrei lært handverk sitt hjá meistara og myndi því nefndur gerfismiður úti á íslandi. Kaup hans hefur að und- aníörnu verið 900 lirur á dag, en það kveður hann vera 100 Iírum meira en óbreyttra verkamanna. Hann sagðist geta íengið goða skó fyrir 5000 lír-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.