Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1948, Side 16

Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1948, Side 16
236 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS HJÖIÍTUR LOFTSSON bóndi á Hvoli í Mýrdal var.lengi for- söngvari í kirkju sinni. Hann var nú orðinn 84 ára og hinn ernasti. Hinn 19. nóvember 1854, sem var 23. sunnudag- ur eftir Trinitatis, var messað og var hann forsöngvari að vanda. En í lok messugerðar byrjaði hann 4. versið í 131. sálmi í Messusöngbókinni, „Styrk mig að standa", og fekk sungið „verður jeg gerist“, en í því að hann söng þessi orð hnje hann fram á gráturnar og var þegar örendur. HARÐUR DÓMUR Árið 1855 var Pjetur nokkur Þor- steinsson í Skagafirði ákærður fyrir að hafa farið inn í lokaðan kofa á Sviðn- ingi og stolið þar hefilgarm. Auk þess hafði hann stolið magál úr eldhúsi og snærisspotta. Allt var þetta virt sam- tals á tæpa 70 aura. En Pjetur var dæmdur í hjeraði til að þola þrisvar sinnum 27 vandarhöggva refsingu, og staðfesti yfirrjettur þann dóm. SNJÓFLJÓÐ • fell á bæinn Hlíð í Lóni í Austur- Skaftafellssýslu seint í janúar 1857. — Bóndimi, Jón Markússon, var þar þá staddúr í eldhúsi og vinnukona. Var hann að ’baka sig yfir eldinum og maka með áburði við meinsemd einni. En í því brotnaði niður eldhúsið undan snjóflóðinu og hafði þau bæði undir og ofan á eldinn. Lágu þau þar og gátu enga björg sjer veitt þangað til veðri slotaði og menn voru tilkallaðir að bjarga þeim. Stúlkuna sakaði lítið, en bóndinn var skaðbrenndur. VTÐEYJARSTOFA var ekki bygð handa Skúla landfó- geta, eins og margir ætla, heldur handa Rantzau stiptamtmanni. Honum hafði verið ætlað að fara til fslands og dvelja þar um hríð, en honum hefur líklega ekki getist að nábýli við amtmann á Bessastöðum, og Ijet því byggja Við- eyjarstofu handa sjer, meðan hann dveldi á fslandi. Þetta segir Ólafur Stephensen í brjefi einu, að Rantzau hafi sagt sjer sjálfur (Kl. J.) TUKTHÚSIÐ Hinn 4. nóv. 1813 |lepti Castenskjöld stiptamtmaður lausum öllum föngun- Ljdsm. mbl: ól. k. maqnússon. GAGNFRÆÐASKÓLINN nýi i Reykj avík. Ilann stendur hátt sunnan í Skóla- vörðuholtinu við Barónsstíg og er hin glæsilegasta bygging. — Sennilega getur kensla hafist þar næsta haust. um, sem þá voru í gamla tukthúsinu á Arnarhóli. Voru þeir 18 að tölu og voru sendir heim á sína sveit og þóttu þar engir aufúsugestir. Þar með var sögu tukthússins lokið, en formlega var það ekki lagt niður fvr en 1816 og þá „til bráðabirgða", en tukthúslaust var hjer í hálfa öld. JÓN SKJALLARASON Jón Magnússon hafnsögumaður bjó í Landakoti í lok 18. aldar. Hann var nefndur „skjallari“. Son átti hann er Jón hjet og var óknyttastrákur í æsku, en varð þó hafnsögumaður eftir föður sinn. Jón yngra afhýddu skólapiltar á tjörninni, eitt kvöld 1796, með al- bleyttri skjóðu, af þeirri ástæðu, að hann þótti liggja í eyrunum á Jakob Árnasyni, sem þá var í rektorsstgð. — Kom Jón ekki eftir þetta í skólann. HALLGRÍMUR PJETURSSON kom einu sinni á bæ í Borgarfirði og barði að dyrum. Telpa kom til dyra, en er hún sá gestinn varð hún hrædd og hljóp inn og sagði að kominn væri ill- úðlegur maður, bólugrafinn og galdra- legur. Hallgrímur heyrði þetta og hendi gaman að í skopvísum. En þetta er talið til marks um það, að Hall- grímur hafi verið nokkuð ferlegur út- lits, enda er honum svo lýst, að hann hafi verið „stór og óliðlega vaxinn, dökkur á hár og hörund.“ MAGNÚSJÓNSSON í Bráðræði í Reykjavík (afi Magnúss bankastjóra) bjó fyrst í Austurhlíð í Biskupstungum. Einu sinni var hann snemma morguns á ferð frá Austur- hlíð að Múla, sem er fremur stutt bæj- arleið. Þegar hann kemur austur á flat- irnar milli bæjanna sjer hann mann koma á móti sjer að austan. Þegar þeir hittast býður Magnús honum góðan dag. Ansaði hinn því engu, en tók ofan höfuðið og hvarf svo. LEIRULÆKJAR-FÚSI var einu sinni á ferð um nótt með lest. Hestarnir hlupu í túnið á bæ nokkr um en þar vakti telpa yfir túninu og sigaði hundum á hestana. Fúsi reiddist og kvað visu þessa: Vertu aldrei ótruttandi á ævi þinni. Truttaðu frá þjer sál og sinni, samviskunni, heyrn og minni. Svo brá við að stúlkan varð vitskert, til þess 'er Sigurður Dalaskáld kvað af henni ærslin.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.